Fréttablaðið - 26.01.2019, Side 34
SANDBLÁSTURSFILMUR
Sundaborg 3
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
Ráðgjöf
Tilboð
Hönnun
Uppsetning
Forðast gryfju hallærislegheitanna
Þrándur Þórarinsson hefur slegið í gegn með
mögnuðum málverkum þar sem hann siglir
gegn straumnum í bjargfastri trú sinni á olíu
á striga. Fréttablaðið ræddi við hann um
nektarlist, alls konar gamma og Goya. Þrándur Þórarinsson hefur alltaf farið sínar eigin leiðir í myndlistinni. Hann lítur á sig sem gamaldags myndlistarmann og fæst nán
ast einungis við olíu á striga undir
áhrifum gömlu meistaranna og þá
fyrst og fremst Francisco Goya.
Hann hefur þróað sinn persónu
lega stíl og saman við olíulitina
blandar hann gömlum þjóðsagna
minnum og dægurmenningu sam
tímans oft með dökkum og demón
ískum undirtónum en varpar um leið
kómísku ljósi á samtímann. Hann
stendur þannig traustum fótum í for
tíðinni á meðan hann sveiflar pensl
unum í hringiðu líðandi stundar og
töfrar þá oftar en ekki fram hárbeitta
samfélagsgagnrýni.
Verk Þrándar hafa vakið gríðarlega
og verðskuldaða athygli og rokseljast
þannig að óhætt er að segja að hann
sé ein helsta stjarnan í íslenskum
myndlistarheimi um þessar mundir.
Þú getur alveg viðurkennt að þú ert
orðinn rosalega vinsæll, er það ekki?
„Jú, jú, ég get alveg gengist við því,“
segir Þrándur og glottir hógvær þar
sem hann situr á vinnustofu sinni
fyrir framan verk sem er í vinnslu á
stórum striga.
Það vakti athygli þegar Frétta
blaðið.is greindi nýlega frá því að
þrátt fyrir miklar vinsældir og að
hafa helgað sig eingöngu myndlist
inni síðustu tíu þykir Þrándur ekki
gjaldgengur í Samband íslenskra
myndlistarmanna. Fyrst og fremst
vegna þess að hann hefur ekki lokið
BAprófi í myndlist.
Hann segist ekki kippa sér upp
við þetta og tekur höfnuninni síður
en svo persónulega. „Mér finnst nú
líklegt að þetta hafi bara verið ein
hverjir svona pappakassar sem hafi
ákveðið að ég uppfylli ekki skil
yrðin,“ segir Þrándur sem hætti á
sínum tíma í Listaháskólanum þar
sem hann sá ekki fram á að geta lært
mikið þar.
Er eitthvað til í því að þú hafir verið
rekinn úr LHÍ vegna listræns ágrein-
ings, ef svo má sega?
„Nei, mér var ekki beinlínis
sparkað út og hætti bara vegna þess
að það sem ég var að gera átti ekki
upp á pallborðið þarna. Ég sá það
líka sjálfur að ég gæti kannski ekk
ert lært það sem mig langaði að læra
þarna. Vegna þess að það var enginn
þarna til þess að kenna mér.
Áherslan var mest á hugmyndalist
og konseptlistina. Ég veit svo sem
ekki alveg hvernig þetta er núna en
hugsa að þetta sé svipað og þá og lítil
sem engin áhersla lögð á tæknilega
málun.“
Þrándur segist alla sína tíð hafa
teiknað og litað en á menntaskóla
árunum hafi hann farið að fikra sig
yfir í málverkið. „Ég fæst eiginlega
ekki við neitt annað en olíu á striga
en hef fiktað eitthvað í þrykki og
Þórarinn
Þórarinsson
thorarinn@frettabladid.is
MÉR FINNST NÚ LÍKLEGT
AÐ ÞETTA HAFI BARA
VERIÐ EINHVERJIR SVONA
PAPPAKASSAR SEM HAFI
ÁKVEÐIÐ AÐ ÉG UPPFYLLI
EKKI SKILYRÐIN.
Þrándur undirbýr sýningu sem verður opnuð á Akureyri í febrúar þangað sem hann mun mæta með þessa heiðursmenn en Kolbeinn datt einmitt íða á Akureyri í Dularfullu stjörnunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
↣
2 6 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
6
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
2
5
-B
F
5
0
2
2
2
5
-B
E
1
4
2
2
2
5
-B
C
D
8
2
2
2
5
-B
B
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K