Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 14
14 8. júní 2018FRÉTTIR
Lög og reglur þverbrotnar
í stjórnsýslunni í Kópavogi
V
eitingastaðurinn Video
markaðurinn, sem er
einnig einn stærsti spila
kassasalur landsins,
hefur haft vínveitingaleyfi frá ár
inu 2008. Ekki er úrvalið mikið
á þessum veitingastað og einu
veitingarnar sem staðurinn býður
upp á eru pylsur, en úrvalið af sós
um er þó ágætt. Því miður er ekki
lengur hægt að leigja vídeóspólur
hjá þeim, þótt að nafnið á staðn
um gefi það til kynna, en þar er þó
mikið úrval af rafrettum í boði. Þó
svo að staðurinn falli ekki undir
skilgreiningu laga um veitinga
staði og hafi aldrei gert síðan 2008
fá hann aftur og aftur endurnýj
að vínveitingarleyfi sitt. Þó svo að
staðurinn sé einn stærsti spila
kassasalur landsins með um 9%
af öllum spilakössum landsins er
hann ekki skilgreindur sem spila
salur, heldur sem veitingastað
ur. DV hefur gögn undir höndum
sem sýna hvernig byggingarfull
trúar Kópavogs og fulltrúar heil
brigðiseftirlits Hafnarfjarðar og
Kópavogs hafa síðan 2008 ekki
farið að lögum og reglum í um
sögnum sínum til sýslumanns
vegna útgáfu vínveitingaleyfis. Er
það lagaleg skylda þessara stofn
ana að gefa réttar upplýsingar til
sýslumanns ásamt því að heil
brigðiseftirlitið hefur skilgrein
ingarskyldu varðandi starfsem
ina. DV hefur áður fjallað um
vínveitingaleyfi Videomarkaðar
ins. Þar kom fram að fyrirtækið
hafi bæði selt ungmennum und
ir aldri áfengi ásamt því að bjóða
viðskiptavinum sínum að drekka
á staðnum eða taka með út af
staðnum. Samkvæmt áfengislög
um er óheimilt að taka áfengi út
af vínveitingastað.
Heilbrigðiseftirlitið misskilur
lögin sem þeir eiga að fram-
fylgja
Þegar gögn málsins eru skoðuð
þá er gífurlega erfitt að sjá hvern
ig fulltrúa heilbrigðiseftirlitsins
tókst að skilgreina Videomark
aðinn sem veitingastað þar sem
ekkert eldhús er á staðnum eða
sæti fyrir gesti samkvæmt teikn
ingum, séu sætin fyrir framan
spilakassana undanskilin, en afar
erfitt er að sitja með disk og hnífa
pör í þeim sætum.
DV hafði samband við Guð
mund H. Einarsson, fram
kvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits
Hafnarfjarðar og Kópavogs, til að
fá útskýringar á því, samkvæmt
þeirra eigin orðum í þeirra eigin
eftirlitsskýrslu, hvernig sjoppa
með pylsusölu og nammibar gæti
verið skilgreind sem veitinga
staður. Einnig hvernig staður
inn fór úr því að vera, samkvæmt
eftirlitsskýrslu þeirra eigin eftir
lits, úr sjoppu með pylsusölu
og nammibar í að verða mat
vöruverslun og veitingastofa í að
verða svo allt í einu veitingastað
ur þegar eftirlitið sendi frá sér
umsögn til sýslumanns vegna
útgáfu vínveitingaleyfis í flokki
þrjú. Sá flokkur er ætlaður fyr
ir umfangsmikla áfengisveitinga
staði þar sem leikin er hávær tón
list og staði sem kalla á meira
eftirlit eða löggæslu. Guðmund
ur tjáði DV að samkvæmt hans
skilningi á lögum og reglum þá
sé ekkert athugavert við þetta og
ekkert óeðlilegt við þessi vinnu
brögð. Þegar hann var spurður af
hverju umsögnin til sýslumanns
vegna útgáfu vínveitingaleyfis
ins og svo starfsleyfis staðarins
sem eftirlitið gæfi út væri ekki
sú sama, sagði Guðmundur að
svona túlkaði eftirlitið þetta. „Við
teljum okkur ekki að þurfa að út
skýra það frekar.“ Aðspurður hver
bæri ábyrgð á þessum ákvörðun
um svaraði Guðmundur: „Ég ber
auðvitað ábyrgð á öllu.“ Einnig
var hann spurður af hverju heil
brigðisnefnd hefði ekki verið
upplýst um að í eftirlits skýrslu
eftirlitsins segði orðrétt: „um er
að ræða sjoppu með pylsusölu og
nammibar“.
„Það er líka þarna veitingahús,
það er verið að selja áfengi þarna.
Svona var þetta afgreitt og þú hef
ur gögnin,“sagði Guðmundur.
Taka skal fram að Videomarkaður
inn selur áfengi, þökk sé jákvæð
um umsögnum meðal annars
heilbrigðiseftirlitsins, byggingar
fulltrúa Kópavogs og bæjarráðs
Kópavogs sem öll gáfu veitinga
staðnum Videomarkaðnum já
kvæða umsögn um rekstur vín
veitingastaðar í Hamraborginni.
Skilgreiningin á veitingahúsi
samkvæmt lögunum er staður
með fjölbreyttar veitingar í mat
og drykk og fulla þjónustu. Í
veitingahúsi skal vera starfandi
maður með fullnægjandi þekk
ingu á framreiðslu, svo það er
augljóst að heilbrigðiseftirlitið er
ekki að skilgreina þennan stað
rétt samkvæmt lögunum.
Heilbrigðisnefnd sér um eftirlit
með heilbrigðiseftirliti Hafnar
fjarðar og Kópavogsbæjar. Hörður
Svavarsson er formaður þeirrar
nefndar. Allar umsagnir sem heil
brigðiseftirlitið sendir frá sér fara
í gegnum nefndina og þegar hann
var spurður út í ítrekuð brot eftir
litsins og hvernig eigi að bregð
ast við þeim sagði hann: „Það er
bara eitthvað stjórnsýslumál sem
þarf að höndla samkvæmt stjórn
sýslulögum, við þurfum bara að
leita okkur ráðgjafar vegna þess.
Ef þetta er gefið út á röngum
forsendum þá hlýtur að vera hægt
að afturkalla starfsleyfið.“
Byggingarfulltrúi skoðaði
ekki allt húsnæðið
Jóhannes Pétursson, aðstoðar
byggingarfulltrúi Kópavogs,
gaf jákvæða umsögn fyrir hönd
byggingarfulltrúa til sýslumanns
varðandi Videomarkaðinn. Þegar
hann var spurður hvort hann hafi
farið í vettvangsferð á staðinn til
að geta gefið rétta umsögn viður
kenndi hann að hann hefði ekki
skoðað allt húsnæðið en sagðist
hafa farið þangað reglulega.
n Allt gert til að halda starfsemi eins stærsta spilasalar landsins í rekstri
Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
bjartmar@dv.is
„Við teljum okkur
ekki að þurfa að
útskýra það frekar