Fréttablaðið - 26.01.2019, Page 20

Fréttablaðið - 26.01.2019, Page 20
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Gunnar Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Þeir tala vissulega mikið um iðrun en um leið eru þeir stöðugt að vísa í sekt annarra. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Þess verður ekki sérlega vart að Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveinsson, þing­menn Miðflokksins, sem hæst höfðu á Klausturbar iðrist gjörða sinna einlæglega. Þeir tala vissulega mikið um iðrun en um leið eru þeir stöðugt að vísa í sekt annarra. Þannig átti að þeirra eigin sögn fólska forseta þingsins, Steingríms J. Sigfússonar, í þeirra garð og annarra Klaustursmanna, stóran þátt í að þeir ákváðu að hraða sér aftur á þing í trássi við vilja þjóðarinnar. Þeim hefur einnig orðið tíðrætt um ólögmæta upptöku á klámtali þeirra á Klausturbar og gremja þeirra í garð Báru Halldórsdóttur er augljós. Heift Miðflokksmanna í hennar garð var reyndar svo mikil að þeir vildu draga hana fyrir dóm fyrir að hafa hljóðritað samtal þeirra og gáfu jafnvel í skyn að hún væri handbendi pólit­ ískra andstæðinga þeirra. Klaustursþingmennirnir hafa frá upphafi neitað að horfast í augu við það að lögmæti eða ólögmæti upptökunnar skiptir þjóðina engu. Orðin skelfilegu sem þingmennirnir viðhöfðu skipta öllu. Þingmenn eru kjörnir fulltrúar þjóðar­ innar og hætta ekki að vera það á barnum. Vilji þjóðarinnar skiptir Klaustursþingmenn litlu máli. Þeir hamra á því að þeir sitji í umboði kjósenda, jafnvel þótt sá hópur sé afar ósáttur við framkomu þeirra. Það skiptir máli hvernig þingmaður hegðar sér á kjörtímabili og þegar hann hefur fyrirgert öllu trausti þá verður hann að íhuga hvort ekki sé farsælast fyrir flokk, þing og þjóð að hann víki. Slík hugsun virðist ekki hafa hvarflað að Bergþóri og Gunnari Braga. Þeir ætla að sitja sem fastast á þingi og treysta á að í næstu kosningum sé þjóðin búin að gleyma framferði þeirra. Báðir þingmenn hafa talað um fyrirgefninguna og mikilvægi hennar. Bergþór sagði í Kastljósþætti að fyrirgefning stækki þann sem hana veiti og þann sem við henni taki. Þetta hljómar ágætlega, en samt er rétt að staldra við þessi orð og setja þau í samhengi við við­ brögð þeirra félaga og annarra Klaustursþingmanna. Klaustursþingmönnunum hefur einfaldlega reynst ófært að sýna iðrun í verki. Bergþór og Gunnar Bragi fóru í frí þar sem þeir voru í felum og létu ekki ná í sig. Síðan sneru þeir aftur á vinnustaðinn, nánast eins og ekkert hefði í skorist. Vissulega fóru þeir með iðrunarorð í fjölmiðlaviðtölum sem þeir mættu í. En um leið var engin sérstök sannfæring í þeim orðum, undirliggjandi gremja var afar áberandi. Ef rýnt er í skýringar þeirra má greina að verst þykir þeim að upp um þá komst og þeim virðist ómögulegt að sætta sig við það. Þeir benda síðan í allar áttir, á Steingrím J. Sigfússon sem á að vera með þá í einelti, á Báru Hall­ dórsdóttur sem þeir telja afar forherta og þeim virðist ómögulegt að fyrirgefa Lilju Alfreðsdóttur fyrir að vilja ekki fyrirgefa þeim. Í stað þess að tala eins og þeir eigi rétt á fyrirgefn­ ingu og benda í ýmsar áttir ættu þingmennirnir að átta sig á því að staða þeirra er þannig að þeir eiga ekki að hafa dagskrárvald í íslensku samfélagi. Fyrirgefningin Öldruð kona féll í yfirlið á forsýningu nýs leikrits í Breska þjóðleikhúsinu í síðustu viku. Grófar kyn­lífssenur og ofbeldi í verkinu fóru fyrir brjóstið á mörgum í áhorfendasalnum. Hollywood stjarnan Cate Blanchett sem fer með aðalhlutverk í sýningunni sagði í viðtali við The Guardian að hún liti svo á að „leikhús ætti að ögra“. Auðir veggir Fyrir nokkrum árum flakkaði ég milli listagallería Chelsea hverfis í New York í hópi góðra vina. Við fliss­ uðum að fáránleika sumra verkanna og skeggræddum önnur milli þess sem við litum á klukkuna og biðum eftir að „cocktail hour“ hæfist. Í einu galleríanna blöstu við okkur auðir veggir. Þegar betur var að gáð kom í ljós að veggirnir voru ekki auðir. Þeir voru þaktir sæði karl­ manna. Listamaðurinn Andreas Slominski hafði auglýst eftir körlum á Craigslist sem voru reiðubúnir – reðurbún­ ir – til að mæta í galleríið og láta af hendi rakna framlag til verksins. Ekki var talað um annað yfir kokteilunum. Ritskoðun, púritanismi og tepruskapur Nýverið voru nektar myndir eftir Gunnlaug Blöndal fjarlægðar af veggjum Seðlabanka Íslands. Málverkin af barmgóðum módelum höfðu farið fyrir brjóstið á starfs­ mönnum. Athæfið vakti hörð viðbrögð listunnenda sem sögðu það jafnast á við að brenna bækur. Bandalag íslenskra listamanna kallaði ákvörðun Seðlabankans ritskoðun, púritanisma og tepruskap. Ég verð að viðurkenna að ég var ein þeirra sem stóðu á öndinni af vandlætingu eftir fyrstu fréttir af ákvörðun Seðlabankans. Hvílíkur plebbaháttur! En þegar ég staldraði við og hugsaði málið blasti við mér ískaldur mergurinn málsins. Mér að óvörum var hann ekki: Túttur; olía á striga. Kjarnann fann ég þegar ég leit í eigin barm og sá þar hornstein skoðunar minnar á stóra mál­ verkahneykslinu: Minn eigin andlausa menningarhroka. Júllur annarra kvenna Fyrir ári bárust fréttir af því að Síldarvinnslan hefði bannað starfsmönnum að hengja upp dagatöl prýdd fáklæddum eða nöktum konum. Gunnþór Ingvarsson, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar, sagði í viðtali að mikilvægt væri að bregðast við karllægu vinnuumhverfi í sjávarútvegi og hann vildi „að konum sem vinna hjá Síldarvinnslunni líði vel“. Framtakið mæltist vel fyrir. Ekki var minnst einu orði á bókabrennur og púritanisma. Þeir sem sjá djúpstæðan mun á því að skreyta veggi vinnustaðar með annars vegar fáklæddum konum sem flatmaga munúðarfullar, berar að ofan, í töfraveröld úr olíu á striga þar sem lögmál fagurfræðinnar trompa lögmál náttúrunnar og ekki einu sinni þyngdaraflið bítur á bústna barma og hins vegar fáklæddum konum í dagatali þar sem sílikon heldur brjóstunum stinnum eru blindaðir af snobbi. Brjóst eru brjóst. Ef við ákveðum sem samfélag að þegar kona gengur á fund yfirmanns síns – hvort sem það er í Seðlabankanum eða Síldar­ vinnslunni – með aldalanga hlutgervingu kvenkynsins á bakinu að henni sé hlíft við því að hafa júllur annarra kvenna í smettinu á meðan hún reynir að sýna fram á að hún er meira en bara brjóst er enginn munur á Gunn­ laugi Blöndal og Playboy dagatali. Að halda því fram að það sé staður og stund fyrir list er ekki ritskoðun. Fáir teldu það heilagan rétt leikhópsins sem stendur að klámfengnu leiksýningunni í Breska þjóðleikhúsinu sem varð til þess að leið yfir eldri konu að ryðjast inn á elliheimilið Grund og herma eftir kynlífi uns liði yfir alla vistmenn. Ef Breska þjóðleikhúsinu væri hins vegar bannað að setja upp umrætt leikverk vegna innihalds þess væri sannarlega um ritskoðun að ræða. Ef Andreas Slominski mætti í Kringluna með hóp karlmanna sem tæki að skreyta veggina með brundi er ólíklegt að sú krafa heyrðist að gestir og gangandi yrðu einfaldlega að umbera verknaðinn í nafni listræns frelsis. Líklegra er að hringt yrði á lögregluna. Sæðið tæki sig þó vafalaust ágætlega út á veggjum Gallerís Foldar. Þar væri hverjum sem er frjálst að fjárfesta í verkinu, fara með það heim og smella því á stofuvegginn við hliðina á Gunn­ laugi Blöndal eða Playboy dagatali. Túttur; olía á striga Innritun fatlaðra nemenda á starfs- brautir í framhaldsskólum 2019 Innritun fatlaðra nemenda, sem óska eftir skólavist á starfsbrautum framhaldsskóla, fer fram dagana 1. – 28. febrúar 2019. Allar leiðbeiningar varðandi innritunarferlið er að finna í bréfi til nemenda og forráðamanna þeirra sem afhent verða í grunnskólum landsins. Bréfin og leiðbeiningar má einnig finna á menntagatt.is. Listi yfir skóla sem bjóða upp á starfsbrautir er að finna á menntagatt.is, en upplýsingar um brautirnar sjálfar er að finna á vefsíðum viðkomandi framhaldsskóla og hjá fors- varsfólki brautanna. Nánari upplýsingar um rafræna innritun á starfsbrautir veitir Guðný Ásta Snorradóttir hjá Menntamálastofnun í síma 514 7500 eða í gegnum tölvupóstinn innritun@mms.is. 2 6 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 2 6 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 4 F B 1 2 8 s _ P 1 0 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 2 5 -8 D F 0 2 2 2 5 -8 C B 4 2 2 2 5 -8 B 7 8 2 2 2 5 -8 A 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 2 8 s _ 2 5 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.