Fréttablaðið - 26.01.2019, Qupperneq 24
Njarðvík - Tindastóll 75-76
Stigahæstir: Elvar Már Friðriksson 20, Mario
Matasovic 15/15 fráköst, Logi Gunnarsson
12, Jeb Ivey 10 - Urald King 25/10 fráköst,
Danero Thomas 14, Viðar Ágústsson 10,
Pétur Rúnar Birgisson 10, Brynjar Þór
Björnsson 8/7 stoðsendingar.
Nýjast
Domino’s-deild karla
HM í handbolta
Undanúrslit
Danmörk - Frakkland 38-30
Markahæstir: Mikkel Hansen 12/4, Rasmus
Lauge 6, Morten Olsen 5, Anders Zacharias-
sen 5 - Kentin Mahé 8/2, Melvyn Richardson
6/2, Timothey N’Guessan 4.
Þýskaland - Noregur 25-31
Markahæstir: Uwe Gensheimer 7/4, Fabian
Bohm 6, Fabian Wiede 5 - Magnus Rod 7,
Sander Sagosen 6, Bjarte Myrhol 6.
Danmörk og Noregur mætast í úrslitaleik
HM á morgun.
Bristol City - Bolton 2-1
Arsenal - Man. Utd. 1-3
0-1 Alexis Sánchez (33.), 0-2 Jesse Lingard
(33.), 1-2 Pierre-Emerick Aubameyang (43.),
1-3 Anthony Martial (82.).
Enska bikarkeppnin
Hannes tekur
við Selfossi
HANDBOLTI Hannes Jón Jónsson
tekur við þjálfun karlaliðs Selfoss
í handbolta eftir tímabilið. Hann
tekur við þjálfarastarfinu af Patreki
Jóhannessyni sem fer til Skjern í
sumar. Hannes skrifaði undir þriggja
ára samning við Selfoss. Auk þess að
þjálfa karlaliðið verður hann fram-
kvæmdastjóri handboltaakademí-
unnar sem er rekin í samstarfi við
Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Hannes var látinn fara frá West
Wien fyrr í þessum mánuði en
hann hafði stýrt austurríska liðinu
frá 2015. Hann lauk ferli sínum sem
leikmaður með West Wien. Hannes
lék einnig í Danmörku, Noregi og
Þýskalandi. Hann lék með Selfossi
á árunum 2001-03. – iþs
Frá Svíþjóð til
Englands
FÓTBOLTI Rakel Hönnudóttir er
gengin í raðir Reading á Englandi frá
Linhamn Bunkeflö 07 í Svíþjóð. Hún
lék með liðinu á síðasta tímabili og
átti mjög stóran þátt í að LB07 hélt
sér í sænsku úrvalsdeildinni.
Rakel, sem er þrítug, var úthlutað
treyju númer 15 hjá Reading. Hún
gæti þreytt frumraun sína með
liðinu þegar það mætir Arsenal á
morgun.
Rakel hefur leikið 94 landsleiki
og farið með íslenska landsliðinu
á þrjú Evrópumót (2009, 2013 og
2017). Hún varð Íslandsmeistari
með Breiðabliki 2015 og bikar-
meistari 2013 og 2016. – iþs
Hannes Jón verður eftirmaður Pat-
reks á Selfossi. NORDICPHOTOS/GETTY
Hilmar Snær brosmildur á verðlaunapalli eftir að hafa unnið keppnina í svigi á heimsbikarmóti IPC í Króatíu á dögunum. MYND/ÞÓRÐUR HJÖRLEIFSSON
Svigið efst í forgangsröðuninni
Hilmar Snær Örvarsson varð á dögunum fyrsti Íslendingurinn til að vinna til gullverðlauna á heimsbikar-
móti á skíðum þegar hann bar sigur úr býtum í svigi. Hann fylgdi því eftir með því að lenda í 4. sæti á HM.
SKÍÐI Skíðakappinn Hilmar Snær
Örvarsson, sem keppir fyrir hönd
Víkings, náði á dögunum merku
afreki þegar hann varð fyrsti Íslend-
ingurinn til að vinna til gullverðlauna
í svigi á heimsbikarmóti IPC í Kró-
atíu. Fram að því var eitt besta afrek
Íslendings á heimsbikarmóti þegar
Kristinn Björnsson lenti í öðru sæti
á tveimur mótum árið 1997 og 1998.
Frá Króatíu hélt Hilmar til Slóven-
íu og tók þátt í HM í alpagreinum
þar sem hann lenti í 4. sæti í svigi
og 20. sæti í stórsvigi. Þar munaði
aðeins 29 sekúndubrotum að Hilm-
ar tæki bronsverðlaun í svigi, tæpu
ári eftir að Hilmar Snær var eini
fulltrúi Íslendinga á Vetrarólympíu-
leikum fatlaðra í PyeongChang, þá
aðeins sautján ára.
Hilmar Snær sem keppir í flokki
aflimaðra, LW2, kom aftur til lands-
ins á fimmtudaginn og var mættur á
skólabekk strax daginn eftir. Hann
stundar nám við Verzlunarskóla
Íslands og kunni þeim bestu þakkir
fyrir skilning á stöðu hans.
„Þeir sýndu því skilning þegar ég
óskaði eftir fríi og hafa staðið með
mér þótt það hafi oft verið erfitt að
byrja að læra þegar ég var úti,“ sagði
Hilmar léttur í samtali við Frétta-
blaðið. Aðspurður sagðist hann
horfa stoltur til baka.
„Maður finnur fyrir ótrúlega
miklu stolti og ég horfi ánægður
til baka. Ég reyndi að ná upp meiri
hraða í seinni ferðinni í Króatíu, var
svolítið ákveðnari þar þegar færi
gafst á síðasta kafla brautarinnar,“
sagði Hilmar sem var að keppa við
bestu aðstæður.
„Aðstæðurnar voru frábærar á
báðum stöðum og færið gott. Ekki
hægt að fá það mikið betra, braut-
irnar góðar með smá klaka undir.
Þjálfarinn minn, Þórður, var með
skíðin mín vel brýnd og í topp-
standi sem gaf mér tækifæri á að
halda betur stjórn.“
Líkt og á Vetrarólympíuleik-
unum lenti Hilmar í 20. sæti í stór-
svigi á HM í Slóveníu en aðspurður
segist hann leggja meiri áherslu á að
keppa í svigi í framtíðinni.
„Ég er nokkuð sáttur með stór-
svigið í Slóveníu, ég gat gert aðeins
betur og náð 2-3 sætum ofar en ég
lenti í vandræðum með lengd braut-
arinnar. Hún var talsvert lengri en
ég hef átt að venjast,“ sagði Hilmar
og hélt áfram:
„Svigið er efst í forgangsröðun-
inni hjá mér. Ég ræð betur við það
og hef meiri áhuga á því til lengri
tíma enda tel ég að það henti mér
betur. Það eru mun betri aðstæður
til að æfa svig á Íslandi en stórsvig og
því auðveldara að taka framförum
hér á landi. Svo er það skemmti-
legra að mínu mati. Ég mun samt
halda áfram að æfa stórsvigið, það
er öðruvísi tækni sem ég get notið
góðs af og get vonandi tekið eitt-
hvað úr því í svigið,“ sagði Hilmar
sem vann í úthaldi og líkamlegum
styrk í sumar.
„Stærsti munurinn síðasta árið
er hvað ég bætti mig í líkamlegum
styrk og úthaldi. Það hjálpaði í
þessum mótum eftir að hafa unnið í
því síðasta sumar. Svo vorum við
reynslunni ríkari eftir PyeongChang
og gátum undirbúið okkur betur,“
sagði Hilmar sem sagði næstu skref
óráðin.
„Ég er ekki með nein langtíma-
markmið eins og er en mun hitta
Þórð, þjálfara minn á næstunni og
við ræðum næstu skref á ferlinum.
Við eigum alveg eftir að ræða það
en síðasta ár vekur bara eldmóð hjá
manni að ná enn lengra.“
kristinnpall@frettabladid.is
Svigið er efst í
forgangsröðuninni
hjá mér. Ég ræð betur við það
og hef meiri áhuga á því.
Hilmar Snær Örvarsson
HANDBOLTI Danmörk og Noregur
mætast í úrslitaleik heimsmeist-
aramótsins í handbolta í Herning
á morgun. Hvorugt liðið hefur áður
unnið HM og því verða nýir heims-
meistarar krýndir á morgun.
Mikkel Hansen sýndi allar sínar
bestu hliðar þegar Danir unnu
ríkjandi heimsmeistara Frakka,
38-30, í fyrri undanúrslitaleiknum
í gær. Hansen skoraði tólf mörk úr
aðeins 15 skotum og gaf sex stoð-
sendingar. Hann er langmarka-
hæstur á HM með 65 mörk.
Danir léku frá-
bæran sóknar-
leik sem franska
vörnin réð ekk-
ert við. Þá vörðu
frönsku mark-
verðirnir, Vin-
cent Gerard
og Cyril Dum-
oulin, aðeins fjög-
ur skot samanlagt.
Þetta er í fjórða sinn
sem Danir leika til úrslita
á heimsmeistaramóti. Þeir
töpuðu úrslitaleik HM 1967, 2011
og 2013.
Í seinni undanúrslitaleiknum
vann Noregur sex marka sigur
á Þýskalandi, 25-31. Norð-
menn komust einnig í úrslit
á HM 2017 þar sem þeir töp-
uðu fyrir Frökkum.
Þetta var fyrsta tap Þjóðverja
á HM og heimavöllurinn dugði
skammt en báðir undanúrslita-
leikirnir fóru fram í Hamborg. Nor-
egur hefur unnið átta af níu leikjum
sínum á HM í ár. Eina tapið kom
gegn Danmörku í riðlakeppninni.
Magnus Rod skoraði sjö mörk
fyrir Noreg í leiknum í gær og þeir
Sander Sagosen og Bjarte Myrhol
sín sex mörkin hvor. Uwe Gens-
heimer skoraði sjö mörk fyrir
Þýskaland sem mætir Frakklandi í
bronsleiknum á morgun. – iþs
Nýir heimsmeistarar krýndir á morgun
Mikkel Hansen
skoraði tólf mörk
gegn Frökkum.
NORDICPHOTOS/GETTY
2 6 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R22 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
2
6
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
2
5
-B
5
7
0
2
2
2
5
-B
4
3
4
2
2
2
5
-B
2
F
8
2
2
2
5
-B
1
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K