Ljósmæðrablaðið - 01.06.2012, Page 18
18 Ljósmæðrablaðið - júní 2012
Einnig getum við það með því að vera með
fræðsluerindi í blöðunum eða á vefsíðum eins
og ljósmóðir.is. Við getum stuðlað að því að
konan hlusti á kroppinn sinn og læri að treysta
honum. Við getum það með því að fækka
ekki enn frekar fæðingarstöðum á landinu,
frekar auka þá. Einnig getum við það með því
að vera ekki með eðlilegar fæðingar nálægt
áhættudeild því oft er of stutt á milli. Of mikið
aðgengi er að deyfingum hjá hinni eðlilegu
konu að mínu mati, í Svíþjóð til dæmis fær
fjölbyrja ekki epidural ef hún er komin með 6
eða meira í útvíkkun.
Ég geri mér grein fyrir því að við gerum
þessar breytingar ekki hér og nú, en við
ættum að fá að vera með í ráðum hvað varðar
barneignaþjónustuna á Íslandi. Ef við gerum
ekkert þá hef ég stórar áhyggjur. Það er
búið að hræða konur of mikið með aukinni
tæknivæðingu, en öryggið liggur ekki alltaf í
hátækninni heldur í hormónum konunnar og
hvar hún finnur sig örugga. Flestar fæðingar
eru eðlilegar og áhættan við að fæða barn
er ekki stór, samt er áhættudeildin stærsta
deildin á landinu. Ætti þróunin ekki að vera
sú að hún ætti að vera minnst og fleiri ljós-
mæðrareknar einingar? Fyrir utan kostnaðinn
sem áhættuþjónustan og deyfingar hafa í för
með sér.
Hugmyndafræði ljósmæðra
Mig langar aðeins að koma inn á
hugmyndafræði ljósmæðra til að styðja þessi
orð mín enn frekar. Ljósmæður styðja einar
og sér sem sérfræðingar við eðlilegt ferli
en með aðstoð annarra fagstétta og þá mest
fæðingalækna ef ferlið er komið í áhættuferli.
Í Samþykkt af Alþjóðasamtökum ljósmæðra
ICM í Ástralíu 19. júlí, 2005 er ályktun um
hvað ljósmóðir stendur fyrir:
„Ljósmóðir er ábyrgur fagaðili sem í samráði
við konur veitir nauðsynlegan stuðning,
umönnun og ráðgjöf til kvenna á meðgöngu, í
fæðingu og sængurlegu, stundar fæðingarhjálp
á eigin ábyrgð og annast nýbura og ungbörn.
Þessi umönnun felur í sér fyrirbyggjandi
aðgerðir, stuðning við eðlilegt ferli fæðingar,
greiningu á frávikum hjá móður og barni,
milligöngu um læknishjálp eða aðra viðeigandi
meðferð og veitir bráðahjálp.“ (Ljósmæðra-
félagið, 2011).
Ljósmæðrum á Íslandi stendur til boða að
fara á bráðanámskeið í fæðingafræðinni eða
ALSO og eru þeim kennd handtök og aðferðir
til að takast á við óvæntar uppákomur. Það
gerir ljósmæður enn betur í stakk búnar til að
starfa sjálfstætt og bregðast á faglegan hátt við
óvæntum uppákomum, hvar sem er á landinu.
Stöndum vörð um okkar sjálfstæði.
Áhættudeildin er lífsnauðsynleg,
en ekki fyrir allar konur
Við erum með frábæra áhættudeild
á Landspítalanum sem sinnir konum í
áhættufæðingum með góðu starfsfólki ásamt
vökudeildinni og talið er að ungbarnadauði
hér á landi sé með því minnsta sem gerist í
heiminum. Eðlilega er maður mjög stoltur af
því en hins vegar hef ég áhyggjur af að þróunin
verði sú að allar fæðingar, hvort sem um er að
ræða áhættufæðingar eða eðlilegar fæðingar,
verði á einum eða tveimur stöðum á landinu.
Við höfum menntað ljósmæður sem eru með
góðan grunn sem hjúkrunarfræðingar eða sem
hafa gífurlega mikla reynslu og jafnvel hvort
tveggja. Þær hafa fengið þjálfun í að vinna
sjálfstætt og geta tekið á móti börnum þar sem
mæður þeirra eru í eðlilegu ferli hvar sem er
á landinu. Við megum ekki láta deigan síga
heldur halda merki okkar á lofti.
Hvað segja fræðin?
Ef ég fer aðeins yfir það hvað rannsóknir
segja um eðlilegar fæðingar og konur með
litla eða enga áhættu þá styðja þær þessar
hugleiðingar mínar. Samkvæmt rannsókn frá
árinu 2009 kemur fram að barneignaþjónustan
eigi að vera sniðin að þörfum foreldra og vera
miðpunkturinn í þeirri þjónustu. Hins vegar er
talið að barneignaþjónustan hafi tekið mið af
verklagsreglum stofnanna og lítið sé skrifað
um þróun eða áhrif á verklagsreglur innan ljós-
móðurfræðinnar (Bick, Rycroft-Malone, og
Fontenla, 2009).
Í fræðilegri úttekt frá árinu 2007 segir sagan
að konur hafi alltaf haft aðrar konur sér til
stuðnings í fæðingu. En eftir að fæðingar hafa
færst inn á stofnanir hefur yfirseta fagfólks
yfir konum minnkað, eða frekar verið undan-
tekning en hið almenna. Nútíma fæðinga-
fræðin hefur stofnanavætt alla þjónustu við
fæðandi konur sem getur haft áhrif á framgang
fæðingarinnar.
Stuðningur í fæðingu inniheldur tilfinninga-
legan stuðning, þægilegt umhverfi og
snertingu, svo sem nudd, notkun vatns,
upplýsingaflæði og sjálfstæði. Þessir þættir
verða til þess að hvetja til eðlilegs fæðingaferlis
þar sem konunni finnst hún hafa stjórnina og
sjálfstæði sem verður til þess að minnka þörf á
inngripum í fæðingum. Konur sem fá stöðugan
stuðning eða yfirsetu ljósmóður eru líklegri til
þess að fæða um fæðingarveg, fara sjálfar af
stað, fæða án verkjalyfja, fæðingin tekur styttri
tíma og þær upplifa meiri ánægju og minni
þörf er á áhaldafæðingum (Hodnett, Gates,
Hofmeyr og Saksl, 2007).
Eftir því sem að tækninni fleygir fram sýna
rannsóknir að meira er um óþarfa inngrip hjá
konum í eðlilegu ferli og að ef konan fæðir á
ljósmæðrastýrðri einingu þá er líklegra að hún
fæði eðlilega, það sé minni verkjalyfjanotkun
og færri inngrip. Fæðingareiningar fyrir
konur í eðlilegu ferli eru ýmist sjálfstæðar eða
einingar innan sjúkrahúsa. Flestar eru þessar
einingar ljósmæðrastýrðar þar sem konur eru
færðar yfir á hátæknideild ef þörf er á. Þessar
ljósmæðrastýrðu einingar hafa leitt til þess að
konur fæða frekar eðlilega og tíðni inngripa,
eins og keisaraskurðir og spangarklippingar,
eru lægri (Bernitz, o.fl., 2011). Þess vegna er
mikilvægt að halda konum í eðlilegu ferli á
ljósmæðrarekinni einingu.
Á Nýja-Sjálandi eru ljósmæður sjálfstæðar
þar sem mikil áhersla er á samfellda þjónustu
og sinnir sama ljósmæðrateymi konunni
á meðgöngu, í fæðingu og eftir fæðingu
(Davis,o.fl., 2011). Sumar rannsóknir tala
einnig um lægri apgar-skor og á þetta við
um konur sem eru í eðlilegri meðgöngu og
fæðingu. Allt er þetta háð þjálfun ljósmæðra,
hvaða viðmið fæðingastofnanir setja, samstarf
á milli ljósmæðrareknu einingarinnar og
hátækni fæðingastaðanna (Overgaard, o.fl.,
2011).
Við þurfum að huga að því hvert hin íslenska
ljósmóðir stefnir. Við höfum fyrirmynd til
dæmis frá Bandaríkjunum þar sem ljósmæðra-
starfið er nánast að leggjast af og við hafa tekið
hjúkrunarfræðingar og læknar og búið er að
sjúkdómsvæða verulega allt fæðingaferlið
Flottar ljósmæður