Fréttablaðið - 26.01.2019, Side 62

Fréttablaðið - 26.01.2019, Side 62
Sérfræðingur í fjármáladeild kopavogur.is Helstu verkefni: • Vinnur að gerð fjárhagsáætlunar o.fl. því tengdu. • Umsjón með eigna- og verkbókhaldskerfi bæjarins. • Undirbýr og vinnur uppgjör og afstemmingar skv. reglum innra eftirlits. • Vinnur að uppstillingu ársreiknings. • Veitir ráðgjöf varðandi bókhalds- og uppgjörsmál. • Vinnur við almennt rekstrareftirlit með stofnunum bæjarins. • Tekur saman fjárhagsupplýsingar og miðlar þeim áfram. Laust er til umsóknar starf sérfræðings í fjármáladeild Kópavogsbæjar. Allt bókhald fyrir bæinn er unnið í deildinni ásamt fjárhagslegri greiningu, áætlunum, ársuppgjöri og árshlutauppgjöri. Fjármáladeild sér einnig um innheimtu á kröfum bæjarins, fjármögnun hans og fjárstýringu. Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar 2019. Nánari upplýsingar um starfið veitir fjármálastjóri, Ingólfur Arnarson, ingolfura@kopavogur.is, s. 899 9500. Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags innan BHM. Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is. Menntunar- og hæfniskröfur: • Viðskiptafræðingur af fjármála- eða endurskoðunarsviði. • Þekking á starfsemi sveitarfélaga kostur. • Þekking á opinberum rekstri kostur. • Góð þekking í Navision • Góð samskipta- og samstarfshæfni. • Framúrskarandi Excel kunnátta. • Góð íslenskukunnátta og hæfni í ræðu og riti. • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi. Markaðs- og viðburðastjóri Þróttar. Knattspyrnufélagið Þróttur leitar eftir markaðs- og viðburða- stjóra til starfa fyrir félagið í fullu starfi. Í því felst m.a. stjórnun viðburða, verkstjórn í markaðs- og kynningarmálum, umsjón með fjáröflun, samskipti við styrktarfyrirtæki og störf fyrir deildir félagsins auk annarra verkefna samkvæmt samningi. Viðkomandi þarf að hafa menntun sem nýtist í starfi, haldgóða reynslu af sölu og markaðsmálum, ódrepandi trú á viðfangs- efninu og mikinn áhuga á íþróttum og öllu sem þeim tengist. Markaðs- og sölumál eru vaxandi hluti af starfsemi íþrótta- félaga og mikilvægt að þeim sé sinnt á skapandi hátt þar sem hagsmunir starfsmannsins og félagsins fara saman við tekju- öflun. Því leitum við að hugmyndaríkri manneskju sem býr yfir frumkvæði og getur starfað sjálfstætt en á um leið auðvelt með að vinna í hópi. Knattspyrnufélagið Þróttur, sem fagnar á þessu ári 70 ára afmæli sínu, er staðsett á besta stað í Reykjavík, í miðju Laugardalsins. Í félaginu er alltaf líf og fjör og tækifærin mýmörg. Fjölgað hefur verulega í félaginu síðustu misserin og framundan eru miklar breytingar og uppbygging á félagssvæðinu m.a. vegna þéttingar byggðar í nágrenni Laugardalsins. Umsóknum skal skilað fyrir 30. janúar til Ótthars Edvardssonar framkvæmdastjóra Þróttar á netfangið, otthar@trottur.is. Hann veitir jafnframt nánari upplýsingar. Vegagerðin leitar að nýjum öflugum liðsmanni á gæðadeild. Starfið felst fyrst og fremst í skipulagningu, umsjón og framkvæmd gæðaeftirlits á þjónustu þjóðvega á landsvísu, auk úrvinnslu, framsetningar og kynningar á niðurstöðum þess. Gæðadeild ber ábyrgð á uppbyggingu og rekstri gæða-, umhverfis og öryggisstjórnunarkerfis stofnunarinnar. Eftirfylgni með að kröfum um ástand vega og að skráðu verklagi sé fylgt er því veigamikill þáttur í starfsemi deildarinnar. Vegagerðin er landfræðilega dreifð stofnun með um tuttugu starfsstöðvar og starfsmenn einstakra deilda því staðsettir víðs vegar um landið. Því getur nýr starfsmaður haft búsetu hvar sem er á landinu þar sem starfsstöð er fyrir. Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun á sviði raungreina eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi. • Mjög góð þekking á upplýsingatækni. • Góð þekking og reynsla við úrvinnslu tölfræðigagna, framsetningu þeirra og skýrslugerð. • Sjálfstæð, nákvæm og öguð vinnubrögð. • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp. • Framúrskarandi samskiptafærni. • Góð kunnátta í talaðri og ritaðri íslensku og ensku, kunnátta í norðurlandatungumáli æskileg. Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags og umsóknarfrestur er til og með 11. febrúar 2019. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásrún Rudolfsdóttir, forstöðumaður gæðadeildar í síma 522 1000. Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur um hæfi til að gegna umræddu starfi. Umsóknir berist Vegagerðinni á netfangið starf@vegagerdin.is. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Starfsmaður á gæðadeild Ábyrgð og verkefni • Skipulagning, umsjón og framkvæmd gæðaúttekta á ástandi þjóðvega. • Umsjón og þátttaka í úttektum á vinnusvæða- merkingum. • Undirbúningur og úrvinnsla gagna, framsetning og kynning á niðurstöðum gæðaúttekta. • Þátttaka í innri úttektum á gæða-, umhverfis- og öryggisstjórnunarkerfi Vegagerðarinnar. • Ritstjórn og útgáfa á niðurstöðum gæðaúttekta. Ástjarnarkirkja Kirkjuvörður Sóknarnefnd Ástjarnarsóknar auglýsir eftir kirkjuverði við Ástjarnarkirkju í a.m.k 70% starf. Um er að ræða krefjandi, skemmtilegt og metnaðarfullt framtíðarstarf. Í starfinu felst m.a. dagleg umsjón með húsnæði sóknarinnar, umsjón með viðburðum og innkaup. Sömuleiðis aðstoð við helgihald og safnaðarstarf, létt viðhaldsvinna, ræsting og þrif. Og önnur tilfallandi verkefni í samstarfi við presta og sóknarnefnd. Kirkjuvörður þarf að hafa góða almenna menntun, ásamt tölvukunnáttu. Sérstök áhersla er lögð á færni í mannlegum samskiptum, lipurð og sveigjanleika ásamt að búa yfir ríkri þjónustulund. Hæfniskröfur eru stundvísi, sjálfstæð vinnu- brögð og skipulagshæfni, áhersla er lögð á trúmennsku í starfi og metnað til þess að takast á við mismunandi verkefni. Óskað er eftir því að umsækjendur geri skriflega grein fyrir menntun, starfsferli, starfsreynslu og hverju öðru sem þeir telja að muni nýtast í starfi. Umsækjendur skulu hafa óflekkað mannorð og vera tilbúnir að veita samþykki fyrir öflun upplýsinga úr sakaskrá í samræmi við siðareglur þjóðkirkjunnar. Starfið hentar ekki síður konum en körlum. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 5. febrúar 2019 Umsókn sendist til: Kjartan Jónsson sóknarprestur kjartan.jonsson@kirkjan.is sem veitir upplýsingar um starfið. Afgreiðslustarf Lítið þjónustufyrirtæki óskar eftir að ráða starfsmann til léttra afgreiðslu- og skrifstofustarfa. Um er að ræða 60-80% starf fyrir einstakling sem er vel skipulagður, úrræðagóður og með ríka þjónustulund. Vinnutíminn er frá kl. 9-16. Umsóknir óskast sendar á thjonusta@thmb.is fyrir 15. febrúar. Þjónustumiðstöð bókasafna 2 6 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 4 F B 1 2 8 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 2 5 -D 8 0 0 2 2 2 5 -D 6 C 4 2 2 2 5 -D 5 8 8 2 2 2 5 -D 4 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 2 8 s _ 2 5 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.