Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 40
 8. júní 2018KYNNINGARBLAÐVið þjóðveginn HÓTEL VARMAHLÍÐ: Veitingastaður og hótel í hjarta héraðsins Hótel Varmahlíð stendur á besta stað við Þjóðveg 1 og hefur verið áningarstaður ferða- manna um landið í áraraðir. Nýir eigendur, Stefán Gísli Haraldsson og Unnur Gottsveinsdóttir, taka þar vel á móti gestum. Á veitingastaðnum er áherslan lögð á hráefni úr héraðinu. „Árið 1934 byrjaði Hótel Varmahlíð sem greiðasala og fyrsta húsið sem var í Varmahlíð,“ segir Stefán, „rút- urnar stoppuðu hér, hér var einnig póstur og símstöð. Um 1944–5 var svo byggt ofan á húsið og þá var byrjað að bjóða upp á gistingu hér.“ Stefán og Unnur keyptu hótelið 1. júlí í fyrra, en hvað varð til að þau ákváðu að fara í hótel- og veitinga- rekstur? „Við höfum áhuga á þessu,“ segir Stefán, en þau reka einnig Menningarhúsið Miðgarð og hafa gert síðan árið 2012. „Unnur er ferðamálafræðingur, hún kom í Skagafjörð árið 2008 og ætlaði að vinna eitt sumar á hótelinu en ílengdist. Sjálfur er ég fæddur og uppalinn í Skagafirði. Við höfum mikla trú á ferðaþjónustu í Skagafirði enda er hér margt í boði; frábær aðstaða fyrir útivist með Drangeyjarsiglingum, flúðasiglingum, hestaferðum og svo mætti áfram telja.“ Hótelið er opið allt árið, en veitingastaðurinn frá byrjun maí út október. Utan þess opnunartíma er tekið á móti hópum, minni og stærri, samkvæmt samkomulagi. Einnig eru jólahlaðborð í desember. Áherslan á hráefni úr héraði og lambið vinsælast Veitingastaður Hótel Varmahlíðar leggur áherslu á þægilega upplifun, góða þjónustu og fyrsta flokks hrá- efni. Veitingastaðurinn, sem tekur 80 manns í sæti, er opinn öllum, hótelgestum sem öðrum. Opið er frá hádegi og fram á kvöld. „Við leggjum áherslu á hráefni úr héraði og lambið er vinsælast,“ segir Stefán. Á Hótel Varmahlíð er eins og áður sagði boðið upp á matseðil þar sem áherslan er lögð á mat úr héraði, sem dæmi má nefna að ferska salatið kemur frá Garðyrkjustöðinni Laugarmýri, þorskhnakkarnir koma beint úr vinnslu á Sauðárkróki og rækjurnar frá Dögun á Sauðárkróki. „Við nýtum allan skrokkinn af lamb- inu, á matseðli er lambafillet eða lambaprime en einnig gúllassúpa. Hótelgestir geta svo gætt sér á kæfu og rúllupylsu á morgunverðarhlað- borðinu ásamt úrvali af öðru áleggi. Það er mjög gaman að vera í veitinga- og hótelgeiranum, við erum einstaklega heppin með starfsfólk og enginn dagur er eins,“ segir Stefán sem býður gesti velkomna á Hótel Varmahlíð í hjarta héraðsins. Hótel Varmahlíð er að Varmahlíð við Þjóðveg 1, síminn er 453-8170 og netfangið info@hotelvarmahlid.is. Heimasíða og Facebooksíða: Hótel Varmahlíð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.