Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2012, Qupperneq 5

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2012, Qupperneq 5
5Ljósmæðrablaðið - júní 2012 Vor í lofti ...og vorið boðar alltaf eftir- væntingu í mínum huga. Þessi helmingur ársins finnst mér, sem og mörgum, mann- vænni, skemmtilegri og allavega bjartari en sá hluti árs sem nú kveður. Síðastliðið ár finnst mér hafa einkennst af innra starfi í Ljósmæðrafélaginu. Hópar ljósmæðra innan félagsins hafa unnið mikla og góða vinnu við að skoða meðal annars lög og innviði félagsins. Lög hvers félags er kjarninn í starfseminni, þó að það plagg sé ef til vill ekki alltaf upp á borðum. Þegar mikið liggur við hafa lögin þó síðasta orðið. Á aðal- fundi 24. mars síðastliðinn voru samþykkt ný lög félagsins sem tekið hafa þó nokkrum breytingum. Í síbreytilegu samfélagi er nauðsynlegt að aðlaga lög og reglur að samtímanum og þeim þörfum sem uppi eru á hverjum tíma. Þessar breytingar eru mikið til samræmis við lög annarra stéttarfélaga og er gott að hafa lögin til að styðjast við sem einskonar verklag. Meðal þess sem kemur nýtt inn í lögin er klausa um trúnaðarmenn félagsins. Hlutverk þeirra er nú stærra en áður, stofnað verður trúnaðarmannaráð sem í verða meðlimir kjaranefndar sem og allir trúnaðarmenn félagsins. Hlutverk þessa ráðs er að vera stjórn innan handar í stórum málum geta komið inn á borð félagsins. Einnig ráðgefandi í aðdraganda miðlægrar kjarasamninga sem og stofnanasamninga. Drögum að verklagi eða starfsreglum innan félagsins hefur annar hópur ljósmæðra einnig skilað. Töluverða vinnu á eftir að inna af hendi svo að handbók félagsins geti litið dagsins ljós. Þar er að mörgu að huga í vaxandi félagi og mikilvægt að vanda vel til verka. Þrátt fyrir misjafna sýn á hlutina er nauðsynlegt að sameiginleg niðurstaða fáist sem er farsæl og sanngjörn fyrir allar ljósmæður sem koma að vinnu fyrir félagið. Sú vinna heldur áfram í stjórn félagsins á næsta starfsári. Og er von mín að handbók líti dagsins ljós í lok þessa árs eða í byrjun næsta. Stofnanasamningar eru lausir í kjölfar miðlægra samninga. Töluverð vinna hefur verið lögð í að greina helstu stofnanasamninga ljósmæðra. Við þurfum að bera okkar stofnanasamninga við samninga annarra félaga innan BHM og sjá fyrir hvað við fáum launahækkun og hverju við viljum breyta. Bókun eitt í miðlægum ríkis- samningi okkar fjallar einmitt um það að gera úttekt á fyrirkomulagi launakerfisins. Afla nauðsynlegra gagna og upplýsinga um mismunandi hópa hjá ríkinu, til dæmis um laun, launadreifingu og launaþróun. Okkar markmið er meðal annars að endur- skoða hækkun launa vegna viðbótarnáms. Ljósmæður á stærsta vinnustað okkar og víðar fá til dæmis ekki metið til launahækk- unar nálastungunámið, ALSO, né önnur námskeið sem gera okkur verðmætari starfs- krafta og hæfari í okkar starfi. Einnig þarf að koma inn starfsaldurtengdri hækkun þar sem launaskrið yfir ævina er mjög óeðlileg. Ljósmæður mættu líka dreifast betur í launatöflunni. Við erum eins og hópur átta ára stráka í fótbolta, allir á eftir boltanum í einni þvögu. Fáir fá að njóta sín og dreifing ljósmæðra í launatöflu ætti að mínu mati að vera mun meiri. Svo er það launaþak yfir- manna og klárlega þarf að hækka laun yfir- manna svo að eðlilegt launaskrið geti orðið. Töluverðar breytingar verða í félaginu á þessu ári. Skrifstofumanneskjan okkar hún Brynja Helgadóttir kveður okkur eftir að hafa unnið í tæplega tvö ár hjá félaginu við góðan orðstír. Anna Sigríður Vernharðsdóttir hætti 1. maí sl. sem vefstjóri ljosmodir.is. Hún og ljós- usystur hennar áttu hugmyndina að síðunni og gáfu félaginu síðuna á sínum tíma. ljosmodir.is hefur svo sannarlega vaxið og dafnað í hennar umsjón og vil ég þakka Önnu Siggu mikið brautryðjendastarf. Óska ég henni velfarnaðar í því mikla starfi sem hún tekur nú að sér. Samkvæmt nýju lögunum heyrir Fylgjan okkar, handbók ljósmæðra, nú undir stjórn ritnefndar og vil ég einnig nota tækifærið og þakka Elínborgu Jónsdóttur ritstjóra innilega fyrir einlægan áhuga á vexti Fylgjunnar öll þessi ár. Gleðilegt sumar. Esther Ósk Ármannsdóttir formaður Ljósmæðrafélags Íslands Innviðir Ljósmæðrafélagsins Á V A R P F O R M A N N S L M F Í

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.