Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Side 50
50 MENNING 8. júní 2018
Bíldshöfða 12 / S. 587 6688 / fanntofell.is
SÉRHÆFUM OKKUR Í FRAMLEIÐSLU
Á FORMBEIGÐUM BORÐPLÖTUM
H
ljómsveitin Vicky hefur
komið saman aftur eftir
langt hlé, en nafn hljóm-
sveitarinnar kemur frá
persónunni Vicky Pollard úr grín-
þáttunum Little Britain. Bandið
var stofnað árið 2007 og hljóm-
sveitina skipa þau Orri Guð-
mundsson, Baldvin Freyr Þor-
steinsson, Ástrós Jónsdóttir, Eygló
Scheving og Karlotta Laufey Hall-
dórsdóttir.
„Það var komin einhver stöðn-
un í þetta hjá okkur,“ segir Karlotta
Laufey og segir hljómsveitina hafa
þurft á breytingu að halda eftir
samfellda spilamennsku hverja
helgi í nokkur ár. „Fólk fór í nám,
barneignir, Sauðfjárrækt og bara
hitt og þetta. Svo fyrir tveimur
árum ákváðum við að hittast aftur
og taka smá æfingar. Bara núna
í lok síðasta árs ákváðum við að
spila aftur og byrja að taka upp.“
Karlotta segir hljómsveitina nú
hafa sent frá sér tvö lög á hálfu ári
og þau héldu fyrstu tónleika sína
síðustu helgi á Gauknum eftir
pásuna. Næst stefna þau að tón-
listarhátíðinni Secret Solstice og
segir Karlotta að það sé auðvelt
að muna. „Ef Ísland-Nígería leik-
urinn er nýbyrjaður, þá stígum við
á svið, svo það er engin afsökun að
gleyma sér og mæta ekki.“
Áður þekkt sem Minx
Að sögn gítarleikkonunnar hefur
mórallinn hjá hljómsveitinni ekk-
ert breyst. „Miðað við stemn-
inguna er eins og við höfum aldrei
tekið okkur pásu, en auðvitað eru
hlutir aðeins öðruvísi þegar fólk er
komið með tvö eða þrjú börn eða
rúmlega þrjú þúsund rollur.“
Karlotta segir tónlistaráhuga
sinn og draum hafa kviknað
snemma. „Pabbi minn er gítar-
leikari og það kom aldrei annað
til greina en að ég myndi enda í
tónlist,“ segir hún. „Hann kenndi
mér á gítar þegar ég var 13 ára og
svo hef ég kennt sjálfri mér eftir
það, með nokkrum misheppnuð-
um stoppum í tónlistarskólum.
Ég byrjaði svo ekki í bandi fyrr en
stelpurnar í Vicky, þá Minx, buðu
mér trommarastöðu á sínum tíma
sem ég tók, en vék sem trommari
fyrir Orra Guðmundssyni stuttu
síðar og fór yfir á gítarinn. Sem
betur fer, segi ég bara.“
Gítarleikkonan segir margar
minningar hafa orðið til hjá hljóm-
sveitinni, en ekki fer á milli mála að
með því eftirminnilegasta á liðnum
árum voru tónleikar sem haldn-
ir voru í Kína. „Eftir það breyttist
algjörlega tilfinningin hjá manni
fyrir tónleikahaldi og stemningu
tengdri tónleikum. Þetta var alveg
fáránlega þroskandi ferðalag fyrir
bandið,“ segir Karlotta.
„Þarna breyttist þetta hjá okkur
úr að spila einungis á börum í
Reykjavík, eins sjúklega gaman
og það var, yfir í að spila í nýrri
heimsálfu fyrir fólk sem hafði allt
aðra menningu tengda tónleikum.
Í Kína var fólk bara gjörsamlega
tryllt.“
Í tveimur hljómsveitum og
flytur inn föt
Áhrifavaldar hljómsveitarinn-
ar Vicky koma úr öllum áttum að
sögn Karlottu: „allt frá Pantera,
Kiss, Van Halen til Manson, Queen
og jafnvel Cher. Svo er Eygló alveg
tryllt í Aron Can þessa dagana, en
sem betur fer erum við öll mjög
ólík á margan hátt, en það kemur
allt saman í eina klessu þegar við
hittumst og spilum saman,“ seg-
ir hún.
Þegar Karlotta spilar ekki á gít-
arinn eða spreytir sig í tónlistar-
sköpun með uppáhaldsfólkinu
segist hún vera sérlega mikið gef-
in fyrir húðflúr, mótorhjól, vin-
ina og bjór: „þetta klassíska bara,“
eins og hún segir. „Einnig tvinn-
ast vinnan inn í áhugamálin þessa
dagana þar sem ég sé um að flytja
tískufatnað til landsins sem versl-
unarstjóri í Rokk & Rómantík.“
Karlotta er mikil fjöllista-
kona sem segir músíkunnand-
ann í sér vera „tryllt í eitís, þá að-
allega glamið,“ en gítarleikarinn
er einnig í hljómsveitinni The
Retro Mutants sem spilar svonefnt
„synth-popp í eitís-stíl“. Aðspurð
hvort það sé einhver tegund af
tónlist sem hún þolir ekki var svar-
ið hjá Karlottu skýrt og auðsvarað:
„Coldplay!“ n
TRYLLT Í „EITÍS“ OG
ÞOLIR EKKI COLDPLAY
Tónlistarkonan Karlotta Laufey úr Vicky:
n Komin saman aftur og lítið breyst n „Í Kína var fólk bara gjörsamlega tryllt“
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is „Ef Ísland-
Nígería
leikurinn er
nýbyrjaður, þá
stígum við á svið.