Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Síða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Síða 47
Góð kaup 9. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ Ethic er íslensk verslun sem leggur áherslu á umhverfis-vænar vörur framleiddar á siðferðislega réttan hátt. Upphaflega hófst þetta ástríðufulla áhugamál hjá hjónunum Matthíasi Haraldssyni og Hafrúnu Ósk Pálsdóttur sem net- verslunin www.ethic.is áður en opnuð var glæný verslun á Suðurlandsbraut 4A. Verslunin er opin alla virka daga frá 12 til 18 og er opið annað slagið um helgar, en þá er það sérstaklega auglýst. Samkvæmt eigendunum er markmið verslunarinnar að bjóða Íslendingum fatnað og skó sem framleiddir eru með umhverfisvernd, siðferði og FairTrade að leiðarljósi á sambærilegu verði og gengur og gerist í Skandinavíu og Evrópu. Fataiðnaðurinn er einn mest meng- andi iðnaður í heiminum í dag en þeir framleiðendur sem Ethic er í sam- vinnu við nota eingöngu umhverfis- væn efni við sína framleiðslu, borga sanngjörn laun og tryggja góðar vinnuaðstæður fyrir starfsfólk svo fátt eitt sé nefnt. „Við veljum framleiðendur sem eru með umhverfisvæna framleiðslu og vinna eftir FairTrade-hugsjón- inni,“ segir Matthías. Við erum með hágæðaskó frá sænska merkinu Kavat sem hafa reynst ótrúlega vel við ís- lenskar aðstæður en Kavat hefur verið í skóframleiðslu síðan 1945 og notið mikilla vinsælda í Skandinavíu. Nú er farið að kólna í veðri og Kavat er með frábær kuldastígvél og kuldaskó á börnin ásamt flottum vatnsheldum leðurskóm fyrir börn og fullorðna.“ Verslunin sérhæfir sig einnig í barnafötum frá Mini Rodini, kvenfatn- aði frá People Tree, Frieda Sand, Jan ’N June og fleiri framleiðendum sem eiga það sameiginlegt að vinna eftir FairTrade-hugsjóninni, sem gengur út á sjálfbærni og er með umhverfis- vernd að sjónarmiði. Þau hjónin bæta við að þau planti tré fyrir hverja selda vöru og sé það gert til þess að jafna kolefnissporin sem myndast við flutning á vörum til viðskiptavina. „Fyrir árið 2017 plönt- uðum við þúsund plöntum ekki langt frá Egilsstöðum,“ segir hann og tekur fram að spennandi verði að fylgjast með þeim fjölda trjáa sem verður plantað fyrir sölu þessa árs. n Siðferði og umhverfisvernd í fyrirrúmi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.