Ný Dögun - 01.11.1992, Qupperneq 11
/Oý TDögun-
i_öggœ.slusvae.ði lög»*egluuKia>* í
"Reykjavík
Löggæslusvæði lögreglunnar í Reykjavík er
stórt, nær frá Gróttuvita á Seltjarnarnesi í
Hvalfjarðarbotn og íbúatala á svæðinu er
um 107.000 manns. Gera má ráð fyrir að
lögreglan sinni árlega um eitt þúsund slysa-
útköllum, þar af milli eitt og tvö hundruð,
sem eru alvarlegs eðlis og um eitt hundrað
dauðsföllum. Sérstök deild er innan
lögreglunnar í Reykjavík, sem sinnir slysa-
rannsóknum sérstaklega ásamt umferðar-
óhöppum, en almenn deild lögreglu og
umferðardeild koma töluvert mikið inn í
þessi verkefni. Dauðsföllum, öðrum en þeim
sem gerast í umferðinni, er almennt sinnt af
almennri deild lögreglu.
i-ögreglumaðu^ÍKm á veftvangi:
Eins og ég nefndi í upphafi er starfsumhverfi
lögreglunnar varðandi slys og dauðsföll
viðkvæmt og reyndar margþætt. Það er sá
þáttur lögreglustarfsins, sem veldur lög-
reglumönnum hvað mestum kvíða og
streitu, sérstaklega þegar sinna þarf slysum
og dauðsföllum barna. Þetta kom glöggt
fram í könnun, sem ég stóð fyrir meðal
lögreglumanna í nóvember á síðasta ári. í
framhaldi af könnuninni voru myndaðir
vinnuhópar starfandi lögreglumanna og
nema Lögregluskóla ríkisins, sem tilgreindu
hvað það væri, sem ylli mestum kvíða og
streitu við slysaútköllin og hvað þeir teldu
að hægt væri að gera til að gera lögreglumenn
hæfari til að takast á við þessi verkefni.
Rað sem kelst veldu>* lög»*eglu-
mönnum kvfða og s+»*ei+u:
a) Ef börn eru þolendur.
b) Slys, þar sem líf fólks getur oltið á
viðbrögðum lögreglumannsins - og
því, að hann geri nákvæmlega rétt.
c) Óvissan um hvernig aðkoman er og
hvað hefur gerst á vettvangi og sú
tilfinning að vera ekki megnugur að
bjarga lífi, sjá fólk deyja í höndum
manns.
d) Áhyggjur af því hvort unnið sé í réttri
röð á vettvangi t.d. þegar lögreglu-
maður er einn að störfum (enginn
sjúkrabíll) og þarf að skipuleggja
framkvæmd á staðnum.
e) Ótti við að þekkja hinn slasaða eða
látna svo sem að koma að slysi eða
dauðsfalli á sínum nánustu.
f) Að vettvangurinn sé þannig að
lögreglan hafi ekki möguleika á að
gera neitt.
g) Að vera „yfirvald" á stað þar sem
fólk horfir upp á slasaðan eða látinn
ástvin.
h) Sorgin og samúðin, sem erfitt getur
reynst að láta ekki ná tökum á sér.
Þetta kemur helst fram eftir á, að
lokinni vakt.
í) Þegar reiði aðstandenda yfir því að
slys eða dauðsfall átti sér stað bitnar
á lögreglumanninum.
í störfum sínum hefur lögreglan oft komið í
veg fyrir slys eða afleiðingar þess svo sem
með slysahjálp og skjótum og réttum við-
brögðum. Einnig kemur lögreglan oft í veg
fyrir líkamsmeiðingar og jafnvel dauðsföll í
störfum sínum og þ.m.t. sjálfsmorð. Slík
tilvik eru ófá.
tÁ+kallið
Flestar tilkynningar um slys eða dauðsfall
berast til stjórnstöðvar lögreglunnar, sem
sendir þegar á staðinn og í flestum tilvikum
er ekið þangað í forgangsakstri. Þar kemur
margt til svo sem að með því að koma sem
fyrst á staðinn geti lögreglumenn bjargað
mannslífum eða komið í veg fyrir frekari
afleiðingar slyss, t.d. með slysahjálp.
Þýðingarmikið er að vernda vettvang sem
fyrst vegna rannsóknar málsins og hafa upp
á vitnum og hugsanlega þeim sem valdur er
að slysinu. Fólki getur stafað hætta af
slysavettvangi t.d. þar sem umferðarslys
hefur orðið o. fl. mætti nefna.
11