Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 52
52 BLEIKT 8. júní 2018
Við erum flutt á
malarahöfða 2
110 Reykjavík
2. hæð
Fataviðgerðir og
fatabreytingar
Jarðarberjaspínatsalat
Þ
að er auðvelt að útbúa sal-
at í krukku, jafnvel að út-
búa nokkur í einu, því flest
geymast þau fimm daga í
ísskápnum áður en neytt er. Mælt
er hins vegar með að raða lögun-
um í ákveðinni röð í krukkuna:
1. Dressing fyrst.
2. Grænmeti sem þola að mar-
inerast vel í dressingunni (gúrk-
ur, laukur, sveppir og grasker
sem dæmi).
3. Grænmeti sem við viljum halda
frá því að liggja í dressingunni.
4. Prótín.
5. Kál.
6. Ostur, hnetur, þurrkaðir ávextir
og slíkt.
Áður en neytt er þá er krukkan
hrist þannig að dressingin dreif-
ist vel og salatinu síðan hellt í skál
og borðað, eða borðað beint úr
krukkunni.
Undirbúningstími: 10 mínútur
Dugar fyrir tvær krukkur af salati
Jarðarberjaspínatsalat með
steiktum/grilluðum aspas og
kjúklingi, agúrkum, avókadó,
rauðlauk, ristuðum möndlum og
dressingu.
Innihald
n 6 matskeiðar dressing
n 1/4 bolli rauðlaukur skorinn
n 1/2 bolli gúrkusneiðar
n 4 jarðarber skorin
n 1/2 bolli steiktur/grillaður aspas,
skorinn
n 1/4 avókadó, skorið
n 200–300 g steiktar/grillaðar
kjúklingabringur
n ½ poki spínat
n 2 matskeiðar ristaðar
möndluflögur
n Dressing
Dressing
n 1/2 bolli ferskur greipaldinsafi
n 1 matskeið hlynsíróp
n 1/2 teskeið sjávarsalt
n 1/4 teskeið mulinn pipar
n 1 teskeið dijonsinnep
n 1 hvítlauksgeiri, pressaður
n 1 teskeið birkifræ
n 1 ½ matskeið olífuolía
Leiðbeiningar
Útbúðu dressinguna með því að
blanda öllum hráefnum saman.
Magn er um það bil einn bolli.
Taktu tvær krukkur og raðaðu
hráefninu í lög eins og fyrr sagði:
dressing, laukur, gúrka, jarðarber,
aspas, kjúklingur, avókadó, spínat
og möndlur.
Hristu krukkuna þegar borða á
salatið og helltu á disk.
Þrifaráð Sólrúnar Diego:
Svona þrífur
þú fartölvuna
Samfélagsmiðlastjarnan Sólrún Diego hefur
notið mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum og
netinu. Haustið 2017 kom hennar fyrsta bók út,
Heima, þar sem hún kennir nýjar og skilvirkar leiðir
til að halda heimilinu hreinu og fallegu án mikillar
fyrirhafnar.
H
ér birtum við einn kafla
úr bókinni, sem fjallar
um þrif á tækinu, sem
flest okkar nota daglega;
fartölvunni.
Á lyklaborði dæmigerðrar far-
tölvu er talsvert meira af bakter-
íum en við kærum okkur um að
vita. Til að hinda að þær dafni
á tölvunni er gott að þrífa hana
með þessum einfalda hætti.
Fljótleg þrif á fartölvu
n Hvað þarftu?
n Tvær tuskur
n Skál
n Vatn
n Edik eða uppþvottalög
n Eyrnapinna eða tannstöngul
Slökktu á tölvunni, lokaðu
henni og ekki hafa hana í sam-
bandi við rafmagn.
Blandaðu ediksblöndu í skál.
Í stað ediksblöndu má nota
nokkra dropa af uppþvottalegi
út í vatn.
Dýfðu hluta af tuskunni í
blönduna og vittu hana mjög
vel þar til hún er rétt svo rök.
Strjúktu af ytra byrði tölvunn-
ar með raka hluta tuskunnar
og þurrkaðu hana svo vel með
þurra hlutanum.
Opnaðu tölvuna. Taktu
eyrnapinna eða tannstöngul
og renndu honum á milli takk-
anna á lyklaborðinu til að losa
um óhreinindi. Strjúktu svo yfir
með raka hluta tuskunnar og
þurrkaðu með þurra hlutanum.
Það er mjög mikilvægt að tusk-
an sé ekki blaut þar sem
ekki má fara vatn inn
í tölvuna.
Taktu þurra
tösku og nudd-
aðu skjáinn með
henni til að ná
burt fingraför-
um, ryki og öðr-
um óhreinind-
um. Oft fylgja
fíngerðir klútar
með raftækjum eða gleraugum
sem henta líka sérstaklega vel í
þetta vek.
Ekki bleyta tölvuna
Það er mjög mikilvægt að bleyta
aldrei tölvuna, hvorki skjáinn,
lyklaborðið né hvers kyns op á
henni, því slíkt getur eyðilagt
hana.
Sérstök hreinsiefni fyrir
raftæki
Til eru sérstök hreinsiefni fyr-
ir tölvuskjái sem seld eru í raf-
tækjaverslunum. Einföld aðferð
eins og lýst er á þessari opnu
þarf alls ekki að vera síðri en að
nota slík hreinsiefni.
Örtrefjatuskur fyrir raftæki
Þegar strokið er af raftækjum
með tusku er mikilvægt að not-
ast við örtrefjatusku en ekki aðr-
ar tegundir af tuskum. Þá þarf
alltaf að gæta að því að tuskan
sé hrein.
Setja í box:
n Ediksblanda
n ¼ borðedik
n ¾ vatn
n Nokkrir dropar af ilmkjarna-
olíu
n Best er að blanda hana í úða-
brúsa og hafa hann svo við
höndina ásamt tusku þegar
heimilið er þrifið.
Sumir kjósa að hafa blönduna
sterkari og má að sjálfsögðu
hafa helmingshlutföll af ediki og
vatni.
Ilmkjarnaolían gerir ilminn
mun ferskari.
Nota má blönduna við
flestar tegundir þrifa, en
þó aldrei á náttúrustein.
Fylgjast má með
Sólrúnu á heima-
síðu hennar: sol-
rundiego.is og Face-
book, Instagram og
Snapchat:
solrundiego.
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is