Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐA Sandkorn 8. júní 2018 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Aðalnúmer: 512 7000 Auglýsingar: 512 7050 Ritstjórn: 512 7010 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur Suðurlandsbraut 14 2. hæð 108 Reykjavík FRÉTTASKOT 512 7070 ABENDING@DV.IS Líf mitt sem blaðamaður Þ egar ég steig inn á ritstjórnar skrifstofu DV fyrir rúmum þremur árum þá gerði ég mér ekki í hugar- lund hversu furðulegt starf það er að vera blaðamaður á Íslandi. Það eina sem ég einblíndi á var einhver barnslegur draumur um að vinna við skriftir og mögulega hafa ein- hver smávægileg áhrif á samfélag mitt, helst til hins betra. Ég hafði ekki hugmynd um hvað ég var að ana út í. Eitt vissi ég þó, launin í stéttinni eru ekki upp á marga fiska. Þrátt fyrir það er til fjöldi blaðamanna, leik- og grunnskólakennara og sjúkraliða svo dæmi séu tekin. Lík- lega tilheyri ég því þeim hópi fólks sem hefur ekkert fjármálavit. En við skulum frekar ræða það jákvæða. Blaðamennska er að mörgu leyti ótrúlega skemmtilegt starf. Maður þarf stöðugt að fylgj- ast með umræðunni í samfélaginu en ekki síður að leita uppi gleði- og sorgarsögur af samborgurum og kanna hvort viðkomandi er til- búinn til að deila því með þjóð- inni. Ef viðkomandi hefur reyndar brotið á samborgurum þá ræður hann oft engu um það. Það yljar manni að innan skrifa um gleðilega viðburði í lífi fólks, hringja í það og taka slík viðtöl. Að einhverju leyti verður maður með því móti þátttakandi í þessum gleðilegu atvikum og það er ómetan legt. Verst er að gleðifrétt- irnar eru oft miklu minna lesnar en fréttir af hörmungum. Fréttirnar af þessum hörm- ungarviðburðum í lífi fólks geta reynt virkilega á. Á stuttum ferli hef ég tekið viðtöl við fólk á lægstu punktum lífs þess og það er með ólíkindum að sjá hvað einstak- lingar geta verið sterkir og hug- rakkir á slíkum stundum. Ég hef líka hringt í nokkuð marga ösku- reiða viðmælendur. Einhverra hluta vegna er það oft þegar við erum að fjalla um einhver saka- mál. Áður en ég byrjaði í blaða- mennsku var ég feimin smeðja með lítið sjálfstraust og átti erfitt með að taka því ef einhver talaði illa um mig. Ég er enn feimin smeðja með lítið sjálfstraust en núna er ég ónæmur fyrir því að vera kallaður fáviti eða eitthvað verra. Ég er ekki alveg viss um- hvort það sé jákvæð þróun en það er þó ekki útilokað. Þá hefur aðeins einn stjórn- andi opinberrar stofnunar lýst því yfir að hann muni aldrei tala við mig aftur og Inga Sæland hef- ur ítrekað gefið í skyn að ég sé ill- menni. Þær staðreyndir ná ekki í gegnum skrápinn sem sífellt verð- ur þykkari. Þá hafa nokkrir vafa- samir einstaklingar í gegnum árin gefið í skyn að ég yrði barinn eða „myndi hafa verra af“ ef frétt yrði birt. Einn ætlaði meira að segja að koma upp á skrifstofu og skjóta mig og alla samstarfsmenn mína. Ég ætla ekki einu sinni að byrja að ræða eltihrellinn enda er hann bú- inn að gleyma mér. Held ég. Fyrsti ritstjórinn minn var Eggert Skúlason og á árdögum mínum í starfi var ég pínu smeyk- ur yfir einni dulbúinni hótun við- mælanda. Eggert horfði á mig með samúðaraugum og sagði síðan, grafalvarlegur, þessi hug- hreystandi orð: „Ef þú verður bar- inn Bjössi, þá verður þú frægasti blaðamaður á Íslandi. Þú færð heilan Kastljósþátt undir þig.“ Svo fór fréttin í prentun, enginn barði mig og því veit blessunarlega enginn hver ég er. Ég er ekki enn viss um hvort Eggert var að grínast eða ekki. Allt sem ég hef greint frá hér fyrir framan er smámál miðað við þann stóra vanda sem steðjar að íslenskri blaðamennsku, tímaleys- ið. Blaðamenn þurfa að framleiða ógrynnin öll af fréttum á hverjum einasta degi. Hver og einn þarf að hafa augun opin, nánast öllum stundum, og mæta til vinnu með hugmyndir að fréttum. Stundum bjarga lesendur okkur með því að senda inn ábendingar sem við grípum fegins hendi en stundum heyrist ekki múkk í símanum og þá getur nagandi kvíði tekið við. „Um hvað á ég að skrifa?“ Yfirleitt hafa menn lítinn tíma til að hugsa um slíkt, klukkan tifar og alltaf er ósveigjanlegur skilafrestur hand- an við hornið. Afleiðingin er sú að íslensk blaðamennska getur oft orðið æði yfirborðskennd og sjaldan gefst tími til þess að kryfja málin til hlítar eins og er samfélagslega mikilvægt. Á þessu eru að sjálf- sögðu gleðilegar undantekningar en betur má ef duga skal. Þar held ég að smæð markaðarins nánast krefjist þess að gripið sé til sér- tækra aðgerða til stuðnings fjöl- miðlum. Framlag frá ríkinu myndi gera mikið í þeim efnum og það er lausn sem lengi hefur verið talað um en aldrei tekst á flug. Að lokum er hér eitt atvinnu- leyndarmál. Stundum verða út- gáfudagar ofboðslega erfiðir. Frétt- ir og viðtöl skila sér seint, ekki næst í viðmælendur og það sem lagt var upp með um morguninn verður allt öðruvísi að kvöldi. Í öllu stressi þessa útgáfudags taldi ég til dæmis að allt efni væri komið en rak mig síðan á að ég hafði gleymt að senda út spurningu á viðmælanda varð- andi vikulegan dálk sem stundum er hér neðar á þessari síðu og kall- ast „Með og á móti“. Nú voru góð ráð dýr og þess vegna þurfti ég í mikilli tímaþröng að skrifa mjög langan leiðara sem myndi ná yfir meirihluta síðunnar og kannski með óvenju stórri mynd. Svona er nú blaðamennskan skemmtileg. n Leiðari Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Aldrei ráðherra Páll Magnússon, oddviti Sjálf- stæðisflokksins í Suðurkjör- dæmi, er ekki vinsæll maður meðal Sjálfstæðismanna í sín- um heimabæ, Vestmannaeyj- um. Öllu flokksbundu fólki til hryllings ákvað Páll að styðja annan flokk en sinn eigin í nýafstöðum sveitarstjórnar- kosningum. Gildir einu hvort flokkurinn innihaldi allt fólk sem var í Sjálfstæðisflokkn- um í byrjun ársins. Það er ljóst að baklandið mun seint fyrir- gefa þessi svik. Páll hefur verið mjög áhugasamur um að verða ráðherra en hefur í tvígang ekki fengið. Fyrst baklandið í flokknum er farið þá má slá því föstu að Páll verði aldrei ráð- herra, eini sénsinn fyrir hann sé að flytjast um flokk og verða ráðherra Viðreisnar í einhverri framtíðarríkisstjórn. Nema hann fari í fullt starf á K100. Eyðimerkurganga Svo virðist sem enginn vilji vinna með Miðflokknum og blasir við að flokkurinn verði áhrifalaus í ís- lenskum stjórn- málum næstu árin. Flokkurinn náði inn níu full- trúum í þeim 23 sveitarfélögum sem hafa fleiri en 2.000 íbúa. Það er ekki slæmur árangur fyrir flokk sem var stofnaður árið 2017. Flokk- urinn hlaut fleiri atkvæði en Framsóknarflokkurinn í sínum fyrstu alþingiskosningum en á enn langt í land með að velta fylgi þeirra í sveitarstjórnum. Á meðan Miðflokkurinn fékk níu kjörna þá fékk Framsóknar- flokkurinn 32. Það vekur þó athygli að enginn vill mynda með þeim meirihluta, spyrja má hvort þetta sé áframhald á einhverri Panamaskjala-geisla- virkni frá Sigmundi Davíð eða hvort flokkurinn eigi bara ekki samleið með neinum, ekki í Fljótsdalshéraði, Hafnarfirði eða Akureyri. Spurning vikunnar Á að leyfa umskurð drengja? „Nei, til hvers?“ Auður Jónsdóttir „Aðeins eftir að manneskjan er orðin sjálfráða.“ Þórlindur Viktor Hreinsson „Nei, mér finnst það algjört rugl.“ Halldóra Ívarsdóttir „Nei, þetta bitnar á börnunum seinna en ekki f oreldrunum.“ Eiríkur Hansen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.