Fréttablaðið - 26.01.2019, Síða 12

Fréttablaðið - 26.01.2019, Síða 12
Samgöngustofa auglýsir laus til umsóknar 4 leyfi til leiguaksturs fólksbifreiða á Akureyri. Til að öðlast leyfi þurfa umsækjendur að uppfylla leyfisskilyrði, skv. 5. gr. laga nr. 134/2001 og rg.nr. 397/2003 um leigubifreiðar, með síðari breyting- um. Úthlutun leyfis fer fram á grundvelli starfsreynslu við akstur leigubifreiðar, sbr. 6. gr. reglugerðarinnar. Umsóknareyðublöð má nálgast í afgreiðslu Samgöngustofu, Ármúla 2 í Reykjavík eða á www.samgongustofa.is. Umsóknarfrestur er til og með 01.02.2019. Sími: 480 6000 . www.samgongustofa.is AUGLÝSING VEGNA ÚTHLUTUNAR ATVINNULEYFA TIL AKSTURS LEIGUBIFREIÐA Samgöngustofa IÐNFYRIRTÆKI TIL SÖLU Rótgróið iðn- og þjónustufyrirtæki með 35 ára sögu er nú til sölu. Um er að ræða skerpingarverkstæði og rekstur verslunar í Kópavogi. Fyrirtækið vinnur fyrir álver og stærstu trésmíðaverkstæði landsins og hefur leiðandi stöðu á sínu sviði. Góð vaxtartækifæri. Rekstur fyrirtækisins er nú til sölu ásamt stórum vélasal. Ársvelta um 45 milljónir króna og hjá fyrirtækinu starfa tveir starfsmenn. NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA 840-3425. AlphaStar, gervigreind úr smiðju DeepMind, dóttur-fyrirtækis Google, atti kappi við atvinnumenn í herkænsku- leiknum StarCraft II. Niðurstaðan var hörmungartap fyrir mann- kynið. Sýnt var frá leikjunum á You- Tube og Twitch í fyrrinótt. Eftir tíu sigra gervigreindarinnar í röð náði mannkynið þó að snúa taflinu við í síðasta leiknum þegar Grzegorz „MaNa“ Komincz vann fyrsta og eina leik hinna holdlegu. Úrslitin því tíu sigrar gegn einum. Áður hafa gervigreindir Deep- Mind, skákvélin AlphaZero og AlphaGo sem leikur kínverska borðspilið Go, rótburstað bestu Go- og skákmenn heims. Og þótt StarCraft sé kannski ekki jafnrót- gróinn leikur í samfélagi mannsins er áfanginn ekki síður merkilegur. Samkvæmt greiningu Deep- Mind er nefnilega mun erfiðara fyrir gervigreind að vinna þá bestu í rauntímatölvuleikjum, sérstaklega Mannkynið rassskellt í Starcraft II Starcraft II þykir nokkuð flókinn. MYND/BLIZZARD Mark Zuckerberg, forstjóri og stofnandi samfélagsmiðla-risans Facebook, hefur skipað þúsundum starfsmanna að samræma skilaboðaþjónustu fyrir- tækisins. Þegar verkefninu er lokið verður því hægt að senda skilaboð úr Facebook Messenger á einhvern sem notar bara Instagram eða úr WhatsApp á einhvern sem er ein- ungis á Facebook. Forritin verða hins vegar enn til og verða ekki sam- einuð að öðru leyti. The New York Times greindi frá málinu í gær og hafði eftir fjórum starfsmönnum að verkefnið væri bæði gríðarstórt, eins og starfs- mannafjöldinn gefur til kynna, og flókið. Breyta þarf grundvallaratrið- um í kóða appanna. Þótt verkefnið sé á byrjunarstigi núna er ætlast til þess að því verði lokið í lok árs eða í síðasta lagi í byrjun þess næsta. Fólk sem hefur óbeit á Facebook, hvort sem það er vegna þess hversu miklum tíma er hægt að verja á miðlinum eða vegna þeirra miklu persónulegu upplýsinga sem miðill- inn sankar að sér um notendur, ætti að gleðjast við þessi tíðindi. Með því að leyfa manni í raun að hafa áfram- haldandi aðgang að Mess enger, sem fjölmargir Íslendingar nýta sér í stað hefðbundinna SMS-a, í gegnum hið mun einfald- ara WhatsApp, ætti að vera auðveldara að yfirgefa sam- félagsmiðilinn. Hin fjölmörgu hneykslis- mál sem Facebook hefur vaðið í gegnum undanfarin misseri hafa orðið til þess að margir notendur hafa efasemdir um öryggi sinna persónulegu upplýsinga. Tölvuárásir, öryggisgallar og beiting slíkra upplýsinga í pólitískum tilgangi vegur þyngst. En Zuckerberg vill bregð- ast við einum þætti vand- ans, þeim sem snýr að öryggi persónulegra upplýsinga, með því að stíga skrefinu lengra við samræmingu skilaboðaþjónustanna. Hann hefur, samkvæmt The New York Times, ákveðið að innleiða svokallaða dul- kóðun frá enda til enda (e. end-to- end encryption) í öll forritin. Þetta þýðir að lesandi og sendandi eru þeir einu sem geta lesið skilaboðin. Eins og stendur eru skilaboð á WhatsApp þau einu sem eru dulkóðuð á þennan hátt að staðaldri. Að auki er hægt að velja sérstaklega „Secret Chat“ á Messenger- appinu til að nýta sér slíkt. Ef af verður er um verulega betrumbót á öryggi skila- boða notenda að ræða. „Við viljum byggja upp eins góða skilaboðaþjón- ustu og við getum. Fólk vill að skilaboðaþjónusta sé hröð, einföld, áreiðanleg og örugg. Við erum að vinna að því að innleiða dulkóðun frá enda til enda,“ sagði í til- kynningu frá tæknirisanum. Nokkra óánægju eða jafnvel furðu má þó greina á meðal starfsmanna Insta- gram og WhatsApp. Zucker- berg hafði lofað því við kaupin á miðlunum tveimur að þeir yrðu sjálfstæðir. Zuckerberg þykir því vera að ganga á bak orða sinna. thorgnyr@frettabladid.is Skilaboðaþjónustur verða samræmdar Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook, ætlar að gera notendum WhatsApp, Facebook Messenger og Instagram kleift að senda skilaboð þvert á miðla. Örugg- ari dulkóðun verður innleidd. Ákvörðunin sögð umdeild meðal starfsmanna. Zuckerberg er með miklar áætlanir fyrir árið 2019. NORDICPHOTOS/AFP í jafnflóknum leik og StarCraft II er. Tölvan hefur aðgang að minni hluta upplýsinga um leikinn, þarf að leika miklum mun fleiri leiki og munurinn á fjölda mögulegra leikja er stjarnfræðilegur. Í þokka- bót er leikurinn í rauntíma en leik- menn skiptast ekki á að gera, líkt og í skák. Lýsendur mega vart vatni halda yfir snilli gervigreindarinnar. „Þetta er stórkostleg spilamennska. Svona góða spilamennsku sjáum við ekki oft,“ sagði lýsandinn Kevin van der Kooi. Að sögn Oriols Vinyals, eins stjórnenda AlphaStar-verkefnis- ins, er markmiðið með þessari vinnu ekki að rústa mannkyn- inu í tölvuleikjum heldur að þróa almenna gervigreind sem getur tekið ákvarðanir til jafns við eða betur en mannfólkið. „Til þess er mikilvægt að skoða frammistöðu gervigreindarinnar í mismunandi aðstæðum.“ – þea TÆKNI 2 6 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 6 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 4 F B 1 2 8 s _ P 1 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 2 5 -9 2 E 0 2 2 2 5 -9 1 A 4 2 2 2 5 -9 0 6 8 2 2 2 5 -8 F 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 2 8 s _ 2 5 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.