Ljósmæðrablaðið - 01.06.2012, Side 35
35Ljósmæðrablaðið - júní 2012
• Er kynheilbrigði ungra stúlkna innan
starfssviðs ljósmæðra og á hvern hátt
sinna þær því?
• Sjúkdómsvæðing fæðingarþjónustu.
• Menntun ljósmæðra.
Finnland óskaði eftir áframhaldi á
umfjöllun frá fyrra ári um:
• Verklagsreglur og klínískar leiðbeiningar
varðandi meðgönguvernd.
• Hvert er hlutverk ljósmæðra á hinum
Norðurlöndunum? Er það að breytast og
sjást breytingar í átt að útvíkkun starfs-
sviðs?
Ísland óskaði eftir umræðu um
atvinnuleysi meðal ljósmæðra og ef það er
til staðar hvernig hafa félögin brugðist við
því?
Norska ljósmæðrafélagið óskaði eftir að
taka til umfjöllunar eftirfarandi:
• Stöðu ljósmæðra varðandi starf við
forvarnir og með konum sem verða barns-
hafandi án þess að óska þess. Þetta snýr
að getnaðarvörnum, menntun ljósmæðra,
lyfjaávísunum og fleiru.
• Umræðu um skimun fyrir fósturfrávikum
snemma á meðgöngu. Hvernig er staðan
í hinum löndunum, hafa ljósmæðra-
félögin sett fram stefnumótun varðandi
þessi atriði og hvað segja siðanefndir
landanna?
• Skipulagning barneignarþjónustu landanna.
Hvernig er staðan og hvert er stefnt?
• Alþjóðlegt starf félaganna. Ljósmæðra-
félög víða óska eftir fjárhagslegum
stuðningi og spurning hefur vaknað um
hvort félögin á Norðurlöndunum séu
aflögufær og hver styrkir hvern. Er þetta
sameiginlegt verkefni?
• Lýsa ánægju með tillögu Svíþjóðar um
sameiginlega stefnumörkun varðandi
einstök mál og leggja til að við veljum
eitt eða tvö málefni til að vinna að hverju
sinni.
Danska ljósmæðrafélagið óskaði eftir
umræðu um:
• Þjónustu til meðlima hinna landanna
þegar þeir starfa í okkar landi.
• Hvernig er þjónustu við flóttamenn án
skilríkja háttað í hinum löndunum?
Vegna tímaskorts náðist því miður ekki að
ræða öll þessi mál og var umræðu um sum
þeirra frestað til næsta fundar að ári.
Miklar umræður urðu um menntunarmál
ljósmæðra og faglega færni að loknu námi og
mikilvægi gagnsæis þess. Verið er að undir-
búa breytingar á námi hjúkrunarfræðinga í
Svíþjóð úr 3 árum í 4 og finnst ljósmæðrum
þá sem nám þeirra verði orðið ansi langt
og eru að skoða „direct-entry“ valkost. Í
Noregi er einnig verið að ræða mikið um
menntun og færni ljósmæðra og þar er
nú í gangi tilraunaverkefni við hjúkrunar-
skólann í Vestfold sem er kostað af norska
hjúkrunarfélaginu og er byggt upp sem 2ja ára
meistaranám að loknu hjúkrunarnámi. Norska
ljósmæðrafélagið hefur lagt áherslu á að vinna
með norskum stjórnvöldum að því að finna
leiðir til þess að þróa ljósmóðurnám heildrænt
með eða án hjúkrunarnáms. Hér á Íslandi
hefur einnig verið töluverð umræða um fyrir-
komulag ljósmæðranáms og í Danmörku eins
og áður hefur verið nefnt. Þessi umræða er
mikilvæg sérstaklega þar sem borið hefur á því
að ljósmæður með menntun frá Danmörku til
að mynda hafa ekki fengið starf á sjúkrahúsum
í Svíþjóð þrátt fyrir skort á ljósmæðrum þar.
Um allmörg mislík tilvik er að ræða í flestum
landanna.
Þar sem komið hafði fram ósk um að
ræða sameiginleg mál allra landanna var
ákveðið að ræða fyrst um menntun og
hæfni-/færniviðmið ljósmæðra og hefur
verið boðað til 2ja daga fundar í Reykjavík
með formönnum félaganna og 1-2 aðilum
sem eru í áhrifastöðum varðandi menntun
ljósmæðra í hverju landi. Þessi fundur
verður haldinn 26. og 27. mars 2012.
Atvinnuleysi ljósmæðra almennt var
nokkuð rætt og gátu finnskar ljósmæður
miðlað af reynslu sinni af atvinnuleysi
ljósmæðra sem í kreppunni þar í landi varð
25%. Þær ráðlögðu okkur hinum að reyna
að halda atvinnulausum ljósmæðrum með
öllum ráðum inni í félögunum og hvetja
þær til þátttöku í starfi þeirra, jafnvel gefa
eftir félagsgjöld meðan á þessu stæði.
Einnig að hlutast til um endurhæfingu
fyrir þær þegar atvinnutækifærum fjölgar
aftur.
Næsti stjórnarfundur verður haldinn í
Þórshöfn í Færeyjum dagana 11-12. maí
2012. Næsta ráðstefna Norðurlandasam-
takanna verður í Osló 13.-15. júní 2013.
Yfirskrift ráðstefnunnar er ,,Ljósmæður
2013, áskoranir í norrænu og alþjóðlegu
samhengi“ (Midwives 2013, Nordic and
global challenges).
Allar frekari upplýsingar er hægt að
nálgast hjá Esther Ármannsdóttur, formanni
LMFÍ, og undirritaðri.
Reykjavík í mars 2012
Hildur Kristjánsdóttir