Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 10
10 8. júní 2018FRÉTTIR
→ Inni- og útimerkingar
→ Sandblástursfilmur
→ Striga- og
ljósmyndaprentun
→ Bílamerkingar
→ Gluggamerkingar
→ Prentun á símahulstur
→ Frágangur
... og margt fleira
Skoðaðu þjónustu
okkar á Xprent.is
SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS
Ó
sjúkratryggðir einstaklingar,
sem í flestum tilvikum eru
erlendir ferðamenn, skulda
Landspítala Íslands rúm-
lega 500 milljónir króna vegna
heilbrigðisþjónustu sem spítalinn
hefur veitt þeim. Í sumum tilvik-
um eru þessir einstaklingar ekki
borgunarmenn fyrir þjónustunni
því alls hefur Landspítalinn af-
skrifað um 218 milljónir króna frá
árinu 2012 vegna slíkra einstak-
linga. Þetta kemur fram í svari
Landspítalans við fyrirspurn DV.
Það sem af er árinu hafa 1.068
ósjúkratryggðir einstaklingar þurft
að leita sér hjálpar hjá Landspítal-
anum. Það er á svipuðum slóðum
og á sama tíma árið 2017, en þá
slösuðust yfir 3.000 manns yfir allt
árið, flestir yfir sumarmánuðina.
Gefið út reikninga fyrir milljarð
Á þessu tímabili hefur Landspít-
alinn gefið út reikninga á ósjúkra-
tryggða einstaklinga sem nema
tæpum einum milljarði króna.
Nánar tiltekið er tímabilið sem um
ræðir fyrstu þrír mánuðir ársins
2018, þar sem reikningar fyrir 206
milljónir króna voru gefnir út og
allt árið 2017 þar sem reikningar
fyrir 770 milljónir króna voru
gefnir út.
Þessir ósjúkratryggðu einstak-
lingar, sem í flestum tilvikum
eru erlendir ferðamenn, en geta
einnig verið hælisleitendur og er-
lendir starfsmenn sem taka að
sér tímabundna vinnu hérlendis,
borga aðeins hærra verð en venju-
legir sjúkratryggðir Íslendingar.
Landspítalinn notar svokallaða
DRG-verðskrá til þess að reikna
út verð á þjónustu sinni. Í skrif-
legu svari frá Landspítalanum
kemur fram að „DRG-verðskrá-
in byggist á starfsemis- og kostn-
aðargreiningu á allri þjónustu
spítalans með notkun alþjóð-
legs starfsemisflokkunarkerfis og
kostnaðarkerfis Landspítalans
sem færir nær allan rekstrarkostn-
að spítalans niður á einstakar leg-
ur og komur.“
Verðskráin byggist því á meðal-
kostnaðarverði þjónustunnar sem
veitt er. Verðskrá fyrir ósjúkra-
tryggða gerir ráð fyrir ýmsum við-
bótarkostnaði sem undanskilinn
er í fyrrnefnda kostnaðarkerf-
inu. Til dæmis má nefna bein-
an kennslukostnað spítalans sem
og vísindakostnað, fjárfestingar-
framlag og meiriháttar viðhald.
Í svari Landspítalans kem-
ur fram að erlendir sjúklingar
þurfi iðulega meiri þjónustu en
íslenskir sjúklingar. Til dæm-
is vegna túlkaþjónustu, þýðingu
gagna, öflunar heilbrigðisupplýs-
inga frá heimalandinu, aðstoðar
við aðstandendur og samskipta
við tryggingafélög svo eitthvað sé
nefnt. Landspítalinn innheimtir
ekki sérstakt gjald vegna þessarar
viðbótarþjónustu.
Umskurður kostar 680 þúsund
krónur
DV óskaði eftir upplýsingum
um þá upphæð sem Landspít-
alinn hefur neyðst til þess að af-
skrifa undanfarin ár. Í svari spítal-
ans kemur fram að frá árinu 2012
hefur stofnunin afskrifað rúm-
lega 218 milljónir króna. Mest
árið 2015 þegar reikningar á 178
einstaklinga að heildarupphæð
57,3 milljónir króna voru afskrif-
aðir. Rétt er að geta þess að langan
tíma getur tekið að innheimta
slíka reikninga að utan og því eru
kröfurnar misgamlar þegar þær
eru afskrifaðar. Þannig ná afskrift-
ir ársins 2014 til krafna sem gefn-
ar voru út árið 2005, svo dæmi sé
tekið.
Á vef Landspítalans er hægt að
kynna sér verðskrá spítalans fyr-
ir ósjúkratryggða einstaklinga.
Meðal annars myndu hjartaskipti
kosta um 9,9 milljónir króna en
rétt er að taka fram að þá er hjart-
að ekki innifalið. Þá kostar um
eina milljón króna að fá aðstoð
vegna hjartaáfalls og umfangs-
mikil aðgerð á auga kostar 1,1
milljón króna. Verðmiðinn á með-
ferð vegna heilahristings hljóðar
upp á um 960 þúsund krónur en
meðferð vegna alvarlegra heila-
skemmda kostar 1,3 milljónir
króna. Ef svo ólíklega vill til að er-
lendir ferðamenn ákveði skyndi-
lega að láta umskera sig þá er
verðið á slíkri aðgerð 680 þúsund
krónur. n
Erlendir ferðamenn skulda
spítalanum hálfan milljarð
n Hafa afskrifað 218 milljónir síðan 2012 n Hjartaskipti kosta tæpar níu milljónir króna
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is