Ný Dögun - 01.11.1992, Side 43

Ný Dögun - 01.11.1992, Side 43
"Dogurv V rcuAmunnn „Mann nokkurn dreymdi draum. Honum fannst hann ganga á ströndu með Drottin sér við hlið. Á himninum sá hann atburði í lífi sínu. Og við hvern atburð sá hann spor í sandinum, hlið við hlið, hans spor og spor Drottins. Þegar hann hafði séð síðasta atburðinn í lífi sínu, þá leit hann til baka á sporin í sandinum. Hann tók eftir því, að oft voru bara fótspor eftir einn í sandinum. Og það var þegar hann var daprastur og leið verst í lífinu. Honum leið illa yfir þessu og spurði Drottin um þetta:"Drottinn, þú sagðir, að þegar ég hefði ákveðið að fylgja þér, þá myndir þú ganga með mér alla leið á leiðarenda. En ég hef tekið eftir því, að þegar mér leið verst í lífinu, þá eru bara spor eftir einn. Ég skil ekki hvers vegna þú yfirgafst mig, þegar ég þarfnaðist þín mest". Drottinn svaraði:"Elsku barnið mitt. Mér er annt um þig og ég myndi aldrei yfirgefa þig. Þegar þú þjáðist og þér leið illa, þegar þú sérð fótspor eftir einn, þá bar ég þig í gegnum erfiðleikana". Úr bókinni „Von. Bók um viðbrögð við missi".

x

Ný Dögun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.