Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Side 33
Vélar, verkstæði og verktakar 9. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
Fyrirtækið Þjótandi á Hellu er eitt af stærri fyrirtækjum á Suður-landi í jarðvinnu. Í dag er fyrir-
tækið með um 20 starfsmenn í vinnu,
yfir 50 vinnuvélar og 18 vörubíla.
Fyrirtækið var ekki stórt í upphafi, en
árið 1991 keypti Ólafur Einarsson, sem
er fæddur og uppalinn á Hellu, sér
gröfu eftir að hann varð atvinnulaus
eftir gjaldþrot þáverandi vinnuveit-
anda síns.
„Við erum í allri jarðvinnu, vegagerð,
og allri mannvirkjagerð sem tilheyrir
jarðvinnu,“ segir Ólafur. „Við erum sér-
hæfðir í lagnavinnu, vinnum mikið fyrir
veitustofnanir og sveitarfélög við að
leggja lagnir, jarðstrengi, hitaveitu og
vatnslagnir og ljósleiðarastrengi.
Við sinnum einnig vetrarþjónustu
fyrir sveitarfélög og Vegagerðina með
snjómokstur og hálkuvarnir.“
Ekkert verk er of stórt eða of lítið
fyrir Þjótanda. „Við sinnum öllu frá
smáverkum upp í stærri verkefni og
erum með gröfur frá 2 tonnum upp í
risagröfur sem eru 60 tonn.“
Verkefni fyrir sveitarfélög
Þjótandi vinnur mikið á útboðsmark-
aðnum, þar sem fyrirtækið býður í
verkefni hjá ýmsum aðilum. „Stærsta
verkefnið í dag er verkefni fyrir Vega-
gerðina sem heitir Gjábakkavegur á
Þingvöllum og strenglagnir fyrir Rarik
og sveitarfélög. Einnig er verið að
vinna við gatnagerð á Hellu.“
Nýlega tók fyrirtækið upp nýja
tækni sem kallast klapparfræsari.
„Það er sög sem sagar fyrir strengjum
í klappir. Þetta er nýjung hér á landi í
strenglögn, því þá þarf ekki að fleyga
fyrir jarðstrengjum í klappirnar sem
hefur verið mjög tímafrekt og kostn-
aðarsamt.“ Þjótandi er eina fyrirtækið
hér á landi sem býr yfir þessari tækni.
Fyrirtækið hefur yfir að ráða 4 jarðýt-
um sérútbúnum með víbraplógum til
strenglanga.
„Við erum að bora undir vegi, get-
um borað allt að 70 sentimetra rör
undir vegi fyrir lögnum,“ segir Ólafur.
„Þjótandi er einnig með bílkrana og sá
stærsti er 85 tonn.
Þjótandi ehf. er staðsett á Hellu, en
tekur að sér vinnu um allt land.
Allar upplýsingar má fá í síma
893-9190 og á netfanginu tjotandi@
simnet.is. n
ÞJÓTANDI:
Sérhæfing og ný tækni í
jarðvinnu og vegagerð