Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 42
 8. júní 2018KYNNINGARBLAÐVið þjóðveginn Fólk fréttir af því að hér sé góður matur NORTH WEST HOTEL & RESTAURANT Í VÍÐIGERÐI: Flestir kannast við matsölustað-inn Víðigerði í Húnaþingi vestra. Eftir að hafa áratugum saman verið með frægari vegasjoppum varð Víðigerði gjaldþrota árið 2013. Nýir eigendur keyptu húsnæðið vorið 2014 og hófu markvissa uppbyggingu undir heitinu North West Hotel & Restaur- ant. Í dag er þar rekið hótel og veitingastaður af miklum myndarskap og orðspor matarins á nýja veitinga- staðnum veldur því að sífellt fjölgar Íslendingum sem staldra þar við. „Við höfum enn ekki breytt neinu í ytra útliti staðarins enda margt ann- að sem var brýnna þegar við komum að þessu, en stefnt er á endurbætur í upphafi næsta árs. Við höfum hins vegar mikið endurnýjað innviðina og fórum strax í miklar framkvæmdir á efri hæð aðalbyggingarinnar og erum þar með níu hótelherbergi með sérbaði og sameiginlegri setu- stofu. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem gista er erlendir ferðamenn en á veitingastaðnum eru Íslendingar mjög stór hluti viðskiptavinanna og þeim fer sífellt fjölgandi,“ segir Kristinn Bjarnason sem rekur staðinn ásamt móður sinni, Guðlaugu Jónsdóttur, og stjúpföður, Hallgrími Hallgrímssyni. Kristinn segir að orðspor veitinga- staðarins í breyttri mynd berist víða. „Þetta er snjóbolti sem er farinn að rúlla, fólk fréttir af því að hér sé góður matur og við leggjum okkur fram við að gera betur á hverju ári,“ segir Kristinn en fjölskyldan hefur lagt áherslu á hægfara uppbyggingu staðarins: „Við vildum ekki skuldsetja okkur of mikið strax og höfum tekið fyrir eitt ár í einu og gert þetta af yfirvegun og það hefur borgað sig.“ Matseðillinn er fjölbreyttur. Ham- borgararnir seljast alltaf vel og er lagt upp úr því að þeir séu eins góðir og mögulegt er. Meðal annarra rétta eru grillaðar lambakótelettur sem njóta gífurlegra vinsælda, hægeldaðar kjúklingabringur og grísarif, íslensk kjötsúpa með heimabökuðu brauði, djúpsteiktur þorskur og fleira. Svo má einnig finna smárétti á seðlinum fyrir þá sem eru bara að leita að snarli. Þar má nefna reyktan silung frá Mývatni, grafinn lax sem er gerður á staðnum og beikonvafðar döðlur. Svo er réttur dagsins á kvöldin alla virka daga. Annað sem breyst hefur í mat- reiðslunni á staðnum er áhersla á besta mögulega hráefni. „Við erum í langhlaupi í þessu, við kaupum bestu vöruna sem við teljum okkur komast í og trúum því að það skili sér á end- anum, sem það er að gera. Enda mikil aukning á hverju ári. Við finnum að margir Íslendingar eru meira en til í að að stoppa annars staðar en á bensínstöð á ferð sinni um landið og fá sér að borða. Við vonum bara að fólk sýni okkur þolinmæði á meðan við erum að klára að dusta rykið af þessum stað.“ Einn ónefndur kostur við að snæða á North West Hotel í Víðigerði er nátt- úrufegurðin allt í kring og einstaklega fallegt útsýni úr matsalnum. „Hér er ofboðslega fallegt útsýni og við erum með Víðidalinn og Víðidalsfjallið á glugganum. Þessi staður á alveg að geta blómstrað ef við höldum áfram að þróa hann í rétta átt. Við erum að velta fyrir okkur ýmsum möguleikum,“ segir Kristinn. Sjá nánar á Facebook-síðunni North West Hotel & Restaurant.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.