Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Síða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Síða 49
FÓLK - VIÐTAL 499. nóvember 2018 „Eftir öll skiptin sem Georg meiddi mig þá bað hann mig af- sökunar og virtist líða illa yfir þessu. Eins og hann hefði verið á einhvers konar „fylleríi“ og fengið útrás fyrir eitthvað. Ég sagði hon- um þá að þetta væri allt í lagi og hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur af þessu. En síðan endurtók þetta sig. Hann sagði mér líka að ef ég segði mömmu eða einhverjum öðrum frá þessu myndi hún fara til helvítis. Hann var mjög klárt kvikindi,“ segir Valgarður og brosir hæðnislega. Margrét Müller beitti nemend- ur í Landakotsskóla kynferðisof- beldi líkt og Georg. Valgarður seg- ir að hún hefði aðeins beitt hann líkamlegu ofbeldi, slegið hann og rifið í hár. Átta ára gamall byrjaði Valgarð- ur að æfa ballett og tveimur árum síðar karate og íslenska glímu. Um þetta leyti var hann að átta sig á því að meðferð Georgs væri ekki í lagi og hann þyrfti að losna undan að- stæðunum. „Ég hætti að kenna sjálfum mér um og sá að þetta var sjúkt. Ég var einsamall, fastur í helvíti og komst ekki út. Gat hvorki hætt í skólanum né sagt neinum frá þessu. Heldur ekki hringt í barnavernd, vissi ekki einu sinni að hún væri til. Þegar ég var á síðasta árinu mínu í skól- anum notaði ég það sem ég hafði lært í karate og lamdi Georg. Hann fór í gólfið inni á skrifstofunni og þá urðu ákveðin vatnaskil. Þá sá Georg að hann var búinn að missa mig og hætti að boða mig á skrif- stofuna. Væntanlega tekið ein- hvern annan í staðinn.“ Valgarður fékk refsingu fyrir uppreisn sína. Allan tólf ára bekk- inn var hann látinn dúsa í skam- markróknum í enda stofunnar. Í stærðfræði, sem Georg kenndi, var Valgarður oft tekin upp að töflu og niðurlægður fyrir framan bekkinn. „Georg horfði alltaf á mig með sorgarsvip eftir þetta, en ég upp- lifði frelsi. Mér var alveg sama þó að ég þyrfti að sitja í þessum skam- markrók og væri tekinn fyrir í tím- um. Ég var svo feginn að vera laus.“ Séra Georg lést sumarið 2008 og skömmu síðar fleygði Margrét Müller sér út um glugga turns- ins í Landakoti. Þremur árum síðar komu glæpir þeirra upp á yfirborðið og nemendur lýstu op- inberlega því skelfilega ofbeldi sem þeir höfðu sætt. Það var á þessum tíma sem Valgarður komst í fréttirnar fyrir reiðikast sem hann tók þar sem hann braut 21 rúðu skólans. Tólf ára fíkill Um það leyti sem Valgarður var að klára Landakotsskóla var hann í stífum ballett- og karateæfingum, fimm sinnum í viku. En hann var mikið verkjaður, bæði í olnbog- um og hnjám. Hann sagði móð- ur sinni frá verkjunum og hún lét hann hafa lyf við þeim, sem hún átti nóg til af. Voru það verkja- lyf á borð við Dolvipar, Parkódín og vægari morfínskyld lyf. Fann hann strax fyrir því að lyfin slógu á verkina og honum leið mun bet- ur. „Þá fór ég á fullt í að misnota þessi lyf. Ég tók inn lyf og um leið og áhrifin dvínuðu útvegaði ég mér meira. Ég stal frá mömmu. Stal á öllum stöðum sem ég kom, ömmu, afa, frændfólki. Ég var í gagnfræðaskóla en orðinn algjör- lega háður þessum lyfjum. Ef þú ert háður morfínlyfjum verður þú veikur ef þú tekur þau ekki. Þessi lyf voru til á velflestum heimilum og ég vissi hvert ég átti að fara, í eldhúsin, svefnherbergin og bað- herbergin. Fjórtán og fimmtán ára var ég farinn að brjótast inn. Ég fann opnar svaladyr og fór inn en passaði mig á að taka ekki of mikið og aðeins lyfin, því þá gat ég komið aftur seinna. Ef ég fann ekkert, gat ég keypt hjá tveimur fíkniefnasölum sem ég kynntist.“ Kunni að halda kjafti Í gegnum þessa fíkniefnasala kynntist Valgarður fíkniefnaheim- inum. Hann segir að þessi heim- ur hafi verið allt annar en í dag. Flestir notuðu hass og amfetamín en fáir morfínlyf. Morfínfíklar voru yfirleitt fólk sem hafði próf- að allt og var komið á vissa enda- stöð í neyslunni. Það má því segja að Valgarður hafi byrjað á öfugum enda í sinni neyslu. Varstu að drekka líka? „Nei, ekki fyrr en ég var orðinn sautján ára. Þá var ég á löggustöð- inni nánast í hverri viku, alltaf í slagsmálum og látum. Þegar mað- ur drekkur ofan í þessi lyf verð- ur maður alveg snarruglaður. Fer í „blackout“ og gerir alls kyns vit- leysu. Ræðst á annað fólk, brýst inn á heimili og gerir óskunda. Maður verður alveg stjórnlaus.“ Gastu haldið þér gangandi, í námi og slíku, þótt þú værir alltaf í vímu? „Já, einhvern veginn. Ég fór í MR og út á við var líf mitt ósköp venjulegt. Ég náði að halda þessu leyndu, lærði að ljúga, stela, spila með fólk og fá mínu framgengt. Fjölskylda mín vissi ekkert af þessu þegar ég var svona ungur. Ég hafði lært hvernig ætti að halda kjafti hjá séra Georg, eitt af því fyrsta sem hann kenndi mér var að geyma leyndarmál. Með tímanum átti ég minni og minni samleið með öðrum unglingum og einangr- aðist. Ef ég var í hópi sem var til dæmis að spila tölvuleiki, á Commodore eða Sinclair, gat ég ekki samsamað mig. Þeir voru í annarri vídd en ég. Ég var farinn að finnast ég vera tveir menn. Oft velti ég því fyrir mér hvor ég væri, góði mömmustrákurinn og menntaskólagæinn eða lyginn, þjófóttur fíkill.“ Valgarður var ungur og fékk væga meðhöndlun hjá lög- reglunni. Aldrei sat hann meira en yfir eina nótt í fangelsi. Hann fékk engar ákærur og enga dóma. En hann fékk heldur aldrei nein boð um hjálp við sínum vanda, heldur var beðið eftir að hann kæmi aftur. Hann kláraði stúd- entsprófið „mökkruglaður“ „Ég vissi ekkert hvað hann var að gera þegar hann stakk typpinu ofan í kok- ið á mér Ungur morfínfíkill Faldi og fjármagnaði neysluna með lygum og þjófnaði. Síðumúla 30 - Reykjavík Hofsbót 4 - Akureyri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.