Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Síða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Síða 45
Góð kaup 9. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ MI ICELAND: Borgaðu minna fyrir meira Mi Iceland er viður-kenndur endursölu- og dreifingaraðili á Íslandi fyrir kínverska snjalltækjaframleiðandann Xiaomi, betur þekktan sem Mi, sem hefur skapað sér sterkan sess í tækniheiminum á stuttum tíma með áreið- anlegum tækjum á góðu verði. Fyrsti síminn frá Mi kom á markaðinn árið 2011 og aðeins þremur árum síðar var framleiðandinn orðinn sá þriðji stærsti í heiminum. Mi framleiðir miklar gæða- vörur en þar sem merkið er ekki jafnþekkt og til dæmis Samsung eða Apple þá eru þessar vörur yfirleitt mun ódýrari en þekktari merki í sama gæðaflokki, allt að þrefalt ódýrari. Mi Iceland er vefversl- un á síðunni mii.is og er úrvalið afar mikið. Sífellt eru að koma fram nýjar og spennandi vörur. Hér eru nokkur nýleg dæmi: Mi Band 3 Það hefur verið mikil eftir- vænting síðastliðið vegna nýja snjall- og heilsuúrsins frá Xiaomi, Mi Band 3. Biðin hefur svo sannarlega verið þess virði þar sem allt hefur verið betrumbætt frá for- vera þess, Mi Band 2. Helstu eiginleikar úrsins eru enn stærri skjár þar sem hægt er að skoða heil SMS-skilaboð, stærri rafhlaða, vatnshelt að 50 metra dýpi svo ekkert mál að taka það með sér í sund og veðurupplýsingar næstu daga svo eitthvað sé nefnt. Það sem gerir þetta snjallúr ólíkt mörgum öðrum er möguleikinn á að skipta um ól á úrinu og gjörbreyta á sama tíma útliti þess. Mi 8 Árið 2012 setti Xiaomi á markað sinn annan síma, Mi 2, sem varð strax það vinsæll að Xiaomi varð 2. stærsti farsímaframleiðandi í heim- inum það ár. Nú, sex árum seinna, hefur tæknin þróast gífurlega og Xiaomi sannar það svo sannarlega með Mi 8. Síminn hefur tvöfalda 12MP myndavél að aftan og 20MP myndavél að fram- an með AI-assisted face unlock sem gerir þér kleift að aflæsa sím- anum með því einfaldlega að horfa á hann. Nýi Snapdragon 845 örgjörvinn og 6GB vinnsluminni gerir sím- ann að sannkölluðum vinnuhesti. Mi A2 Í fyrra kom á mark- að fyrsti síminn sem unninn var í sam- starfi við Google, Mi A1. Síminn fékk strax frábærar viðtökur og hefur salan farið langt fram úr væntingum úti um allan heim. Í ár kom Mi A2 og hefur flest, ef ekki allt, verið betrumbætt frá forvera hans, Mi A1. Samstarf Xiaomi og Google liggur fyrst og fremst í hreinu Android- -stýrikerfi sem hefur marga kosti í för með sér en sá mikilvægasti er að síminn sjálfur er hraðari fyrir vikið og uppfærslur á stýrikerf- inu skila sér mun fyrr. Mikil áhersla hefur verið lögð á að bæta myndgæðin við dimm skilyrði og myndgæðin al- mennt. Myndavélin að aftan er tvöföld 12MP + 20MP og 20MP að framan. iHealth hitamælir Hvað er það fyrsta sem þú hugsar um þegar kemur að haustinu? – Rigning, kvef og hiti. Það eiga allir gamlan hitamæli heima en af hverju hafa hitamælar lítið sem ekkert þróast síðustu ár? iHealth -hitamælirinn er svo sannarlega rétt þróun á hitamælum og ætti að vera staðalbúnaður á öllum heimilum. Það sem einkennir þennan hitamæli er ekki bara fallegt útlit heldur er hann einnig snerti- laus. Þetta þýðir að þú þarft einungis að beina hitamæl- inum að manneskju úr 3 sentimetra fjarlægð og hitamælirinn skilar þér niðurstöðum á innan við 1 sekúndu. Þar sem hann er snertilaus þarftu ekki að hafa jafn miklar áhyggj- ur af því að þrífa hann eftir hverja einustu mælingu eins og með aðra hitamæla. Flestir símarnir frá Mi Iceland ásamt fleiri vörum (Mi Band 3, Mi Scale 2, Mi Bluetooth speaker, ferða- hleðslur og aukahlutir) eru komin í sölu hjá símafyrir- tækinu Hringdu ásamt því að vera til sölu í vefverslun Mi Iceland á mii.is. Mi Iceland sendir hvert á land sem er og er enginn sendingarkostnaður. Sjá nánar á vefsíðunni mii.is. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.