Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Blaðsíða 36
Vélar, verkstæði og verktakar 9. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ
Kistufell, bifreiðaverkstæði með sögu
Kistufell er gamalgróið fyrirtæki sem var stofnað fyrir hartnær sjötíu árum af bræðrunum
Jónasi og Guðmundi Jónassonum sem
fæddust einmitt á bæ undir Kistufelli
í Esjunni. „Það er náttúrlega heilmikil
saga sem fylgir fyrirtækinu sem hefur
starfað linnulaust frá því 1952. Ég er
til dæmis þriðji ættliðurinn til þess að
sjá um rekstur á Bifreiðaverkstæðinu
Kistufelli,“ segir Guðmundur Ingi Skúla-
son, barnabarn Guðmundar.
Á tíunda áratugnum skiptist fyr-
irtækið upp í tvö fyrirtæki. Annars
vegar varahlutaverslun og hins vegar
vélaverkstæði sem er sá hluti fyrirtæk-
isins sem Guðmundur sér um í dag.
Heitir fyrirtækið nú Bifreiðaverkstæðið
Kistufell og sérhæfir það sig í bílum og
viðgerðum á þeim, ásamt vélavinnu.
Það er staðsett að Tangarhöfða 13.
„Áður vorum við meira í að gera upp
vélar og sinna þeim hluta bílsins, en
í dag hefur reksturinn meira þróast í
bæði vélavinnu og almennar bifreiða-
viðgerðir. Eins vorum við meira í að
þjónusta önnur verkstæði og sinna
bílaumboðum. Nú höfum við fært
reksturinn meira yfir í einkabílinn þó svo
við séum enn að sinna stærri kúnnum
sem eru stór hluti af okkar viðskiptavin-
um,“ segir Guðmundur.
Bæði með varahluti og viðgerðir
Bifreiðaverkstæðið Kistufell veitir hag-
kvæma og samkeppnishæfa þjónustu
í bílaviðgerðum en sérhæfir sig jafn-
framt í innflutningi á varahlutum frá
viðurkenndum aðilum sem framleiða
parta í allar tegundir véla. „Við erum
með túrbínur og spíssa í dísilvélar,
stimpla, legur og pakkningar. Á verk-
stæðinu erum við með fimm lyftur þar
sem við gerum við allar tegundir bif-
reiða, smábíla, jeppa, rútur, vörubíla og
fleira. Við sinnum öllum bílaviðgerðum
almennum sem sértækum. Þá skiptum
við um tímareimar, hjólalegur, spyrnur,
bremsur, headpakkningar og raunar
allt sem viðkemur bifreiðum og viðhaldi
á þeim,“ segir Guðmundur.
Endurvinnslan fyrir umhverfið
og veskið
Í raun má segja að Bifreiðaverkstæðið
Kistufell sé gamalgróið endurvinnslu-
fyrirtæki þar sem þeir eru einnig í því að
endurbyggja vélar. „Okkur finnst mikil-
vægt að bjóða upp á þessa þjónustu
fyrir þá sem vilja endurnýta hlutina í
stað þess að kaupa alltaf nýtt. Oft á tíð-
um eru menn að fjárfesta í nýjum tækj-
um í stað þess að fara með í viðgerð,
þrátt fyrir að það sé í raun hagstæðara
að gera við. Okkar mottó er að gera
við, endurnýta og endurvinna það sem
hægt er þangað til það þarf að skipta
út. Það er bæði betra fyrir umhverfið og
seðlaveskið,“ segir Guðmundur.
Alltaf dýrast að trassa viðhaldið
Guðmundur bendir á að bílaviðgerð-
ir séu og verði alltaf dýrar. „Það er þó
alltaf dýrara að sinna ekki viðhaldi á
bifreiðinni. Ódýrasta tryggingin til þess
að þurfa ekki að lenda á bifreiðaverk-
stæðinu hjá mér er að smyrja bílinn
reglulega. Og ef menn hugsa skynsam-
lega um tækin sín þá endist þetta auð-
vitað töluvert lengur. Þetta vita allir en
stundum þarf að impra á þessu,“ segir
Guðmundur.
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.kistufell.com
Tangarhöfði 13, 110 Reykjavík
Sími: 577-1313
Opið er á verkstæðinu alla virka daga
frá 08–17 n