Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 70
70 FÓLK 8. júní 2018
Hverjum líkist þú mest? Ég líkist báðum
foreldrum mínum, ég er sveimhugi eins og
pabbi en líka ákveðin eins og mamma.
Hvað halda margir um þig sem er alls ekki
satt? Að ég elski átök þegar sannleikurinn er
að mig langar bara til að eiga góð samskipti
við alla, en stundum eru góð samskipti líka
átakasamskipti.
Hvað finnst þér að eigi að kenna í skólum
sem er ekki kennt þar núna? Mér finnst
bara að það eigi að hjálpa krökkum að finna
styrkleika sína í skóla og kenna þeim að
rækta þá.
Ef þú þyrftir að eyða einni milljón á
klukkutíma, í hvaða verslun færirðu?
Miðað við verðlag á Íslandi þá getur það
verið hvaða verslun sem er, væri hægt að
græja þetta á hálftíma, jafnvel í Bónus.
Hvað viltu að standi skrifað á legsteinin-
um þínum? Hildur Eir Bolladóttir móðir .
Sex ára barn spyr þig hvort jólasveinninn
sé til. Hvernig svarar þú? Já.
Hvernig mundirðu lýsa litnum gulur fyrir
blindum manni? Gleði og hlýja.
Ef þú mættir velja eitt lag sem yrði alltaf
spilað um leið og þú gengir inn í herbergi,
allt þitt líf, hvaða lag mundirðu velja?
Megi gæfan þig geyma ( sálmur).
Ef þú þyrftir að dansa til að bjarga lífinu,
undir hvaða lagi mundirðu vilja dansa?
Gullvagninn.
Hvað ætti ævisagan þín að heita? Séra
Hildur skítarildur.
Hvaða bíómynd hefurðu séð oftast?
The Intouchables (frönsk mynd).
Hvað var í tísku þegar þú varst yngri en er
það ekki lengur?
Sebrarendur í hári.
Yfir hverju getur þú alltaf hlegið? Fólki
sem tekur sig sjálft mjög alvarlega.
Borðarðu mat sem er kominn fram yfir
síðasta söludag? Nei, ekki nema bara
þorramat.
Hvert er versta hrós sem þú hefur feng-
ið? „Flott kona“ … ég er sammála Margréti
Erlu Maack, það þýðir bara „þú ert feit en
samt svolítið skemmtileg“.“
Heilsarðu frægum Íslendingum úti á
götu, þótt þú þekkir þá ekki persónu-
lega? Nei, ég held nú ekki, en annars er ég
ekkert alltaf viss hverja ég á að þekkja og
hverja ekki.
Hvaða ósið hefur þér reynst erfiðast að
hætta? Ég þvæ mér alltof oft um hendurnar
= OCD.
Hverju laugstu síðast? Að ég væri alveg að
verða búin með maískýrslurnar í vinnunni.
Um hvað geta allir í heiminum verið
sammála? Að enginn maður er algóður og
enginn alslæmur.
Ef þú mættir bæta við ellefta boðorðinu,
hvernig hljómaði það? Ekki vera týpan
sem þarf að vinna áfram með alla brandara
á Facebook þangað til þeir eru ekki lengur
fyndnir.
Bókin á náttborði
Steingerðar
Stein-
gerður
Steinarsdóttir, ritstjóri
Vikunnar: „Ég get ekki
verið bókarlaus en núna er ég
að lesa Þjáningarfrelsið eftir þær
Auði Jónsdóttur, Báru Huld Beck
og Steinunni Stefánsdóttur. Það er
einstaklega áhugavert og spennandi að
lesa um upplifun annarra blaðamanna
af starfinu og mjög upplýsandi að átta
sig á ýmsu er á sér stað bak við tjöldin.
Bókin er mjög skemmtilega skrifuð og
uppsett. Á náttborðinu liggur einnig
Lífsnautnin frjóa eftir Anne B. Ragde
mikinn uppáhaldshöfund en þetta
er lokahnykkurinn á bókaflokknum
um Neshov-fjölskylduna. Svo er
ljóðabókin Jökulhvörf eftir
Kára Tulinius í stöðugum
lestri um þessar
mundir.“
„Hulda er vinur
vina sinna“
Hulda Bjarnadóttir fjölmiðlakona er forstöðumaður þróunarsviðs Árvakurs. Hún er eitt af andlitum
útvarpsstöðvarinnar K100, sem er ein sú
vinsælasta í dag. DV heyrði í systur Huldu,
íþróttafræðingnum og kennaranum Bjarn-
eyju, og spurði: Hvað segir systirin?
„Hulda er ótrúlegt eintak, ég skil stundum
ekki hvernig hún fer að öllu því sem hún
er að gera. Hún er allt í öllu alls staðar og
virðist vera algjörlega ómögulegt að segja
nei við einhverju. Fyrir utan að vera alltaf
með nokkur verkefni í gangi í vinnunni, með
saumaklúbbnum, í aðalstjórn Fram, með
golfklúbbnum, þá ákvað hún að taka þátt í
Landvættaprógramminu ofan á allt saman
og er að standa sig eins og hetja í því. Hún
gefur sér samt alltaf tíma fyrir fjölskylduna
og erum við mjög samheldin og reynum að
hittast alltaf þegar færi gefst.
Að alast upp sem litla systir hennar var þó
ekki alltaf dans á rósum þar sem hún vildi
oftar en ekki fá að ráðskast með mig, og
henni var ekkert óviðkomandi! Við hlæjum
enn að því (mér fannst það samt ekki fyndið
þá!) þegar hún sparkaði í rassinn á mér í
klossum (þetta var fyrir tíma Crocs) af því
að ég var í RAUÐUM sokkum! Og það var
víst óásættanlegt, en þar sem ég lét illa að
stjórn og harðneitaði að skipta um sokka þá
uppskar ég þetta bylmingsspark í rassinn.
Við erum þó góðar vinkonur í dag og getum
alltaf leitað til hvor annarrar. Hún reynir
af og til ennþá að hafa vit fyrir litlu systir
sinni en það hefur ekki jafn afdrifaríkar
afleiðingar þó að ég kjósi að fara mínar eigin
leiðir þrátt fyrir góðar ráðleggingar.
Hulda er sannarlega vinur vina sinna og
alltaf boðin og búin þegar á þarf að halda.
Hún hefur reynst mér og syni mínum gríðar-
lega vel og mun ég aldrei geta þakkað henni
nægilega fyrir það. Hún hefði stundum gott
af því að hægja aðeins á, en maður sér hana
samt ekki fyrir sér öðruvísi en á yfirsnúningi
við að gera og græja hitt og þetta, það er
bara hún í hnotskurn.“
Hvað segir
systirin?
Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju og umsjónarmaður
þáttarins Milli himins og jarðar á N4, hefur vakið athygli fyrir einlæga
pistla sína á hildureir.is. Hildur Eir sýnir lesendum DV á sér hina hliðina.
„Flott kona … þú ert feit, en samt svolítið skemmtileg “
HIN HLIÐIN
„Geggjaðir þættir um nörda sem
eru alltaf alveg að meika það“
„Ég horfi hættulega mikið á sjón-
varp og hef gert allt of lengi. Ég er
auðvitað í miðjum upptakti fyrir
HM í Rússlandi og hef horft á allt
sem mögulega getur tengst fót-
bolta og svo er úrslitarimman í
NBA í fullum gangi og tíminn sem
fer í þetta gláp er meira en venju-
legur maður eyðir í almennt gláp.
Svo tekur við allt hitt. Við fengum
okkur Netflix fyrir ekki svo löngu og
þar er margt prýðilegt.
Mér fannst fyrsta serían af
Handmaid’s Tale mögnuð, finnst
öllu erfiðara að horfa á aðra þátta-
röð, Silicon Valley eru geggjað-
ir þættir um nörda sem eru alltaf
alveg að meika það, en missa það
alltaf á lokasprettinum í einhverju
rugli en óvart reddast það alltaf í
jafnvel enn betra rugli.
Ég þoli ekki „zombie“-drasl en
er forfallinn Walking Dead-sjúk-
lingur þrátt fyrir að maður kvarti
alltaf duglega ef þættirnir eru hægir
(sem er mjög oft).
Glæpaheimildaþættir eru
skemmtilegir og ég held að ég sé
búinn að sjá allar tónlistarheim-
ildamyndir á Flixinu, sama hvort
viðfangsefnið sé ömurleg hljóm-
sveit eða bara leiðinleg, lítið um
mína tónlist þar.
Uppáhaldsefnið mitt er væntan-
lega fyrirmynd Satt eða logið á Stöð
2, Would I Lie To You sem maður
sér á BBC eitthvað. Þar get ég setið
einn og tárast í hlátursköstum og
heyrt fussið og sveiið frá öðrum
fjölskyldumeðlimum sem hafa
engan áhuga á þessu. Erum ekki
með Stöð 2 en dóttir mín var með
mér í flissliðinu þegar fyrri Satt eða
logið-serían var í gangi á Stöð 2, þá
vorum við með. Hún dettur í súper
flissliðið mitt þegar hún er orðin
nógu góð í ensku, ætli ég geymi
mér ekki restina af Would þangað
til að hún er klár í þetta.
En nú fer allt á „hold“ því ég
mun ekki missa af einum leik á
HM, ég verð ekki í fríi á meðan há-
tíðin fer fram svo vídeótækið og
tímaflakkið og draslið verður notað
til að ekkert fari framhjá mér.“
Þórður Helgi Þórðarson útvarpsmaður horfir hættu-
lega mikið á sjónvarp og undirbýr sig nú fyrir áhorf á
HM þar sem öll tæki verða nýtt svo hann missi ekki
af neinu.
„Hún leynir endalaust á sér og er bæði
sársaukafull og falleg, sem og ógleymanleg“
S
tefán Máni hélt árið 1996
upp á 20 ára útgáfuafmæli
sinnar fyrstu bókar, Dyrnar
að Svörtufjöllum, og í ár
kemur tuttugasta bók hans út.
En hvaða bækur ætli séu í uppá-
haldi hjá Stefáni Mána?
Hvaða barnabók er í eftirlæti
og af hverju?
Sem krakki las ég mikið seríur
eins og Bob Moran og Dularfullu-
-bækurnar eftir Enid Blyton. Ég
var sérstaklega mikill Enid Blyton-
-aðdáandi. En sem foreldri hef ég
hrifist mjög af sænskum barna-
bókum, til dæmis myndabókun-
um um hann Lúlla og svo Einari
Áskeli. Góða nótt, Einar Áskell er
í miklu uppáhaldi, ekki síst vegna
þess að ég las hana oft fyrir krakk-
ana mína þegar þeir voru litlir og
fannst það alltaf jafn gaman.
Hvaða bók er uppáhalds og af
hverju?
Margar bækur eru uppáhalds.
Ég er samt líklega meira fyrir upp-
áhaldshöfunda en bækur. Fyrir
utan þá sem ég nefni á öðrum
stöðum í þessu spjalli verð ég að
minnast á höfunda eins og Gyrði
Elíasson, Raymond Carver og
William Saroyan. Sögur þessara
manna eru eins og eðalvín úr orð-
um – þeim fylgir ákveðinn andi,
stemming, jafnvel litir og lykt. En
til að nefna einhverja eina bók þá
er nýjasta uppáhaldið mitt Slát-
urhús 5 eftir Kurt Vonnegut. Ég
skrifa aðeins um hana gegnum
Hörð, sálufélaga minn, í bókinni
Svartagaldri, og vísa bara í þau
skrif hér.
Hvaða bók mundirðu mæla með
fyrir aðra og af hverju?
Sölvasögu unglings eftir Arnar
Má Arngrímsson. Einfaldlega
vegna þess að hún er ein albesta
bók sem skrifuð hefur verið á ís-
lensku – og þótt víðar væri leitað.
Bókin fór ekki hátt hérna heima
en fékk Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs í flokki ung-
lingabóka. Að þessi stórkostlega
bók hafi ekki fengið meiri athygli
hér á Klakanum er gott dæmi um
skeytingarleysi okkar gagnvart
bókmenntum.
Hvaða bók hefurðu lesið oftast?
Til dæmis skáldsögur Charles
Bukowski, Innstu myrkur eftir
Conrad og nokkrar bækur eftir
Hamsun. Ætli ég hafi ekki les-
ið Pan oftast af bókum Hamsuns
– hún leynir endalaust á sér
og er bæði sársaukafull og fal-
leg, sem og ógleymanleg. Að
haustnóttum eftir
sama höfund hefur
svo verið að vinna
mikið á undanfar-
in ár – dimm bók og
drungaleg.
Hvaða bók breytti
lífi þínu og hvernig?
Ætli ég nefni ekki
skáldsöguna Post
Office eftir Charles
Bukowski. Af henni
lærði ég margt mik-
ilvægt, eins og að
bækur þurfi ekki að
fjalla um eitthvað
rosalega merkilegt,
að best sé að skrifa
á mannamáli og að höfundar séu
ekki allir snobbaðir og leiðinlegir
háskólakennarar. Þetta er bókin
sem fékk mig til að trúa að ég gæti
skrifað og að ég gæti skrifað um
það sem mig langaði að skrifa um.
Hvaða bók bíður þín næst til
lestrar?
Sea Wolf eftir Jack London.
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is