Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 49
MENNING 498. júní 2018 Dalvegi 16b / S. 510 0500 Þ að vita eflaust flestir að þann 16. júní næstkomandi mun Ísland etja kappi við Argent­ ínu á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Moskvu. Það vita hins vegar færri að sama dag mun hljóðlistakonan og listamaðurinn Þóranna Björnsdóttir efna til gjörn­ ings á Listahátíð Reykjavíkur undir heitinu Ísland – Argentína. Þóranna ætlar að færa þennan sögulega fót­ boltaleik inn á dagskrá Listahátíðar með hljóðlistina að vopni þar sem hún skapar hljóðheiminn, innblás­ inn af framvindu leiksins. Guðni Einarsson hitti Þórönnu á dögun­ um og fræddist um listamanninn og gjörninginn Ísland – Argentína. Hver er Þóranna Björnsdóttir? Ég er starfandi listamaður og listakennari. Ég er fædd á Íslandi og hef búið hér meirihluta lífs míns. Ég er alin upp í umhverfi þar sem tónlist hafði mikið vægi, tónlist var ýmist spiluð eða sungin. Þetta hafði mótandi áhrif og varð til þess að ég fór í tónlistarnám. Á þeim vettvangi leitaði ég ýmissa leiða til að tjá mig og kláraði burtfararpróf frá FÍH í klassískum píanóleik. Á þeim tíma­ mótum langaði mig til að víkka hugann og þyrsti í að skoða hvern­ ig ólíkar listgreinar mætast. Ég sótti þar af leiðandi um í Listaháskól­ anum í Haag í Hollandi þar sem reyndi á þverfaglega nálgun í list­ sköpun. Deildin mín vann að verk­ efnum í Listaháskólanum og í Tón­ listarháskólanum í Haag og fékk ég svigrúm til þess að þjálfa huga og hönd frekar og reyna ýmsar leið­ ir við smíðar og samsetningar með ólík efni, sjónrænt og með hljóð og tónlist. Þarna kynntist ég raftón­ listinni betur og uppgötvaði ýmsar leiðir til tónsmíða. Í Hollandi lærði ég frekar að taka sjálfstæðar ákvarðanir við mótun, úrvinnslu og framkvæmd eigin verka sem og auka næmni mína gagnvart innsæi mínu og hugmyndaflugi. Innsæið er mikil­ vægasta tækið í listsköpuninni. Frá því að hugmynd fæðist þar til þú ert komin með fullmótað verk er langt og strangt ferli þar sem gefa verður innsæinu pláss og traust þar til þeir þættir sem bera verkið uppi smella saman. Þannig verður verkið framlenging af manni sjálfum, birtingarmynd ólíkra hugmynda, færni, drauma og persónueinkenna sem renna saman eða þéttast í áþreifanlegt eða áheyrilegt form. Hvernig lýsir þú list þinni? Starf mitt sem listamaður felur í sér þverfagleg vinnubrögð og þreifingar. Ég hef unnið þvert á miðla og leyfi hugmyndum að móta efnistökin eftir því sem mér finnst viðeigandi hverju sinni. Ég fæ innblástur víða að; frá vísindum og heimspeki, úr daglegu lífi, frá upp­ lifun listaverka, frá veðri og náttúru og úr tilfinningalífinu. Úrvinnsla hugmynda byggir svo á fegurðarþrá og lífsþorsta; að finna fyrir mennsk­ unni og náttúru og uppgötvunum á mörkum ljóss og myrkurs. Ég reyni að lifa og skapa með opnum huga og hjarta og umgengst umhverfið á rannsakandi máta og gaumgæfi fyrir bærin í kringum mig. Hvernig lítur þú á hljóðlist? Ég hef unnið mikið með hljóð. Frá unga aldri hef ég leikið mér að því að veiða eða einangra hljóð í umhverfinu og rýna í þau. Hljóð eru spennandi og kveikja innra með manni ótal myndir og hug­ renningatengsl. Fyrsta skrefið í að vinna með hljóð sem listræn­ an miðil er að hlusta. Hljóðlist og áhersla á upplifun hljóðs í listsköp­ un markar upphaf á 20. öldinni þegar listgreinar fóru að renna saman. Eðli hljóðlistar er þverfag­ leg og útfærslan margs konar. Hvernig er vinnuferlið þitt? Hljóð eru ósýnileg en þegar ég veiti hljóði athygli þá er ég að hlusta, skynja, skilja og tengjast umhverf­ inu sem eykur næmni mína fyrir blæbrigðum og margbreytileika innra og ytra umhverfis. Vegna eðlis síns getur hljóð haft gífurleg áhrif á líkama okkar og vellíðan og virkjað minningar og tilfinningar. Oft verð ég gagntekinn af einhverju hljóði og þegar ég er búin að fanga það í upptöku þá vinn ég með áferð þess og blæbrigði á músíkalskan hátt. Þá leyfi ég hljóðinu að tala til mín og það sem birtist innra með mér þegar ég hlusta hefur mikil áhrif á útkomu verksins. Hljóðheimurinn er leiðandi í verkum mínum hvort sem það er við gerð hljóð­/tónverka eða myndverka og skúlptúra. Hvað finnst þér um listalífið á Ís- landi? Mér finnst listalífið á Íslandi vera í miklum blóma. Ég vinn með lista­ mönnum úr ólíkum áttum og það er ansi magnað þegar maður finn­ ur samhljóm með öðrum í listsköp­ uninni. Það er afar mikilvægt í okk­ ar smáa samfélagi að listamenn tali og vinni saman, þenji sjáöldrin og leggi við hlustir; séu greinandi og gefandi gagnvart umhverfi sínu og með rásirnar tengdar út í heim. Listamenn hafa ákveðna sérstöðu hér á landi og í raun ríkir hér mikil friðsæld til listsköpunar, það kann ég að meta. Um hvað fjallar verkið Ísland – Argentína og hvernig fékkstu hug- myndina að verkinu? Verkið Ísland – Argentína er gjörningur. Gjörningurinn felst í því að færa þennan mikilvæga og sögulega fótboltaleik inn á dagskrá Listahátíðar. Þannig er íþróttaleikn­ um stillt upp á sama vettvangi og listsköpuninni og þrátt fyrir að ann­ að sé óháð hinu felst hvort um sig í því að færa áhorfendur inn í ann­ an heim; leiða þá áfram í sameigin­ legum draumi um tíma. Fótboltinn sameinar og sundrar, ærir fólk úr spennu alls staðar í heiminum. Fólk gagnrýnir ekki eða efast um reglur og táknkerfi leiksins heldur felst áhugi manna í því að fylgjast með líkamlegri fimi og sköpunarkrafti leikmanna á vellinum og hvernig liðsheild og liðsandi sigrast á and­ stæðingnum. Allur tilfinninga­ skalinn virðist njóta sín í fótbolt­ anum og vonin um sigur sem býr í brjósti manna er magnað hreyfiafl. Það er í raun hægt að sækja sér endalausan innblástur til listsköp­ unar úr þeim aðstæðum sem fót­ boltaleikurinn býr til. Leikurinn Ísland – Argentína er sérstaklega áhugaverður fyrir þær sakir að þarna eru að mætast lið frá svo ólík­ um menningarheimum og litrófið stórkostlegt. Í Argentínu virðist fót­ boltinn snúast um trúarbrögð og fyrir þeim er þetta ekki einungis spurning um að vera með á HM heldur að vinna mótið. Velgengni íslenska karlalandsliðsins kemur mönnum á óvart erlendis þó að við Íslendingar virðumst skilja og skynja hvað það er sem hefur kom­ ið því svona langt enda slá hjörtu okkar í takt þegar kemur að þessari velgengni. Það er fallegt. Gjörningurinn á Listahátíð verð­ ur skemmtilegur og krefjandi og það er tilvalið að spreyta sig á þenn­ an hátt. Tónlist hefur óendanlega breitt tjáningarsvið og hentar því vel inn í heim fótboltans. Ég mun spila mig inn í leikinn með þau tæki og tól sem ég bý yfir og reyna að vinna líkt og þessir stórkostlegu skapandi og útsjónarsömu leik­ menn sem þarna keppa. n Viðburðurinn fer fram þann 16. júní í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsinu og hefst kl. 13.00. „Hljóð eru ósýnileg“ Listakennarinn Þóranna Björnsdóttir verður með tónlistargjörninginn Ísland - Argentína á Listahátíð Guðni Einarsson gudni@dv.is „Þegar ég veiti hljóði athygli þá er ég að hlusta, skynja, skilja og tengjast umhverfinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.