Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Page 66
66 9. nóvember 2018TÍMAVÉLIN
Afgreiðum HÁDEGISMAT Í BÖKKUM
alla daga ársins til fyrirtækja og stofnana
GÆÐA BAKKAMATUR
Mismunandi réttir
ALLA DAGA VIKUNNAR
Hólshraun 3, 220 Hafnarfjörður / S 555 18 10 og 565 1810 / veislulist@veislulist.is / veislulist.is
HRINGDU OG PANTAÐU Í SÍMA 555 1810
E
f eldur kom upp í íbúðar-
húsum í upphafi síðustu
aldar voru um tíu prósent
líkur á að heimilisfólkið
myndi bíða bana. Hundrað árum
síðar hefur tölfræðin sem bet-
ur fer breyst mikið og nú eru lík-
urnar á að fólk látist í eldsvoða í
íbúðarhúsum eitt prósent. Þess-
ar tölur eiga við í Bandaríkjunum
og Bretlandi og eru væntanlega
á svipuðu róli hér á landi. Ekki
þarf að efast um að ein helsta or-
sök þessarar stórbættu tölfræði
sé tilkoma reykskynjarans. Reyk-
skynjarar eru ódýrt og einfalt
tæki sem getur bjargað manns-
lífum.
Þeir komu fyrst fram á sjón-
arsviðið undir lok nítjándu ald-
ar. George Andrew Darby fékk
einkaleyfi á fyrsta reykskynjar-
anum árið 1902 í Birmingham
á Englandi. Tuttugu árum síð-
ar var svissneski eðlisfræðingur
Walter Jaeger að reyna að búa til
gasskynjara en það gekk illa. Dag
einn sat hann við skrifborðið sitt
og kveikti sér í sígarettu. Honum
til mikillar undrunar sá hann
að „gasskynjarinn“ hans brást
við reyknum frá sígarettunni.
Þetta vakti áhuga hans og hann
hóf þróun reykskynjara og lagði
grunninn að reykskynjurum eins
og við þekkjum þá í dag.
Samlandi hans, eðlis-
fræðingurinn Ernst Meli, þróaði
árið 1939 tæki sem gat skynjað
gas í námum. Hann fann einnig
upp kalt-bakskaut sem gat magn-
að rafboðin, sem skynjarinn bjó
til, svo mikið að þau náðu eyrum
fólks. Þar með var jónaskynjandi
reykskynjarinn kominn fram á
sjónarsviðið. Þessi tegund reyk-
skynjara var mjög dýr og á fárra
færi að kaupa hana. Þegar hún
kom á markað í Bandaríkunum
í upphafi sjötta áratugarins var
notkunin bundin við iðnaðar- og
verslunarhúsnæði.
Duane Pearsall er talinn vera
„faðir reykskynjarans“ en hann
og kollegi hans, Stanley Bennett
Peterson, þróuðu fyrsta reykja-
skynjarann sem var ætlaður til
notkunar á heimilum. Hann
nefndist SmokeGard 700 og var
úr eldþolnu stáli og eins og bý-
kúpa í laginu. Skyjarinn notaði
rafhlöðu og var því fjárhagslega
hagkvæmur.
En reykskynjarar voru enn
dýrir og ekki á allra færi að eign-
ast þessi nauðsynjatæki en með
frekari þróun og samkeppni í
framleiðslu þeirra urðu þeir sí-
fellt ódýrari og á flestra færi að
kaupa þá. Salan jókst sífellt enda
var farið að hamra á því að reyk-
skynjarar björguðu mannslífum
og hlutfall heimila, þar sem reyk-
skynjarar voru, jókst sífellt. Í dag
er talið að reykskynjarar séu á 96
prósentum bandarískra heimila
og 85 prósentum breskra heim-
ila. En það sorglega í þessu öllu
saman er að talið er að um 30
prósent þessara reykskynjara
virki ekki. Þeir eru of gamlir,
engar rafhlöður í þeim eða að
eigendurnir hafi ekki skipt um
rafhlöður þegar þörf krefur. n
REYKSKYNJARAR GETA
BJARGAÐ MANNSLÍFUM
n Hver er saga þeirra?
Reykskynjari
Þarfaþing á
hverju heimili.
Duane Pearsall Faðir reykskynjarans.
S
máríkið Liechtenstein er
ekki beint þekkt sem mik-
ið hernaðarveldi enda er
íbúafjöldinn svipaður og í
Kópavogi. Hertogadæmið hefur
þó fengið sinn skerf af innrásum
og yfirtöku líkt og flest Evrópuríki í
gegnum aldirnar. Til dæmis þegar
Napóleon Frakklandskeisari lagði
það undir sig í upphafi nítjándu
aldar í tilraun sinni til að verða al-
heimseinvaldur.
Landið er Alparíki, klesst á milli
Sviss og Austurríkis. Það hefur því
ekki beint verið í eldlínunni síð-
an á dögum Napóleons. Dátar frá
Liechtenstein lentu síðast í átök-
um árið 1866 í hinu svokallaða
Sjö vikna stríði á milli Austurríkis-
manna og Prússa. Þá var landið
hluti af laustengdu bandalagi
þýskra ríkja.
Sum þýsk smáríki studdu
Austur ríkismenn en önnur Prússa
í stríðinu. Auk þess studdu Ítalir,
undir stjórn herforingjans Gari-
baldi, þá síðarnefndu. Jóhann
II prins af Liechtenstein tók þá
ákvörðun að styðja Austurríkis-
menn og sendi voldugan 80 manna
her til að berjast fyrir keisarann.
Jóhann gat hins vegar ekki hugs-
að sér það að dátar hans berðust
við aðra Þjóðverja. Því var stuðn-
ingur Liechtenstein bundinn því
að dátarnir berðust einungis við
Ítali. Tóku þeir sér stöðu við landa-
mæri Liechtenstein og Austurríkis,
á svæði sem nefnist Stilfse Joch.
Hermenn Jóhanns prins stóðu
vörð í sjö vikur en aldrei kom her
Garibaldi. Þann 22. júlí lauk stríð-
inu með afgerandi sigri Prússa.
Engu að síður marseruðu her-
menn Liechtenstein inn í höfuð-
staðinn Vaduz við mikinn fögnuð
bæjarbúa. Það sem var undarlegast
við þetta var að 81 sneri til baka og
hafði dátunum þá fjölgað um einn.
Skýringin var sú að ítalskur mað-
ur hafði gengið í herdeildina og fór
með henni til Vaduz.
Tveimur árum síðar var banda-
lag þýsku ríkjanna leyst upp og
her Liechtenstein sömuleiðis. Jó-
hann lýsti yfir ævarandi hlut-
leysi landsins en tryggði jafnframt
áframhaldandi tengsl við Austur-
ríki. Hlutleysi Liechtenstein hefur
haldið allar götur síðan og slapp
landið við innrásir í báðum heims-
styrjöldum. n
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
80 FÓRU Í STRÍÐ
EN 81 SNERI HEIM
n Her Liechtenstein mætti lítilli andstöðu
1866 Blóðugt stríð milli Austurríkis-
manna og Prússa.
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is