Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 50
50 MENNING 8. júní 2018 Bíldshöfða 12 / S. 587 6688 / fanntofell.is SÉRHÆFUM OKKUR Í FRAMLEIÐSLU Á FORMBEIGÐUM BORÐPLÖTUM H ljómsveitin Vicky hefur komið saman aftur eftir langt hlé, en nafn hljóm- sveitarinnar kemur frá persónunni Vicky Pollard úr grín- þáttunum Little Britain. Bandið var stofnað árið 2007 og hljóm- sveitina skipa þau Orri Guð- mundsson, Baldvin Freyr Þor- steinsson, Ástrós Jónsdóttir, Eygló Scheving og Karlotta Laufey Hall- dórsdóttir. „Það var komin einhver stöðn- un í þetta hjá okkur,“ segir Karlotta Laufey og segir hljómsveitina hafa þurft á breytingu að halda eftir samfellda spilamennsku hverja helgi í nokkur ár. „Fólk fór í nám, barneignir, Sauðfjárrækt og bara hitt og þetta. Svo fyrir tveimur árum ákváðum við að hittast aftur og taka smá æfingar. Bara núna í lok síðasta árs ákváðum við að spila aftur og byrja að taka upp.“ Karlotta segir hljómsveitina nú hafa sent frá sér tvö lög á hálfu ári og þau héldu fyrstu tónleika sína síðustu helgi á Gauknum eftir pásuna. Næst stefna þau að tón- listarhátíðinni Secret Solstice og segir Karlotta að það sé auðvelt að muna. „Ef Ísland-Nígería leik- urinn er nýbyrjaður, þá stígum við á svið, svo það er engin afsökun að gleyma sér og mæta ekki.“ Áður þekkt sem Minx Að sögn gítarleikkonunnar hefur mórallinn hjá hljómsveitinni ekk- ert breyst. „Miðað við stemn- inguna er eins og við höfum aldrei tekið okkur pásu, en auðvitað eru hlutir aðeins öðruvísi þegar fólk er komið með tvö eða þrjú börn eða rúmlega þrjú þúsund rollur.“ Karlotta segir tónlistaráhuga sinn og draum hafa kviknað snemma. „Pabbi minn er gítar- leikari og það kom aldrei annað til greina en að ég myndi enda í tónlist,“ segir hún. „Hann kenndi mér á gítar þegar ég var 13 ára og svo hef ég kennt sjálfri mér eftir það, með nokkrum misheppnuð- um stoppum í tónlistarskólum. Ég byrjaði svo ekki í bandi fyrr en stelpurnar í Vicky, þá Minx, buðu mér trommarastöðu á sínum tíma sem ég tók, en vék sem trommari fyrir Orra Guðmundssyni stuttu síðar og fór yfir á gítarinn. Sem betur fer, segi ég bara.“ Gítarleikkonan segir margar minningar hafa orðið til hjá hljóm- sveitinni, en ekki fer á milli mála að með því eftirminnilegasta á liðnum árum voru tónleikar sem haldn- ir voru í Kína. „Eftir það breyttist algjörlega tilfinningin hjá manni fyrir tónleikahaldi og stemningu tengdri tónleikum. Þetta var alveg fáránlega þroskandi ferðalag fyrir bandið,“ segir Karlotta. „Þarna breyttist þetta hjá okkur úr að spila einungis á börum í Reykjavík, eins sjúklega gaman og það var, yfir í að spila í nýrri heimsálfu fyrir fólk sem hafði allt aðra menningu tengda tónleikum. Í Kína var fólk bara gjörsamlega tryllt.“ Í tveimur hljómsveitum og flytur inn föt Áhrifavaldar hljómsveitarinn- ar Vicky koma úr öllum áttum að sögn Karlottu: „allt frá Pantera, Kiss, Van Halen til Manson, Queen og jafnvel Cher. Svo er Eygló alveg tryllt í Aron Can þessa dagana, en sem betur fer erum við öll mjög ólík á margan hátt, en það kemur allt saman í eina klessu þegar við hittumst og spilum saman,“ seg- ir hún. Þegar Karlotta spilar ekki á gít- arinn eða spreytir sig í tónlistar- sköpun með uppáhaldsfólkinu segist hún vera sérlega mikið gef- in fyrir húðflúr, mótorhjól, vin- ina og bjór: „þetta klassíska bara,“ eins og hún segir. „Einnig tvinn- ast vinnan inn í áhugamálin þessa dagana þar sem ég sé um að flytja tískufatnað til landsins sem versl- unarstjóri í Rokk & Rómantík.“ Karlotta er mikil fjöllista- kona sem segir músíkunnand- ann í sér vera „tryllt í eitís, þá að- allega glamið,“ en gítarleikarinn er einnig í hljómsveitinni The Retro Mutants sem spilar svonefnt „synth-popp í eitís-stíl“. Aðspurð hvort það sé einhver tegund af tónlist sem hún þolir ekki var svar- ið hjá Karlottu skýrt og auðsvarað: „Coldplay!“ n TRYLLT Í „EITÍS“ OG ÞOLIR EKKI COLDPLAY Tónlistarkonan Karlotta Laufey úr Vicky: n Komin saman aftur og lítið breyst n „Í Kína var fólk bara gjörsamlega tryllt“ Tómas Valgeirsson tomas@dv.is „Ef Ísland- Nígería leikurinn er nýbyrjaður, þá stígum við á svið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.