Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Blaðsíða 18
18 SPORT 14. desember 2018 Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt Gylfi er besti knattspyrnu- maður Íslands árið 2018 Árið er senn á enda og hefur verður viðburðaríkt fyrir íslenska knattspyrnumenn og Gylfi Þór Sigurðsson er í sérflokki að mati þjóðarinnar. Álitsgjafar DV settu saman fimm manna lista yfir bestu knattspyrnumenn Íslands árið 2018 og lesendur fengu svo að kjósa. Rúmlega 1.200 Íslendingar tóku þátt í könnuninni og fékk Gylfi meira en helming allra atkvæða. Jafnt var á meðal þeirra sem eru í öðru og þriðja sæti á listanum. Lesendur DV voru í miklum meirihluta sam­ mála um að Gylfi væri langbesti knattspyrn­ umaður Íslands árið 2018. Gylfi hefur verið í mögnuðu formi á seinni hluta ársins, hann hefur verið besti leikmaður Everton á síðustu mánuðum, liðið hefur spilað vel og þar hefur Gylfi notið sín, eins og hann gerir svo vel. Gylfi skoraði annað af tveimur mörkum Íslands á HM í Rússlandi en markið kom í naumu tapi gegn Króatíu. Gylfi var að glíma við meiðsli í aðdraganda mótsins en náði sér og sýndi fína takta. Gylfi hefur verið besti knattspyrnu­ maður Íslands í mörg ár og ekkert virðist geta komið í veg fyrir að svo verði í nokkur ár til viðbótar. Alfreð hefur náð að gera magnaða hluti á árinu miðað við öll þau áföll sem dunið hafa á honum, en endalaus meiðsli hafa hrjáð þennan öfluga leikmann. Framherjinn hefur aðeins náð að taka þátt í þrettán leikjum með Augsburg í þýsku úrvalsdeildinni, hann meiddist í upphafi árs og missti að mestu af seinni hluta tímabilsins. Hann náði heilsu fyrir heimsmeistaramótið þar sem hann skoraði sögufrægt mark, fyrsta mark Íslands á HM gegn Argentínu. Alfreð glímdi aftur við meiðsli eftir mótið en náði bata, hann hefur síðan þá skorað sjö mörk í sjö leikjum með Augsburg í deild þeirra bestu í Þýskalandi. Alfreð lék sjö landsleiki á þessu ári og skoraði í þeim fjögur mörk. Besti leikmaður Burnley árið 2018, Jóhann Berg Guðmundsson, hefur átt góðu gengi að fagna á árinu. Hann var á flugi með Burnley fyrri hluta árs þegar liðið náði frábærum árangri, endaði í sjöunda sæti ensku úrvals­ deildarinnar og sótti Evrópusæti. Jóhann hefur á síðustu árum stimplað sig inn sem einn allra besti leikmaður landsliðsins og átti fína spretti með landsliðinu á árinu þrátt fyrir slakt gengi. Á nýrri leiktíð með Burnley hefur Jóhann náð að sýna góða takta þrátt fyrir dapurt gegn liðsins sem nú berst nú fyrir lífi sínu í ensku úrvalsdeildinni, en Jóhann gerði nýjan samning við félagið í sumar. Ef eingöngu frammistaða með íslenska landsliðinu væri skoðuð, þá væri Kári líklega efstur á svona lista. Honum virðist takast það ár eftir ár að koma íslensku knattspyrnu­ áhugafólki á óvart. Kári var mjög góður með landsliðinu í ár og mikilvægi hans kemur í ljós, leik eftir leik. Kári lék með Aberdeen fyrri hluta ársins, hann ætlaði svo að koma heim í Pepsi­deildina með Víkingi. Góð frammistaða hans á HM tryggði honum hins vegar samning í Tyrklandi. Kári leikur nú með Gençlerbirligi og hefur staðið sig vel þegar hann hefur spilað. Kári er 36 ára en allt stefnir í að hann verði áfram lykilmaður í lands­ liðinu á næsta ári. Fyrirliði landsliðsins hefur átt sveiflukennt ár, meiðsli hafa hrjáð hann en framlag Arons Einar, þegar hann er heill heilsu, er hreint ótrúlegt. Frammistaða hans með Cardiff á síð­ ustu leiktíð var frábær, hann átti stóran þátt í að koma liðinu upp í ensku úrvalsdeildina. Hann lagði allt í sölurnar til að geta tekið þátt í Heimsmeistaramótinu í Rússlandi, hann glímdi við alvarleg meiðsli en setti ferilinn að einhverju leyti í hættu með því að spila. Þar tókst Aroni að komast vel frá sínu og hefur nú náð sér af meiðslum og snúið til baka með Cardiff í ensku úrvalsdeildinni. Gengi Cardiff hefur heldur betur breyst með endurkomu Arons, liðið sem virtist svo gott sem fallið úr deildinni eftir nokkra leiki er komið í fín mál eftir að fyrirliði Íslands sneri aftur. 1 sæti: Gylfi Þór Sigurðsson – 52 prósent 2–3 sæti: Alfreð Finnbogason – 16 prósent 2–3 sæti: Jóhann Berg Guðmundsson – 16 prósent 4 sæti: Kári Árnason – 10 prósent 5 sæti: Aron Einar Gunnarsson – 6 prósent Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.