Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Page 46
Góð kaup 9. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ
Iris Gústafsdóttir hefur verið að klippa hár í hartnær 40 ár og má með sanni segja að hún sé
reynslubolti þegar kemur að hári.
Sveinsprófið í hársnyrtimeistaranum
tók hún vorið 1980 og hefur ekki lagt
skærin frá sér síðan þá. „Ég hef klippt
heilu fjölskyldurnar og fastakúnnarnir
mínir eru afar tryggir. Það skipt-
ir mestu máli að viðskiptavinurinn
sé ánægður og að hann fái klipp-
ingu sem hentar honum. Sumir vilja
tískuklippingu, aðrir vilja ekki þurfa að
hafa of mikið fyrir hárinu,“ segir Iris
Gústafsdóttir sem framkvæmir allar
óskir viðskiptavinarins af stökustu list.
Fjölbreyttar vörur fyrir alls konar
hár
Iris er með frábært úrval af hárvör-
um á stofunni. „Ég vil vera með gott
úrval af góðum vörum og hef verið
að skipta við ýmsa aðila. Núna er ég í
viðskiptum við þrjá aðila sem fram-
leiða mjög góðar vörur á góðu verði.
Ein uppáhaldsvaran mín í dag er
OZHU-hárfroða, Lift o mat 04, sem
gerir hárið alveg svakalega þykkt og
fallegt. Í sítt hár er ég svo með frá-
bæra vöru sem ég kalla flækjusprey
og er frá Milkshake. Þetta er hálfgert
kremsprey eða hárnæring sem þú
skilur eftir í hárinu (leave in) og með
vörunni verður ekkert mál að greiða í
gegnum þykkasta hárflóka,“ segir Iris.
Facebook-leikur: Mythic Oil
„Einmitt núna erum við með leik í
gangi á Facebook-síðunni okkar. Við
erum að gefa rosalega fína olíu í hár-
ið. Olían heitir Mythic Oil og er með
mjög fíngerðu glimmeri sem gefur
fallegan gljáa á hárið. Olían hentar
vel fyrir þurrt, sítt hár. Það er um að
gera að kíkja á síðuna okkar og taka
þátt í leiknum,“ segir Iris.
Barnvæn stofa
Iris er snillingur í öllu sem viðkem-
ur hári og gerir allt frá því að særa
hárenda, lita, eða setja hár í lagningu.
„Mér finnst mikilvægt að þjónusta all-
ar gerðir af viðskiptavinum. Ég klippi
konur og karla á öllum aldri og svo
börn, en ég setti upp barnahorn með
leikföngum þannig að það er ekkert
mál fyrir foreldra með ung börn að
koma til mín og láta klippa sig. Þau
leika sér bara á meðan,“ segir Iris.
Notalegt andrúmsloft og vinaleg
þjónusta
Iris hefur verið með hársnyrtistofu
á Seltjarnarnesi í þrettán ár og enn
fremur búið þar í 50 ár. Margir í
kúnnahópi hennar eru af Nesinu en
þónokkrir koma lengra að enda er
andrúmsloftið á Salon Nes alltaf
jafn notalegt. „Ég byrjaði fyrst með
sjálfstæða stofu, Hársnyrtistofu
Irisar, í Hafnarstræti fyrir 30 árum.
Salon Nes keypti ég svo með vinkonu
minni árið 2005 eða fyrir 13 árum.
Það fylgdu mér margir viðskiptavinir
á nýju stofuna sem var þá staðsett
á Austurströnd 1 á Seltjarnarnesi.
Margir eru fastakúnnar mínir enn í
dag þar sem ég rek nú sjálf Salon
Nes á Austurströnd 12. Að auki hafa
margir nýir bæst í hópinn og koma til
mín reglulega,“ segir Iris. „Ég kýs að
hafa svolítið heimilislegt hér á stof-
unni minni. Bæði vegna þess að ég er
hér allan daginn, en líka fyrir við-
skiptavininn. Margir hafa líka haft orð
á því hvað það sé notalegt að koma
til mín í klippingu,“ segir Iris.
Nánari upplýsingar má nálgast á
Facebook-síðunni, Salon Nes Hár-
snyrtistofa og www.salonnes.is
Austurströnd 12, 170 Seltjarnarnes
Sími: 562-6065
Netpóstur: iris@salonnes.is
Opið er alla virka daga frá 9–17 n
IRIS HEFUR KLIPPT HÁR Í FJÖRTÍU ÁR SALON NES:
Heimilislegt andrúmsloft
Iris með dóttur sinni sem ætlar að
verða hárgreiðslumeistari eins og
mamma sín
Ljósmynd frá Hársnyrtistofu
Írisar í Hafnarstræti