Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 39
8. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ
Á Hvammstanga rekur María Sigurðardóttir kaffi- og veitingahúsið
Hlöðuna sem opnað var árið
2010. Hlaðan er heimilislegur og
hlýlegur staður sem gott er að
heimsækja á ferðinni um þjóð-
veginn.
„Við leggjum mikla áherslu
á heimabakað bakkelsi, brauð
og kaffi. Við bjóðum upp á
létta rétti, súpu, silung, „pie“ og
paninibrauð. Við erum einnig
með plokkfisk og á morgnana
er boðið upp á egg og beikon,“
segir María.
„Það eru engin tímatakmörk á
mat þannig lagað. Ef viðskipta-
vinur vill fá egg og beikon seinni
partinn þá bara útbúum við
það.“
Ferðamennirnir eru hrifn-
astir af plokkfiski og rúgbrauði.
„Pulled pork“-borgari er líka
mjög vinsæll, en honum var
bætt á matseðilinn í vor.
Þegar eitthvað er um að vera
þá er opið lengur á kvöldin, enda
er Hlaðan með vínveitingaleyfi.
Hlaðan er opin yfir sumartí-
mann, frá byrjun maí út ágúst.
Opið er alla daga kl. 9–21 nema
sunnudaga, kl. 10–21. Utan sum-
aropnunartíma er tekið á móti
hópum samkvæmt samkomu-
lagi.
Hlaðan kaffi- og veitingahús
er að Brekkugötu 2, Hvamms-
tanga. Síminn er 451-1110 og
netfangið hladan@simnet.is.
Facebooksíða:
Hlaðan kaffihús.
Við þjóðveginn
VEITINGASTAÐURINN GEITAFELL:
Fullkomnar ferðina á Vatnsnesið
Það kann að hljóma sem fullmikil bjartsýni að opna veitinga-stað utan alfaraleiðar eða um
20 kílómetrum frá litlum þéttbýlis-
stað, Hvammstanga. En þetta gerði
Róbert Jón Jack árið 2002 og í dag
er veitingastaður hans, Geitafell á
Vatnsnesi, afar vinsæll. Um 6–10.000
manns snæða á staðnum árlega,
flestir erlendir ferðamenn, en staður-
inn er opinn frá 15. maí og út septem-
ber.
Róbert og eiginkona hans keyptu
jörðina árið 2002 og byggðu þar af-
skaplega fallegt íbúðarhús í stíl gamla
íslenska sveitabæjarins. Veitinga-
staðurinn sjálfur er í húsnæði sem
upphaflega var hlaða.
Súrheysturninn á landareigninni
var hins vegar endurbyggður eins og
skoskur kastalaturn; á fyrstu hæðinni
er minjasafn um sveitina í kring og þá
sem þar hafa búið, en á annarri hæð
er stórmerkilegt safn tengt enska
knattspyrnuliðinu Man. Utd. en tengsl
hafa verið hjá Róberti og ættingjum
hans við gamlar stjörnur og fyrrver-
andi þjálfara liðsins. Þetta er safn
sem enginn aðdáandi Man. Utd. ætti
að láta framhjá sér fara.
Á efstu hæðinni er síðan stórkost-
legt útsýni yfir flóa, strandir og skaga.
„Það er tilvalið í einni ferð að skoða
Selasetrið á Hvammstanga, sela-
látrin við Svalbarð og Illugastaði sem
er næsti bær við okkur, koma í mat til
okkar að Geitafelli, skoða svo Hvítserk,
Borgarvirki og Kolugljúfur á leiðinni
heim,“ segir Róbert.
Dýrindis sjávarréttir
Bændur á Vatnsnesi lifðu á sjáv-
arútvegi og í þeim anda er einfald-
ur matseðill Geitafells en þetta er
sjávarréttastaður og eru aðalréttirnir
þrír: Sjávarréttasúpa með salati og
heimabökuðu brauði, pönnusteiktur
silungur og humar.
Réttirnir þykja afbragðsgóðir enda
aðeins ferskasta hráefni notað og að-
föng sótt í heimabyggð svo útkoman
verður aldrei annað en dásamleg.
Þá spilla ekki fyrir gómsæt-
ir eftirréttir en í boði eru skyrkaka,
skúffukaka og hjónabandssæla.
Rauðvín, hvítvín og bjór eru til
drykkjar og auk þess gosdrykkir, safar,
kaffi og te.
Tökustaður Burial Rites
Skammt undan eru Illugastaðir sem
eru sögusvið hinnar frægu skáldsögu
eftir Hannah Kent, Náðarstund, eða
Burial Rites. Sagan byggir á einu
frægasta sakamáli Íslandssögunnar
um þau Natan, Agnesi og Friðrik en
þau tvö síðarnefndu eru jarðsett í
kirkjugarðinum að Tjörn.
Ákveðið hefur verið að gera kvik-
mynd eftir skáldsögunni og hefjast
tökur þarna fyrir norðan í sumar eða
næsta sumar. Stórleikkonan Jennifer
Lawrence verður í hlutverki Agnesar.
Sem fyrr segir er Geitafell afar
vinsælt meðal erlendra ferðamanna
sem þyrpast þangað á sumrin og
hefur staðurinn fengið frábæra dóma
á Trip Advisor. Það er hins vegar
full ástæða til að hvetja íslenska
ferðalanga til að eiga gæðastund á
Geitafelli í sumar.
Nánari upplýsingar á vefsíðunni
geitafell.is
HLAÐAN:
Heimilislegt og hlýlegt kaffi- og veitingahús