Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Page 10
10 9. nóvember 2018FRÉTTIR og vinafólki sínu út á Kollafjörð. Þetta voru sambýlisfólkið Frið- rik Ásgeir Hermannsson, 34 ára, og Matthildur Victoría Harðardóttir, 51 árs. Voru þau í skemmtiferð til að fagna því að Friðrik, sem var lög- fræðingur, hefði flutt sitt fyrsta próf- mál fyrir Hæstarétti. Ljósbaujur voru í sjónum til að leiðbeina skipum og bátum inn í Sundahöfn en bátnum hafði ver- ið siglt röngu megin við þær. Al- gengt var að þeir sem þekktu vel til á svæðinu gerðu þetta viljandi til að stytta sér leið. Þegar liðið var á nóttina, rétt fyrir klukkan tvö, sigldi báturinn á Skarfasker við Viðey á miklum hraða. Sonurinn var þá sof- andi í gistirými bátsins en aðrir í stýrishúsinu. Harpa var föst á skerinu í um það bil tuttugu mínútur. Þá var bátn- um bakkað í tilraun til að sigla hon- um skemmdum í höfn. Þegar leit út fyrir að báturinn væri að sökkva hr- ingdi Jónas í Neyðarlínuna. Eftir að hafa siglt í um fjórar mínútur hvolfdi bátnum og ætla má að Matthildur, sem var í káetunni, hafi drukknað þá. Leitað í viku Þyrla Landhelgisgæslunnar var ræst út ásamt lögreglunni. Þegar lögreglumenn á gúmmíbát fundu Hörpu meira en klukkutíma eftir útkallið sáu þeir Jónas hangandi utan á bátnum. Guðjóna sat þá á kili bátsins ásamt syni þeirra. Eftir að Jónasi og fjölskyldu hans var bjargað um borð í gúmmí- bátinn voru þau flutt upp á gjör- gæsludeild. Höfðu þau fengið mikla áverka við höggið. Jónas var tvílærbrotinn og Guðjóna með brotin rifbein. Strax eftir að þeim hafði verið bjargað hófst leitin að Friðriki og Matthildi. Kafarar stukku í sjóinn og fljótlega fannst lík Matt hildar. Talið var að Friðrik hefði kafað undir bátinn til að leita að henni en hann fannst ekki strax. Lögregla, björgunarsveitir, kaf- arar frá Landhelgisgæslunni og vinir og ættingjar Friðriks leituðu að honum dagana á eftir. Um tíma var veður mjög vont og aðstæður allar erfiðar. Fljótlega hóf rann- sóknarnefnd sjóslysa störf og var Harpa rannsökuð í lokuðu hús- næði. Á meðan dvöldu Jónas og Guðjóna þungt haldin á Landspít- alanum. Laugardaginn 17. sept- ember, viku eftir áreksturinn, fannst lík Friðriks neðansjávar vestan við Viðey. Drakk áfengi en sagðist ekki hafa verið við stýrið Fljótlega fór rannsókn lögreglu að beinast að Jónasi og Guðjónu. Viku eftir áreksturinn voru þau yfir heyrð og höfðu þá réttarstöðu sakborninga. Talið var að þau hefðu neytt áfengis þetta kvöld en rannsóknin beindist að því að komast að því hver hefði verið við stýrið þegar báturinn steytti á sker- inu. Sagði Hörður Jóhannesson aðstoðaryfirlögregluþjónn lang- líklegast að það hafi verið Jónas. Jónas sagðist aftur á móti ekki muna mikið eftir atburðarásinni vegna höfuðhöggs sem hann hlaut við höggið. Út frá rannsókninni var Jónas kærður fyrir manndráp af gáleysi. Sagði hann sig frá trún- aðarstörfum fyrir Sjómannafélag- ið vegna þess. Aðalmeðferð málsins hófst föstudaginn 5. maí í Héraðsdómi Reykjavíkur. Viðurkenndi Jónas þar að hafa drukkið áfengi þetta umrædda kvöld. Tvö glös af gini og rauðvín með kvöldmatnum. Klukkan 4.09 um nóttina mældist 1,07 prómill í blóði hans sem er langt yfir leyfilegum mörkum. Hann sagðist þó ekki hafa fund- ið fyrir ölvun og gæti sjálfur metið það hvort hann gæti stjórnað báti verandi búinn að drekka. Jónas hafnaði því hins vegar að hafa verið við stýrið og sagð- ist muna atburði kvöldsins þang- að til hann lét Matthildi um stjórn bátsins. Hafi það verið fyrir áeggj- an Friðriks en Jónas sagðist ekki hafa vitað hvort hún hefði tiltek- in réttindi til að stýra bát. Sagðist Jónas hafa leiðbeint Matthildi út fyrir Skarfasker en síðan væri minnið þrotið þar til hann var sjálfur á sundi og báturinn á hvolfi. Var Jónas sá eini um borð sem hafði aflað sér siglingarmenntun- ar og því skipstjóri allan tímann samkvæmt lögum. Rannsókn á áverkum þeirra sem um borð voru leiddi hins vegar í ljós að Matthildur hefði verið í setustofu bátsins. Lík henn- ar var með áverka á sköflungum en Jónas hafði brotnað á læri og úlnlið. Þar að auki fannst kertavax bæði á setubekk og annarri ermi Matthildar. Auk þess höfðu bæði Guðjóna og sonur þeirra sagt að Matthildur hefði verið í sófa á bak við stýrisbekkinn. Töldu dómarar að Jónas sjálfur hefði staðið við stýrið. Þriggja ára fangelsisdómur Í réttarhöldunum var gáleysi Jónasar einnig rætt út frá vöntun á sjókorti. Samkvæmt siglinga- fróðum meðdómsmanni var það frumforsenda þess að hægt væri að sigla um svæðið með gát eins og aðstæður voru. Jónas sjálfur sagðist hins vegar aldrei hafa not- að sjókort eða staðsetningartæki á ferðum sínum um Sundin. Eftir að báturinn steytti á sker- inu bar Jónasi sem skipstjóra að grípa til allra tiltækra ráðstafana til að bjarga farþegunum. Björg- unarbátur var geymdur í tösku í vélarrýminu og virtist sem engar tilraunir hafi verið gerðar til að opna hann. Einnig voru hvorki neyðarblys né talstöð bátsins not- uð. Í upptökum af samtölum við Neyðarlínuna heyrðist að Jónas hafi vikið sér undan því að tala í farsíma við neyðarlínuna. Hélt lögmaður Jónasar því fram að áhrif höfuðhöggs hefðu valdið þessari hegðun Jónasar. Ekkert Manndráp af gáleysi Jónas var fundinn sekur og hlaut þriggja ára fangelsis- dóm.„Þegar lögreglumenn á gúmmí- bát fundu Hörpu meira en klukkutíma eftir útkallið sáu þeir Jónas hangandi utan á bátnum Bátshvarf Hörpu var komið undan til Noregs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.