Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 40
8. júní 2018KYNNINGARBLAÐVið þjóðveginn
HÓTEL VARMAHLÍÐ:
Veitingastaður og
hótel í hjarta héraðsins
Hótel Varmahlíð stendur á besta stað við Þjóðveg 1 og hefur verið áningarstaður ferða-
manna um landið í áraraðir. Nýir
eigendur, Stefán Gísli Haraldsson og
Unnur Gottsveinsdóttir, taka þar vel
á móti gestum. Á veitingastaðnum er
áherslan lögð á hráefni úr héraðinu.
„Árið 1934 byrjaði Hótel Varmahlíð
sem greiðasala og fyrsta húsið sem
var í Varmahlíð,“ segir Stefán, „rút-
urnar stoppuðu hér, hér var einnig
póstur og símstöð. Um 1944–5 var
svo byggt ofan á húsið og þá var
byrjað að bjóða upp á gistingu hér.“
Stefán og Unnur keyptu hótelið
1. júlí í fyrra, en hvað varð til að þau
ákváðu að fara í hótel- og veitinga-
rekstur? „Við höfum áhuga á þessu,“
segir Stefán, en þau reka einnig
Menningarhúsið Miðgarð og hafa
gert síðan árið 2012.
„Unnur er ferðamálafræðingur,
hún kom í Skagafjörð árið 2008 og
ætlaði að vinna eitt sumar á hótelinu
en ílengdist. Sjálfur er ég fæddur og
uppalinn í Skagafirði. Við höfum mikla
trú á ferðaþjónustu í Skagafirði enda
er hér margt í boði; frábær aðstaða
fyrir útivist með Drangeyjarsiglingum,
flúðasiglingum, hestaferðum og svo
mætti áfram telja.“
Hótelið er opið allt árið, en
veitingastaðurinn frá byrjun maí út
október. Utan þess opnunartíma er
tekið á móti hópum, minni og stærri,
samkvæmt samkomulagi. Einnig eru
jólahlaðborð í desember.
Áherslan á hráefni úr héraði og
lambið vinsælast
Veitingastaður Hótel Varmahlíðar
leggur áherslu á þægilega upplifun,
góða þjónustu og fyrsta flokks hrá-
efni. Veitingastaðurinn, sem tekur
80 manns í sæti, er opinn öllum,
hótelgestum sem öðrum. Opið er frá
hádegi og fram á kvöld. „Við leggjum
áherslu á hráefni úr héraði og lambið
er vinsælast,“ segir Stefán.
Á Hótel Varmahlíð er eins og áður
sagði boðið upp á matseðil þar sem
áherslan er lögð á mat úr héraði,
sem dæmi má nefna að ferska
salatið kemur frá Garðyrkjustöðinni
Laugarmýri, þorskhnakkarnir koma
beint úr vinnslu á Sauðárkróki og
rækjurnar frá Dögun á Sauðárkróki.
„Við nýtum allan skrokkinn af lamb-
inu, á matseðli er lambafillet eða
lambaprime en einnig gúllassúpa.
Hótelgestir geta svo gætt sér á kæfu
og rúllupylsu á morgunverðarhlað-
borðinu ásamt úrvali af öðru áleggi.
Það er mjög gaman að vera í
veitinga- og hótelgeiranum, við erum
einstaklega heppin með starfsfólk og
enginn dagur er eins,“ segir Stefán
sem býður gesti velkomna á Hótel
Varmahlíð í hjarta héraðsins.
Hótel Varmahlíð er að Varmahlíð
við Þjóðveg 1, síminn er 453-8170 og
netfangið info@hotelvarmahlid.is.
Heimasíða og Facebooksíða: Hótel
Varmahlíð.