Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Side 24
24 9. nóvember 2018FRÉTTIR FÖSTUDAGINN 30. NÓV. OG 7. DESEMBER LAUGARDAGANA 1. OG 8. DESEMBER JÓLAHLAÐBORÐ Jólagleði á Ránni í Reykjanesbæ Eyfi sér um jólastemminguna BORÐAPANTANIR Í SÍMA: 852 2083 PANTANIR@RAIN.IS Fimm staðir til að finna álfa M eirihluti íslensku þjóðar- innar trúir á álfa, yfirnátt- úrulegar verur sem búa í steinum og úti í hrauni. Fram kom í könnun sem DV gerði fyrir 20 árum að 54,4% lands- manna tryðu á álfa og huldufólk, í könnun Háskóla Íslands tæpum 10 árum síðar hafði trúin aukist og trúðu þá 62% á álfa og huldu- fólk. En hvar eru þessir álfar? Í bókinni Krossgötur – Álfatrú, álfa- byggðir og bannhelgi á Íslandi eftir Bryndísi Björgvinsdóttur og Svölu Ragnarsdóttur er fjallað um þá staði sem talið er að finna megi álfa hér á landi. DV tók saman lista yfir fimm staði á höfuðborgar- svæðinu og nágrenni þess þar sem talið er að álfar haldi sig. Ari Brynjólfsson ari@dv.is Merkurgata, Hafnarfirði Við Merkurgötu stendur stór álfasteinn sem virðist standa úti á miðri götu. Sagan segir að til hafi staðið að brjóta hann niður árið 1937 en það hafi ekki tekist vegna huldu- veru sem býr inni í stein- inum. Járnkarl sem átti að nota til að brjóta hann niður stendur enn upp úr steininum. Álfasteinninn í Merkurgötu er friðaður af Hafnarfjarðarbæ. Merkur- gata er á milli Vestur- götu og Vesturbrautar, skammt frá bæjartorginu við verslunarmiðstöðina Fjörð. Smiðjuhóll stóð suður af gamla Arnarnesbænum en er nú inni á einkalóð. Sagt er að á honum hvíli álög og ef hann yrði sleginn þá myndu bestu mjólkurkýrnar í fjósinu falla niður dauðar. Þrátt fyrir að fjósið og kýrnar séu löngu farnar af Arnarnesinu þá er hann enn vaxinn háum stráum. Sagan segir að breskur sjáandi hafi skoðað hólinn að beiðni íbúa og hafi átt erfitt með svefn eftir að hafa fundið inngang álfanna inn í hólinn. Eins og áður segir er hóllinn á einkalóð og því líklegast best að skoða hann úr fjarlægð, þá einnig til að forðast álög og svefntruflanir. Smiðjuhóll, Arnarnesi í Garðabæ Samkvæmt fornleifaskrá Reykjavíkur er álfabyggð í hóli við blokk- ina Vesturberg 2–6 í Breiðholti. Hóllinn er rúmum tíu metrum frá blokkinni og er kallaður Sauðhóll. Blokkin átti að standa þar sem hóllinn er en það var talið óráðlegt vegna álfanna. Skammt frá er grunnskólinn Fellaskóli, hóllinn er mjög grýttur og segir sagan að kennarar við skólann hafi sagt börnunum að hann væri bannhelg- ur til að koma í veg fyrir að börn meiddu sig við leik. Sauðhóll, Breiðholti í Reykjavík Það er ástæða fyrir því að svæðið við Kópavogskirkju er látið í friði en þar er talið að sé blómleg álfabyggð. Sagan segir að þegar Borgarholtsbrautin var lögð hafi Kópavogsbúinn Sveinn Gamalíelsson varað álfana við áður en steinar voru sprengdir í burtu, álfarnir hafi þá fært sig. Álfarnir í Borgarholtinu virðast hrifnari af börnum en fullorðum og er sagt að þeir hafi átt á samskiptum við leikskólabörn. Borgarholt, Kópavogi Hafnarfjörður er sannkallaður álfabær. Fram kom í úttekt sjá- andans Erlu Stefánsdóttur, sem hún gerði fyrir Hafnarfjarðarbæ á tíunda áratug síðustu aldar, að þar sé merkilegasta og stærsta álfabyggðin í bænum. Ein elsta frásögnin af staðnum er um Gunnar Bjarnason, bónda í Hamarskoti, sem heyrði söng frá Hamrinum að kvöldi til um jól. Gunnar gekk á hljóðið og fann dyr. Fór hann inn í híbýli álfanna en lét sig fljótt hverfa þegar söngnum lauk. Hamarinn er fyrir ofan Lækinn í Hafnarfirði, við hliðina á Flensborgarskólanum. Hamarinn, Hafnarfirði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.