Skírnir - 01.09.2013, Blaðsíða 208
rf \ a fm h?* tfTItA iHlfr ftAnH iTinH
HÁKONAR SAGA l-ll
íslenzk fornrit XXXI-XXXll
BÖGLUNGA SAGA
HÁKONAR SAGA HÁKONARSONAR
MAGNÚSS SAGA LAGABÆTIS
Þorleifur Hauksson, Sverrir Jakobsson
ogTor Ulset gáfu út með inngangi
og skýringum.
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson
og Þórður Ingi Guðjónsson.
ISBN 978-9979-893-98-1
Ixvii + 333 bls. / xcix + 341 bls.
ásamt 24 myndasíðum.
Hákonar saga Hákonarsonar er langmerkasta heimild sem varðveitt er um sögu Noregs á
13. öld. Sagan er rituð 1264-65 af Sturlu Þórðarsyni sagnaritara að beiðni Magnúsar konungs
Hákonarsonar. Hákon varviðvöld 1217-1263, lenguren nokkurannar Noregskonungur.
Meginefni fyrri hluta sögunnar fjallar um samskipti og deilur Hákonar og Skúla jarls Bárðar-
sonar. Það stuðlaði að sáttum milli þeirra þegar Hákon gekk að eiga Margréti dóttur Skúla, en
jafnvel hertoganafnbótin sem Hákon veitti Skúla 1237 fullnægði ekki metnaði hans til lengdar.
Tveimur árum síðar lét Skúli gefa sér konungsnafn, og þar með var friðurinn rofinn. Úrslita-
orrustunni vorið 1240 lauk með algerum sigri Hákonar konungs. Margir aðrir uppreisnarflokkar
risu upp gegn Hákoni, en honum tókst að friða Noreg og sameina undir sinni stjórn. Ennfremur
lagði hann undirsig ísland, Grænland ogstóran hluta Bretlandseyja. Þarvar hann staddur
ásamt miklu liði þegar hann tók sótt og andaðist, 1263. Viðskipti Hákonar við íslendinga
fá verulegt rými í sögunni, og ýmsir íslenskir höfðingjar birtast þar f öðru Ijósi heldur en í
Sturlungu eða öðrum heimildum. Sturla orti mörg lofkvæði um Hákon og afrek hans og felldi
þau inn í sögu hans, en fundum hans og konungs bar aldrei saman. Hins vegar varð hann
hirðmaður Magnúsar sonar Hákonar og ritaði einnig sögu hans, sem er nú að mestu glötuð.
Böglunga saga hefst þar sem Sverris sögu lýkur og segir frá stuttu valdaskeiði Hákonar
Sverrissonar og þeim heiftúðugu flokkadráttum og valdabaráttu sem við tók eftir skyndilegt
andlát hans. Eftir að sagt hefur verið frá sáttafundi í Hvítingseyjum 1208 er saga höfðingjanna
rakin í stórum dráttum fram til valdatöku Hákonar Hákonarsonar 1217. Böglunga saga hefur
varðveist ítveimur gerðum, sem báðar eru prentaðar í þessari útgáfu. Lengri gerðin er aðeins
varðveitt á fáeinum skinnblöðum, en kringum 1600, meðan hún var enn heil, var hún þýdd
á dönsku af norskum presti og fræðimanni, Peder Clausson Friis. Sú þýðing er hér prentuð
ásamt íslenskri þýðingu Sveinbjarnar Egilssonar.
Af Magnúss sögu lagabætis eftir Sturlu Þórðarson hafa aðeins varðveisttvö skinnblöð.
Texti þeirra er prentaður í þessari útgáfu ásamt nokkrum annálagreinum sem talið er að
runnar séu frá þessari glötuðu sögu.
Útgáfur íslenzkra fornrita eru gerðar úr garði með rækilegum inngangi og skýringum á
kveðskap og torskildum orðum neðanmáls, auk sögulegrar, mannfræðilegrar og landfræði-
legrar glöggvunar á atburðum og aðstæðum þar sem þurfa þykir.