Ljósmæðrablaðið - 01.06.2012, Page 41
41Ljósmæðrablaðið - júní 2012
Blessað barnalán
Það voru 10 galvaskar stúlkur sem hófu nám í ljósmóðurfræði
haustið 2004. Börnin voru 15 talsins í hópnum í upphafi náms,
eitt til þrjú börn á mann og voru tveir nemarnir barnlausir. Oft var
viðkvæðið „Ég væri til í að prófa þetta í næstu fæðingu“ þegar eitt-
hvað nýtt og spennandi var lesið eða rætt um, sennilega þó oft sagt
í gríni. Þegar fór að hylla undir námslok kom í ljós að fjölgunarvon
var í bekknum. Það setti tóninn fyrir það sem koma skyldi. Daginn
eftir að hópurinn þreytti embættispróf í ljósmóðurfræði í lok apríl
2006 fæddist fyrsta „nýja“ barnið í hollinu. Það næsta kom í heiminn
í júní sama ár. Nokkuð jafnt og þétt fjölgaði börnunum og sléttum
fimm árum frá útskrift, eða í júní 2011, voru „nýju“ börnin orðin
13 og höfðu að auki tvö fósturbörn bæst í hópinn. Yngsta barnið í
hollinu fæddist í apríl síðastliðnum og eru því samtals í hópnum 31
barn á bilinu tveggja mánaða til 20 ára. Enn sem komið er ekki vitað
til þess að fjölgunarvon sé í hópnum, en dæmin hafa sannað að það
er lengi von á einu!
Prófaðar hafa verið ýmsar útgáfur af fæðingum og má þar nefna
einn keisara, eina sitjandafæðingu, nokkrar Landspítalafæðingar,
fjórar heimafæðingar og fæðingar á Akureyri. Það væri líka verðugt
verkefni að reikna saman hversu lengi samanlagt þessi hópur hefur
haft barn á brjósti. En það sem mest er um vert er að öll eru börnin
heilbrigð og vaxa og dafna hjá stoltum ljósmæðramömmum sem
hafa lagt sitt af mörgum til að halda uppi atvinnu meðal starfssystra
sinna ☺
Stefanía Guðmundsdóttir
Barnahópurinn í upphafi náms Barnahópurinn ásamt mæðrum 2011