Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 31
Við þjóðveginn 8. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is Við höfum frá upphafi lagt áherslu á að hafa þetta barn- og fjölskylduvænt, hér er aðgengi að dýrunum og leiktækja- aðstaða fyrir krakkana,“ segir Þor- grímur Einar Guðbjartsson sem rekur Rjómabúið Erpsstaði við Búðardal ásamt eiginkonu sinni, Helgu Elín- borgu Guðmundsdóttur. Sauðfjárbúskapur lagðist af á Erpsstöðum um aldamótin en hjón- in hófu uppbyggingu á staðnum nokkrum árum eftir það. Vorið 2009 varð rjómabúið til en þá hófu þau Þorgrímur og Helga ísframleiðslu. Síðan þá hefur orðið mikil vöruþróun og aukin afþreying á staðnum svo Erpsstaðir eru orðnir nánast ómiss- andi áningarstaður fyrir fjölskyldur sem eiga leið um héraðið. „Fyrir svona tveimur til þremur árum var það þannig að margir stoppuðu bara til að fá sér ís en uppgötvuðu svo aðrar vörur í leiðinni, sem og dýrin, þannig að fyrirhugað fimm mínútna stopp varð að hálf- til klukkutíma stoppi. Núna er það meira þannig að Íslendingarnir sem hingað koma eru flestir meðvitaðir um hvað er í boði hér, þeir fá sér ís og fara svo út í góða veðrið og leika sér, koma svo inn aftur og kaupa eitthvað til taka með sér heim.“ Að sögn eru erlendir ferðamenn í töluverðum meirihluta þeirra sem koma á Erpsstaði heilt yfir árið en um hásumarið eru Íslendingar í meirihluta. Opið er frá 11 til 18 og þó lengur ef gestir eru enn á staðnum „Við lokum yfirleitt ekki fyrr en traffíkin er búin,“ segir Þorgrímur. Fyrr í vor var opnuð sýning um skyr og skyrgerð á Erpsstöðum, en vegna ísframleiðslunnar fellur til óhemju magn af undanrennu sem er umbreytt í gamaldags sveitaskyr. Íslenska skyrið er orðið hluti af „slow food“ og komst þar inn sem „presidi- um“ fyrir um tveimur árum. „Erlendir ferðamenn sem hingað koma vilja margir hverjir ólmir bragða á skyri eins og það var upphaflega og verða ekki fyrir vonbrigðum. Skyrið okkar er þykkt og með súrum keim, engu bætt í það. Þegar þeir eru búnir að smakka fá þeir aðgang að bragðefnum og eru fíflasírópið og rabarbarasírópið vinsælustu bragðefnin hjá þeim,“ segir Þorgrímur. Ísinn sem framleiddur er á Erps- stöðum ber heitið Kjaftæði, er hann boðinn í mörgum bragðtegundum og þykir einstaklega bragðgóður. Notast er við ýmis bragðefni úr íslenskri náttúru, svo sem rabarbara, fíflasíróp og ber. Auk íss eru í boði ostar og hið fræga skyrkonfekt, sérhönnuð sælkeravara, konfekt sem á sér enga hliðstæðu á Íslandi. Gott aðgengi er að dýrunum fyrir gesti, nokkuð sem ekki síst börn- in kunna vel að meta, en þau fá til dæmis að horfa á kýrnar mjólkaðar. Þá er leiktækjaaðstaða á staðnum fyrir börnin. Þá er boðið upp á skoðunarferðir um staðinn og gestir fræddir um framleiðsluna. Nánari upplýsingar eru á vef- síðunni erpsstadir.is og Facebook- síðunni Rjómabúið Erpsstaðir. UPPLIFUN Á ERPSSTÖÐUM: Áningarstaður fjölskyldunnar fyrir vestan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.