Fréttablaðið - 26.01.2019, Síða 6
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Gunnar Bragi Sveinsson
þingmaður Miðflokksins
kvaðst ekkert
muna frá
því hann
kom inn á
Klaustur
bar þar
til einum og
hálfum sól ar
hring eft ir það.
Hann hefði týnt
fötunum sínum þessa nótt.
Jóni Steindóri Valdimars-
syni þingmanni Viðreisnar
þótti skuggsýnt yfir þingsal í kjöl
far endurkomu
Gunnars Braga
Sveinssonar
og Bergþórs
Ólasonar,
þingmanna
Miðflokks
ins, á þing.
Stefán Jóhann
Stefánsson
ritstjóri Seðlabanka Íslands
sagði að listaverk sem sýndu nekt
hefðu verið færð
til innan Seðla
bankans til að
framfylgja
jafnréttis
stefnu, sem
kveður á um
að í starfsum
hverfi skuli
ekki vera atriði
sem misbjóði starfsmönnum.
Þrír í fréttum
Óminni, skuggi
og nekt
TÖLUR VIKUNNAR 20.01.2019 TIL 26.01.2019
greindust
með HIV
hér á landi í
fyrra og voru
30 af þeim
af erlendu
bergi brotin.
þúsund
manns, um 74
prósent íbúa
Kópavogs, eru búsett á svæði
þar sem sjúkra- og slökkvi-
bílar ná ekki til
þeirra innan 10
mínútna, sem
yfirvöld telja
nauðsynlegan
viðbragðstíma.
prósent aðspurðra
er frekar eða mjög
andvígt
hugmynd-
um um
innheimtu
veggjalda.
prósent lækna telja
staðsetningu Land-
spítala við Hring-
braut óheppilega og
þörf á nýju staðar-
valsmati vegna
byggingar nýs spítala.
prósenta
heimshag-
vöxtur
verður í ár
samkvæmt spá
Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins.
prósent plasts
frá heimilum
skiluðu sér til
endurvinnslu á
síðasta ári saman-
borið við tæp 17
prósent árið áður.
2739 56,160 3,5 23
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
jeep.is
JEEP® ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
FRUMSÝNUM Í DAG
JEEP® GRAND CHEROKEE
35” BREYTTAN FRÁ ARCTIC TRUCKS
STAÐALBÚNAÐUR M.A. 3.0 LÍTRA V6 250 HÖ. DÍSELVÉL,
9 ÞREPA SJÁLFSKIPTING, HÁTT OG LÁGT DRIF, DRIFLÆSING
AÐ AFTAN, LOFTPÚÐAFJÖÐRUN AÐ FRAMAN OG AFTAN,
BAKKMYNDAVÉL MEÐ SKYNJURUM OG ÍSLENSKT LEIÐSÖGUKERFI.
JEEP GRAND CHEROKEE TRAILHAWK
JEEP® GRAND CHEROKEE TRAILHAWK VERÐ FRÁ: 10.990.000 KR.
JEEP® GRAND CHEROKEE LAREDO VERÐ FRÁ: 9.990.000 KR.
STJÓRNMÁL „Mér finnst heilbrigðis
mál kvenna og ákvörðunarréttur
þeirra ekki eiga heima í höndum
trúfélaga og lífsskoðunarfélaga,“
segir Halldóra Mogensen, formaður
velferðarnefndar Alþingis. Af þeim
53 umsögnum sem bárust velferðar
nefnd um frumvarp heilbrigðisráð
herra um þungunarrof er á annan
tug umsagna frá trú og lífsskoðunar
félögum.
Með frumvarpinu er lagt til að
konu verði veitt fullt ákvörðunar
vald um það hvort hún elur barn
fram að lokum 22. viku þungunar,
óháð því hvaða ástæður liggja að
baki þeim vilja konunnar.
Gagnrýnt hefur verið að velferðar
nefnd hafi sent umsagnarbeiðnir um
málið til trúfélaga. „Ég hafði engan
áhuga á því en það voru aðilar í
nefndinni sem fannst það mikil
vægt og komu með rök fyrir því og
þess vegna voru beiðnirnar sendar
svona út,“ segir Halldóra. Hún er sjálf
framsögumaður málsins og málið á
hennar forræði í nefndinni.
„Mér finnst mikilvægt að við
tökum ákvarðanir út frá góðum
gögnum, að við fáum fagaðila til
okkar til að leiðbeina okkur og
að við horfum til landa sem hafa
verið með rýmri lög um þungunar
rof, hvernig gengið hefur þar og
tökum það inn í okkar ákvörðun
en ákvörðum þetta ekki bara út frá
tilfinningum fólks.
Halldóra segir kvenfrelsi ekki
eiga heima í höndum trúaðra
Athygli vekur að þrátt fyrir fjöl
margar umsagnir um málið er ekki
umsögn frá Siðfræðistofnun Háskóla
Íslands. Halldóra segir að umsagnar
beiðni til Siðfræðistofnunar hafi
verið ítrekuð í gær og að stofnuninni
verði veittur tveggja vikna frestur til
að senda inn umsögn um málið.
Aðspurð um meðferð málsins
í nefndinni og gestakomur vegna
þess segist Halldóra eiga eftir að
ákveða hvaða gestir verði kall
aðir fyrir nefndina vegna málsins,
hún muni þó taka tillit til annarra
nefndarmanna enda mikilvægt
að nefndin reyni að ná saman um
niðurstöðu og það skipti máli að
nefndarmenn séu allir sáttir við
meðferð málsins. Hún gerir þó
ráð fyrir að málið verði erfitt. „Já,
að sjálfsögðu, þetta er mál sem fer
inn á tilfinningar fólks og ég veit að
þetta verður ekki auðvelt.“
adalheidur@frettabladid.is
Yfir 50 umsagnir bárust
velferðarnefnd um þung-
unarrof. Trúaðir hafa
mikinn áhuga á málinu
en Siðfræðistofnun
sendi ekki inn umsögn.
Formaður nefndarinnar
vill að nefndin fjalli
um málið á grundvelli
vandaðra gagna.
Biskup Íslands
Agnes M. Sigurðardóttir sendir inn
umsögn sem „kristin kona og biskup
Íslands“ eins og þar stendur. Hún
styður þann hluta frumvarpsins um
að konur taki sjálfar þá ákvörðun
sem frumvarpið lýtur að en
getur þess jafnframt síðar í
umsögninni að samfélagið
hafi á undanförnum ára-
tugum fundið jafnvægi á
milli hinna ólíku sjónar-
miða um rétt hinnar
verðandi móður yfir
eigin líkama og rétt
fósturs til lífs, þrátt fyrir þær mótsagnir sem því fylgi.
Hún lýkur umsögninni á stuðningsyfirlýsingu við kven-
frelsisbaráttuna en segist efast um að frumvarpið hafi
vægi í þeirri baráttu.
Hún gagnrýnir einnig breytingu á hugtakanotkun.
„Hið nýja hugtak vísar á engan hátt til þess lífs sem
sannarlega bærist undir belti og er vísir að nýrri mann-
veru. Samkvæmt kristinni trú okkar er lífið heilagt,
náðargjöf sem Guð gefur og Guð tekur. Það er hlutverk
mannsins að varðveita það og vernda eftir fremsta
megni og bera virðingu fyrir mannhelginni, sköpuninni
og skaparanum. Það er misvísandi að nota þetta nýja
hugtak í þessu viðkvæma samhengi, þar sem hugtakið
vísar ekki til þessa vaxandi nýja lífs.“
Silja Bára Ómarsdóttir og
Steinunn Rögnvaldsdóttir
Engar rannsóknir benda til þess
að konur iðrist þess til lengri
tíma að binda enda á þungun.
Þvert á móti lýsa konur, í okkar
rannsókn á Íslandi og í sambæri-
legum rannsóknum erlendis,
létti og fullvissu um að hafa tekið
rétta ákvörðun. Undantekningin
frá því er ef þær upplifa missi
á sjálfsákvörðunarrétti eða
þvingun, hvort heldur
er af hendi maka, fjöl-
skyldu eða heilbrigðis-
starfsfólks. Í þeim
löndum þar sem
heimildir eru rýmri
en í núgildandi
lögum hér á landi
eru heldur ekki
vísbendingar
um að konum
líði öðruvísi með
ákvörðun sína.
Öryrkjabandalag Íslands
ÖBÍ fordæmir þá tillögu að heimild
til að rjúfa þungun verði rýmkuð
fram að lokum 22. viku ef ástæður
eru aðrar en að lífi konu sé stefnt í
hættu eða fóstur teljist ekki lífvæn-
legt.
Þær tillögur að rýmka heimildir til þungunarrofs fram
yfir 20 vikna fósturskimun eru augljóslega ætlaðar til
þess að hægt sé að bregðast við þeim frávikum sem
þar kynnu að greinast og eru aðför að rétti fatlaðs fólks
til lífs.
Félag íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna
FÍFK lýsir yfir ánægju með frumvarpið enda má sjá í
greinargerð með frumvarpinu að fyrrnefndar umsagnir
FÍFK hafi verið hafðar til hliðsjónar við gerð frum-
varpsins. Félagið gerir þó athugasemd við áskilnað um
handleiðslu sérfræðings á sviði kvenlækninga við fram-
kvæmd þungunarrofs, sem geti valdið því að þjónusta
vegna þungunarrofs sé ekki tryggð um land allt. Til
dæmis starfi sérfræðingar í kvenlækningum hvorki á
Ísafirði né í Neskaupstað, heldur starfi þar almennir
skurðlæknar sem geti tryggt þjónustuna.
2 6 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
6
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
2
5
-9
7
D
0
2
2
2
5
-9
6
9
4
2
2
2
5
-9
5
5
8
2
2
2
5
-9
4
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K