Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Síða 43
Góð kaup 9. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
Fyrir um það bil einu og hálfu ári fórum við að selja alveg frábæra sturtubotna frá
fyrirtækinu Gala á Spáni. Um er að
ræða sturtubotna úr granít/sto-
nex-efni sem er alveg sérstaklega
endingargott og sterkbyggt,“ segir
Íris Jensen. Botnarnir eru sérstak-
lega gerðir fyrir opnar sturtur
(walk-in) sem hægt er að ganga inn
í. Gala-sturtubotnarnir fást í eins
til tveggja metra lengdum og koma
tilbúnir með innbyggðum halla
sem auðveldar alla uppsetningu til
muna. Flísarnar eru í þriggja senti-
metra þykkt og er hægt að skera
eftir máli þannig að þær passa
inn í flesta sturtuklefa og sturtu-
lausnir. Þær eru enn fremur bornar
stamri gelkvoðu sem gerir botninn
að stöðugu undirlagi fyrir fólk að
ganga á og athafna sig í sturtunni.
Litagleði
Það skemmir svo ekki fyrir að
granít/stonex-botnarnir frá Gala
fást í ýmsum litum. „Þeir eru ekki
bara hvítir, heldur er líka hægt að
fá svarta botna, drapplitaða og
gráa. En undanfarið hefur fólk verið
að leita töluvert meira eftir að fá liti
inn í baðherbergin.
Við bjóðum til dæmis upp á
svört, mött blöndunartæki frá FIMA
Carlo Frattini á Ítalíu, sem eru al-
veg einstaklega smart. Einnig erum
við með litaðar handlaugar og lituð
salerni frá GLOBO á Ítalíu. Við erum
ekki að tala um pastelliti áttunda
áratugarins, eins og ljósbleik salerni
eða ljósgul. En það kemur kannski
aftur,“ segir Íris og hlær en bend-
ir síðan á að í dag velji fólk meira
jarðliti eins og gráan og drapplitað-
an. „Þessir litir koma alveg einstak-
lega vel út inni á baðherbergjum
nútímans,“ segir Íris.
Engin fúga, ekkert vesen
„Mesti lúxusinn Gala-botnana er að
það er engin þörf fyrir fúgu, sem
gerir botninn að algjöru himnaríki
þegar kemur að þrifum. Auk þess
sem fúga á milli flísa á það til að
gulna, litast og eyðast með tíman-
um. Með Gala-sturtubotnunum er
þetta vandamál úr sögunni. Engin
fúga, ekkert vesen,“ segir Íris.
Glerlausnir fyrir lítil rými
Innréttingar og tæki bjóða upp á
mikið úrval af glerveggjum í ýmsum
stærðum og gerðum sem passa til
dæmis með sturtubotnunum góðu.
„Við erum til dæmis með fasta
glerveggi með lausum væng fyrir
lítil rými svo þau nýtist til fullnustu,“
segir Íris.
Stór lager, engin bið
„Við erum yfirleitt með um þrjátíu
gerðir af sturtulausnum til á lager
sem gerir það að verkum að þegar
fólk kemur til okkar þá er biðtími
eftir sturtulausnum og öðrum bað-
herbergislausnum nánast enginn.
Það er oft hægt að fara beint heim
og byrja á uppsetningu undir eins.
Þar sem Gala-sturtubotninn er sér-
pantaður þá er hann allajafna ekki
til á lager,“ segir Íris.
Nánari upplýsingar má nálgast á
jensenbjarnason.is
Ármúli 31, 108 Reykjavík
Sími: 588-7332
Póstfang: i-t@i-t.is
Opið alla virka daga frá 9–18 og
laugardaga 11–15. n
INNRÉTTINGAR OG TÆKI:
Litagleði og baðherbergislausnir
fyrir nútímamanninn
SKÍÐAÐU JÓLASTRESSIÐ Í KAF:
Hlíðarfjall Akureyri