Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 48
48 MENNING 8. júní 2018
S
tefán Örn Stefánsson,
meistari í bifreiðasmíði,
er stoltur eigandi
einu DeLorean-
bifreiðarinnar sem
skráð er á Íslandi.
Bíllinn er sport-
bifreið úr ryðfríu
stáli og trefjaplasti
með vængjahurðum.
Tegundin er mörgum kunnug og
sást sams konar kerra í Back to
the Future-myndunum og gegndi
bíllinn þá hlutverki tímavélar sem
var til taks fyrir Marty McFly til
taks í þríleiknum fræga.
Aðeins voru tæplega 9.000
eintök af DeLorean framleidd
á árunum 1981 og 1982 og er
talið að 6.500 eintök séu enn til.
Virði þessa bíls er um 30 þúsund
bandaríkjadollarar í dag eða um
fjórar milljónir króna.
Fornbílaflotinn sem Stefán
safnar til varðveislu er í geymslu
í Bolungarvík, meðan eigandinn
vinnur við smíðar í Grindavík.
Bílarnir eru í kringum 15 talsins
en þó segir Stefán að ekki fari á
milli mála hvaða bifreið í safninu
ber af sem stærsta krúnudjásnið
og er það að sjálfsögðu tvennra
dyra silfurstálið frá Svíþjóð sem
Marty McFly notaði til að ferðast
milli ára.
„Back to the Future er náttúr-
lega bara besti þríleikur sem hef-
ur verið gefinn út. Ég var bara
fimm ára þegar fyrsta myndin
kom út en þær höfðu allar mikil
áhrif á mig og ég fæ enn gæsahúð
þegar ég horfi á þær í dag.“
Stefán safnaði úrklippum af
DeLorean-bílum úr erlendum
bílablöðum sem hann ramm-
aði inn og hengdi upp á vegg.
„Aldrei átti ég svo sem von á
því að sá draumur myndi ræt-
ast að ég eignaðist svona bíl einn
daginn.“
Sýningarbíllinn í safninu
Stefán eignaðist De Lorean-bif-
reiðina sumarið 2005. Bíllinn
var hvergi auglýstur
til sölu en Stefán hafði
samband við eigand-
ann og falaðist eft-
ir honum. „Ég keypti
hann af Sindra stáli,
sem var umboðsaðili
þessa sænska stáls hér
á Íslandi,“ segir Stef-
án. „Þeir fluttu bílinn
inn árið 1998 og sýndu
hann á bílasýningu í
Laugardalshöllinni. Ég sá hann
þar fyrst og heillaðist alveg.“
Bætir hann við að þetta sé eini
bíll sinnar tegundar sem er skráð-
ur á Íslandi og að einu sinni áður
hafi verið fluttur inn sambæri-
leg tegund til þess að taka þátt í
sýningu tengdum Sænskum dög-
um, en það var vegna þess að
ryðfría stálið sem notað er í yfir-
bygginguna er framleitt í Svíþjóð.
Eintakið af DeLorean-bíln-
um sem er í safni Stefáns er gam-
all sýningarbíll, „allur original
og meira að segja á upphaflegu
dekkjunum. Hann er ekki ekinn
nema um 8.600 mílur.“
Áður en bíllinn sló í gegn í Back
to the Future þótti útlit hans afar
umdeilt, en með tilkomu myndar-
innar komst útlitið á bílnum í
mikla tísku.
Stefán segir að útlit bíla sé
vissulega smekksatriði, en í hans
tilfelli hefur hann lítinn sem
engan áhuga að eignast nýjan eða
nýlegan bíl. Segir hann það ekki
bara vera vegna útlitsins, heldur
notar hann klassíska frasann:
„They don’t make them like they
used to.“
Hverfur ekki í fjöldann
„Bílar eru mitt aðaláhugamál, að
gefa gömlum hlutum líf, nýtt hlut-
verk og þess háttar,“ segir Stefán
sem segist hafa reglulega hang-
ið með viðgerðarmönnum frá
þriggja ára aldri og segir bíladell-
una hafa umhugsunarlaust kvikn-
að þar. „Í götunni sem ég ólst upp
í voru þrír „skúrakarlar“ sem voru
alltaf að brasa eitthvað í skúrnum
við götuna, gerandi við bíla, þá
ýmist beyglur, ryðbæta og fleira í
þeim dúr.“
Yngsti bíllinn í safni Stefáns er
20 ára gamall. „Mér finnst ekki
gaman að aka um á nákvæmlega
eins bíl og Siggi í næstu götu á,“
segir Stefán.
„Ég myndi segja að ég sé
einstaklingur sem vill ekki hverfa
inn í fjöldann,“ bætir hann við. „Ég
tek ekki þátt í lífsgæðakapphlaupi
eða neinu slíku og kýs að hugsa út
fyrir boxið.“
Elsti bíllinn í safni Stefáns er 66
ára gamall. Það er fernra dyra Ch-
evrolet frá 1952. Margir bílanna
eru óuppgerðir og segir Stefán
að hann safni að sér bílum til að
varðveita þá. Hann hvorki segir né
lofar að hann muni einhvern tíma
gera þá alla upp. „Mig langar að
gera það, en maður þarf að hafa
tíma til þess. Vonandi fæ ég núna
löngun til að dútla aftur við bíla á
kvöldin. En á meðan ég bíð eftir
tíma, þá bíða bílarnir í geymsl-
unni ásamt varahlutum sem ég
hef líka sankað að mér.“ n
ERT ÞÚ AÐ SMÍÐA PALL ?
Pallinn upp á
einfaldari hátt með
jarðvegsskrúfum
„Hugsa út fyrir boxið“
n Stefán Örn heillast ekki af nýjum bílategundum n Með fornbílaflota á Bolungarvík
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is
„They
don‘t
make them
like they
used to