Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 16
16 8. júní 2018FRÉTTIR
„Ég kaupi mér oft pylsu þarna
eða eitthvað,“ sagði hann til að
fullvissa blaðamann um að hann
þekkti nú vel til staðarins.
Blaðamaður spurði hvort hann
hefði kynnt sér lögin sem hann átti
að taka tillit til þegar hann skoðaði
húsnæðið og hann svaraði: „Ég las
ekki þessi lög áður en ég fór yfir
þetta.“ Seinna í símtalinu viður
kenndi hann að hann hefði lesið
lögin, en ekkert sérstaklega pælt
í þeim. Þegar blaðamaður spurði
hvort hann hefði einfaldlega af
ritað svar byggingarfulltrúa vegna
endurnýjunar á leyfinu frá árinu
2010, þar sem þau líta nánast al
veg eins út, staf fyrir staf, svar
aði Jóhannes einfaldlega: „Jájá,
ég gerði það.“ Þegar teikningar af
staðnum eru skoðaðar er ekkert
eldhús til að matreiða ofan í gesti
á teikningunum né er gert ráð
fyrir sætum fyrir verðandi mat
argesti, að frátöldum sætum sem
eru fyrir framan spilakassana.
Þessar teikningar hafa alltaf ver
ið sendar með umsögnum bæði
byggingarfulltrúa og heilbrigðis
eftirlitsins til sýslumanns síðustu
10 ár og hefur vínveitingaleyfið
alltaf verið endurnýjað þrátt fyrir
að teikningar sýni ekkert eldhús
fyrir veitingastaðinn.
Bæjarráð veitti jákvæða um-
sögn byggt á röngum gögnum
Til þess að staður geti fengið vín
veitingaleyfi þarf hann að fá já
kvæða umsögn frá nokkrum aðil
um, meðal annars bæjarráði þess
sveitarfélags sem hann er rekinn í.
Bæjarráð Kópavogs hefur frá 2008
alltaf gefið Videómarkaðnum já
kvæða umsögn vegna leyfisum
sóknar staðarins til Sýslumanns
höfuðborgarsvæðisins, byggt
meðal annars á gögnum sem
komu frá byggingarfulltrúa bæjar
ins. Svo virðist sem bæjarráð
hafi ekki haft réttar upplýsingar í
höndunum þegar það gaf staðn
um aftur og aftur jákvæða umsögn,
því eins og segir hér að framan
skoðaði aðstoðarbyggingarfulltrúi
ekki alla bygginguna við síðustu
umsókn fyrirtækisins ásamt því
að taka ekki eftir því að ekkert eld
hús eða sæti fyrir matargesti er á
teikningunum og einu teikningar
sem hafa verið notaðar við allar
umsóknir síðan 2008 eru frá árinu
2005. Engar breytingar hafa verið
á húsnæði síðan.
DV hafði samband við Óskar
Ísfeld Sigurðsson, deildarstjóra
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur,
og fór yfir málið með honum. Að
hans sögn ætti þetta að vera skil
greint sem söluturn og aldrei að
vera skilgreint sem veitingastaður
miðað við lýsingar á staðnum og
aldrei ætti að veita söluturni vín
veitingaleyfi í flokki þrjú. Svo virð
ist sem vinnubrögðin í Kópavogi
séu ekkert lík þeim vinnubrögð
um sem þekkjast í Reykjavík.
Einnig samkvæmt heimildar
mönnum DV, sem þekkja vel til
þessara mála, þykir afar furðu
legt að söluturn komist svo lengi
upp með að fá ítrekað endurnýj
un á vínveitingaleyfi þegar hann
augljóslega uppfyllir engin skil
yrði til þess og að engin eftirlits
stofnun hafi gripið fyrr inn í út
gáfu vínveitingaleyfisins til þessa
söluturns.
Eins og sagt var framar í grein
inni er Videomarkaðurinn einn
stærsti spilasalur landsins en
samt sem áður er hann ekki með
starfsleyfi til slíkrar starfsemi.
Til að getað haft spilakassa með
stærri vinningum, eins og spila
kassa þar sem fólk getur unnið
gullpottinn, þarf staður annað
hvort að vera skráður sem vín
veitingastaður eða spilasalur
samkvæmt reglugerð dómsmála
ráðuneytisins. Séu ársreikningar
fyrirtækisins skoðaðir þá sést vel
að ein meginstarfsemi Video
markaðarins er að reka spila
sal þar sem heildartekjur af fjár
hættuspilum árin 2015 og 2016
skiluðu fyrirtækinu 207 milljón
um í tekjur. Langstærstur hluti
húsnæðisins fer einnig undir
spilakassa. Það er mun einfaldara
að fá leyfi fyrir vínveitingahúsi en
spilasal og er ekki erfitt að sjá af
hverju fyrirtækið hefur farið þá
leið að sækja um leyfi fyrir vín
veitingar í stað spilasalar. n
HÚSFÉLAGIÐ ER Í GÓÐUM
HÖNDUM HJÁ OKKUR
770 7997 malarameistari.is fyrirtak@fyrirtak.is