Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Qupperneq 62
62 FÓLK - VIÐTAL 9. nóvember 2018
það, hvernig þú heldur þeim rétt-
um megin, hvort þú viljir hafa þau
nálægt þér eða hvort þú viljir loka
þau af. Þetta er ógeðslega erfitt.“
Sibba er hins vegar ekki eina
konan sem þekkir heim fíkniefna
og ofbeldis á Íslandi. Þóra Björg
Sigríðardóttir er önnur kona sem
rætt var við fyrir gerð myndarinn-
ar, og er í Lof mér að lifa. Hún var
fyrirmynd Stellu þegar hún var
yngri.
Stella eldri og Magnea eldri
eru svo báðar byggðar á Kristínu
Gerði, en saga Kristínar Gerðar er
náttúrlega aðalástæðan fyrir því að
myndin varð til. Þannig var mál-
ið að Kristín Gerður var í mikilli
neyslu og vændi. Hún á hryllilega
ljóta sögu að baki. En þegar hún
var komin á þrítugsaldurinn náði
hún að verða edrú. Á næstu árum
var hún með forvarnarfræðslu fyr-
ir krakka um hættur fíkniefna-
heimsins. Draugar og djöflar úr
fortíðinni vildu ekki sleppa henni
og á endanum yfirbuguðu þeir
hana. Og Kristín framdi sjálfsvíg
aðeins 31 árs að aldri.
Allar lentu í kynferðisofbeldi
Það að heyra allar þessar grófu
sögur frá dagbókum Kristínar
Gerðar, sögur frá Þóru Björgu og
fleirum, tók svo sannarlega á. „Ég
fann það ekki fyrr en við kláruðum
myndina hvað ég var búinn á því.
Ég get ekki meira í bili, sem er svo
eigingjarnt því ég er ekki sjálfur að
lenda í neinu, ég er bara að heyra
sögur annarra. Hvað með þær sem
upplifa þetta?“
Á meðan myndin var í vinnslu
segir Baldvin að hann hafi náð að
stilla sig af og komið fagmannlega
að verkinu. „Þetta er bara vinna
eins og hver önnur. En núna ný-
lega þá keyrði ég á vegg. Ég er
búinn að innbyrða allar þessar
sögur, allar þessar áhyggjur, bú-
inn að vera með þessum stelpum í
mörg ár og hef átt í alls konar sam-
skiptum við þær daga og nætur.“
Baldvin segir að frumsýn-
ingin hafi verið sérstaklega erf-
ið. „Þóra Björg kom útúrdópuð á
sýninguna. Hún segir að hún hefði
ekki getað séð myndina öðruvísi.
Þessar stelpur eru svo illa farnar,
þær eru svo skemmdar. Það þarf
gríðarlega mikið til að púsla þeim
aftur saman, þetta er hreinlega
ömurlegt.“
Lentu allar konurnar sem þú
talaðir við í grófu kynferðisof-
beldi?
„Já. Engin undantekning.“
Rændi 800 þúsundum af perra
á síðasta ári
Viðmælendur Baldvins bera ekki
vott af virðingu fyrir mönnum sem
vilja nýta sér neyð kvennanna.
„Ein stelpan sem ég ræddi við, var
duglegust í að ræna perra sem ætl-
uðu að kaupa af henni vændi og
þénaði 800.000 krónur á því á síð-
asta ári. Hún sagði að þetta væru
bara ljótir kallar og þess vegna
skiptu þeir hana engu. Viðmæl-
endur mínir myndu aldrei ræna
góða menn, bara vonda menn.
En stelpan sem var duglegust í
þessu lenti í því að mynd af henni
var prentuð út og send á milli ein-
hverra perra til að vara við henni
því hún væri að svíkja. Hún lenti
líka einu sinni í því að fara heim til
manns sem þekkti foreldra henn-
ar. Hann reyndi náttúrlega að ljúga
sig út úr því og segja að hann hafi
vitað að hún væri í þessu og fengið
hana til sín til að hjálpa foreldrum
hennar að bjarga henni.“
Miðað við það sem hefur þegar
komið fram þá hljómar Lof mér
að falla ekki eins og mynd ætluð
börnum. Þann 6. október gagn-
rýndi Rótin, félag um málefni
kvenna með áfengis- og fíkni-
vanda, í færslu á heimasíðu fé-
lagsins, að grunnskólar færu í
skipulagðar ferðir með börn á sýn-
ingu. Myndin er bönnuð innan
fjórtán ára og ef um var að ræða
yngri bekki var beðið um leyfi for-
eldra.
Magnea hrynur andlega í
partíinu
„Þegar Silja deyr í partíinu hefði
Magnea getað valið tvær leiðir. Í
byrjun myndarinnar er Magnea
nú þegar komin í neyslu en dauði
Silju var klófestingin. Hún hefði
getað orðið edrú því hún vildi ekki
enda eins og Silja, eða algjörlega
hrunið andlega. Hún endaði á að
fara seinni leiðina.
Það var hluti í sögunni sem
endaði ekki í myndinni, þar sem
Magnea nær að rétta úr kútnum
eftir dauða Silju. Hún stenst prófin
í skólanum, slítur sig frá Stellu, ger-
ir málin upp við Helgu, gamla vin-
konu sína. Síðan hittir hún Stellu
aftur og dópið er auðvitað alveg
jafn heillandi. En við ákváðum að
sleppa því að hafa þennan kafla
inni, því okkur fannst sterkara að
sjá Silju deyja og Magnea slepp-
ir sér bara. Þetta hafði þau áhrif á
hana.“
Við sjáum Magneu sprauta sig
í fyrsta sinn í myndinni. „Ég vildi
búa til fallegasta og besta augna-
blikið í lífi hennar. Stelpurnar
sem ég talaði við lýstu þessu all-
ar þannig, þessari alsælu. Þetta er
geðveikt. Mér fannst allt í lagi að
sýna hversu frábært henni fannst
þetta því það var þegar komið fram
í myndinni hvert Magnea var að
fara í lífinu. Það átti alltaf að vera
þessi undirliggjandi óþæginda-
tilfinning þegar það var gaman
hjá Magneu og Stellu. Áhorfendur
áttu að vita að þetta ætti eftir að
enda illa. Ég vil að fólk hugsi að
næst þegar það prófar að sprauta
sig með kontalgeni eða rítalíni, að
eftir tuttugu ár verði það heima
hjá einhverjum náunga sem er að
berja það og nauðga því.“
„Ef þið spilið Í bljúgri bæn í
jarðarförinni minni þá geng ég
út“
Þótt Baldvin leikstýrði myndinni
á blaði segist hann vera nokk-
uð viss um að Kristín Gerður hafi
stjórnað ýmsu. „Kristín er það
sterkur persónuleiki að hún er að
breyta Íslandi tuttugu árum eftir
að hún deyr. Við sem lásum dag-
bækur Kristínar kynntumst henni
rosalega vel. Hún var ótrúlega
klár og góður penni. Þess vegna
tengdumst við henni svo sterkt,
maður fann ótrúlega vel fyrir
henni.“
Sem dæmi má nefna þegar ver-
ið var að velja eitthvert kristilegt lag
sem Ólafur Arnalds átti að syngja
í meðferðinni sem Magnea fór í.
„Okkur vantaði eitthvert Jesúlag
og ákváðum að nota lagið Í bljúgri
bæn. Síðan kemur systir Kristínar
að horfa á myndina og spyr af
hverju þetta lag sé í myndinni. Þá
kemur í ljós að Kristín þoldi ekki
þetta lag. Hún hafði sagt: „Ef þið
spilið Í bljúgri bæn í jarðarförinni
minni þá geng ég út.“ Þess vegna
var þetta lag fullkomið.“
Baldvin segir að þetta sé eitt
af mörgum dæmum um hvernig
ýmislegt datt inn í myndina sem
passaði fullkomlega við Kristínu
án þess að það hafi verið ætl-
unin upphaflega. „Kristín Júlla,
sminkan í myndinni, sagði mér
upphaflega frá Kristínu. Hún kom
með svo mikla nærveru frá Krist-
ínu á settið. Það voru mörg smá-
atriði sem hún kom með inn í
verkefnið, sem við hefðum aldrei
fattað að bæta við.“
Hissa á að Íslendingar gefi
börnum sínum lyf
Lof mér að falla var sýnd á World
Cinema-hluta Busan, sem er
stærsta kvikmyndahátíð Asíu.
„Það er allt önnur menning þar og
þess vegna fengum við allt öðru-
vísi spurningar. Það er mjög lítill
eiturlyfjavandi í Suður-Kóreu og
þau skilja ekkert hvað er í gangi á
Íslandi. Þau eru líka svolítið hissa
á að við séum að gefa börnunum
okkar lyf. Það er mjög áhugavert
að fá allt annað sjónarhorn á þessa
mynd.
Til dæmis var frekar spurt af
hverju Stella verður edrú þegar
hún á enga fjölskyldu en Magnea
heldur áfram í neyslu. Hvort það
sé verið að segja eitthvað með því.
Þau voru alltaf að reyna að ráða í
hvað ég væri að segja við áhorf-
endur.“
Baldvin segir að það sé frekar
hlutverk áhorfandans að túlka
bíómyndina og finna meiningar
og tilgang á bak við hana. Leik-
stjórinn er bara málpípa sagn-
anna. „Það er ekki svona mikið af
pælingum á bak við hlutina. Ég hef
bara gaman af því að segja sögur
og knýjandi þörf til að búa til gott
bíó. Flóknara er það ekki.“ n
Sólrún Freyja Sen skrifaði
Betri
Svefn
„Ef þið spil
ið Í bljúgri
bæn í jarðar
förinni minni þá
geng ég út
Sigurbjörg í viðtali í Lof mér að lifa.