Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Blaðsíða 65
6514. desember 2018
H
austið 1961 átti sér stað
óhugnanlegt mann-
dráp á Laugarnesveg-
inum í Reykjavík. Gekk
Hubert Morthens, sjómaður á
fertugsaldri, svo hart í skrokk á
eigin konu sinni að hún lést. Af-
brýðisemi var talin ein helsta
ástæðan fyrir manndrápinu og
sagði hann í yfirheyrslu að hún
hefði kallað nafn annars manns í
samförum. Hubert hlaut einung-
is sex ára fangelsisdóm fyrir þótt
hann hefði verið metinn fyllilega
sakhæfur.
Oft hávaði frá íbúðinni
Árið 1961 bjuggu hjónin Hubert
Rósmann Morthens og Ásbjörg
Haraldsdóttir við Laugarnesveg
númer 118. Þau voru bæði fædd
árið 1926, höfðu verið gift í tíu ár
og áttu saman þrjú börn. Hjóna-
bandið var hins vegar erfitt og oft-
sinnis kom til átaka á milli þeirra,
sérstaklega þegar vín var haft um
hönd. Nágrannar urðu þess varir
því mikill hávaði barst gjarnan frá
íbúðinni. Ein af ástæðunum fyrir
þessu var afbrýðisemi Huberts.
Hubert var yngsti bróðir söngv-
arans Hauks Morthens og starfaði
sem sjómaður. Laugardaginn 30.
september var Hubert að koma
úr siglingu frá Þýskalandi á togar-
anum Neptúnusi. Ásbjörg kom
niður að höfn til að sækja hann
en fór fyrst um borð í Neptúnus.
Sátu þau þar við drykkju, bæði á
sterku víni og bjór, til klukkan tvö
um nóttina. Þá fóru þau heim á
Laugarnesveginn.
„Hörmungin“
Eftir að þau komu heim til sín fóru
hlutirnir að flækjast en Hubert var
einn til frásagnar um atburðina.
Hjónin bæði rifust harkalega
og elskuðust inni á milli. Þegar
komið var fram á morgun og þau
höfðu samfarir í annað skiptið
kallaði hún nafn annars manns í
miðjum klíðum og sagðist hann
þá hafa orðið sturlaður af bræði.
Gekk hann þá í skrokk á henni
með berum höndum. Svo harka-
lega að hún gat ekki staðið. Í
yfir heyrslum talaði Hubert um
„hörmungina.“ Vegna ölvunar var
þessi nótt og morgunn að ein-
hverju leyti í móðu hjá honum.
Hann mundi hins vegar eftir því að
hafa séð Ásbjörgu liggjandi á gólf-
inu og hann hafi borið hana inn í
rúm. Þá var hún með lífsmarki.
Börnin þrjú voru sofandi í
svefnherbergi sínu en atgangur-
inn átti sér stað í stofunni. Ná-
grannarnir heyrðu læti en voru
vanir þeim og skiptu sér því ekki
af. Um hádegið fór Hubert að
ranka við sér og sá hann þá Ás-
björgu alblóðuga. Þegar hann
ætlaði að þrífa af henni blóð sá
hann að ástandið var alvarlegt.
Hringdi hann í frænku hennar
sem kom skömmu síðar. Þegar
hún sá hvernig komið var hringdi
hún samstundis í sjúkrabíl.
Sjúkrabíllinn flutti Ásbjörgu á
slysavarðstofuna og Hubert fór
með í bílnum. Frænkan tók börn-
in að sér á meðan. Þegar kom-
ið var á spítalann var Ásbjörg
úrskurðuð látin og Hubert færð-
ist ekki undan því að hafa valdið
áverkunum. Var lögregla því köll-
uð til á staðinn og Hubert færður
í varðhald.
Eins og eftir bílslys
Áverkarnir á líkinu voru stórvægi-
legir og læknar voru gáttaðir á
hvernig hægt væri að veita mann-
eskju slíkan miska með berum
höndum. Í krufningunni stóð:
„Miklir marblettir og hrufl í
andliti og svo að segja samfellt
mar undir öllu höfuðleðrinu. Þá
fundust marblettir á útlimum
og einnig á brjósti. Á brjóstkass-
anum fundust þrjú rif brotin og
tvö þeirra tvíbrotin. Rifa fannst á
þindinni, en það sem hefur valdið
dauða konunnar var stór sprunga
í lifrinni sem mikið hefur blætt
úr.“
Það var áverkinn á lifrina sem
læknarnir áttu erfiðast með að
skilja. Einn þeirra sagði:
„Slíkar stórkostlegar sprung-
ur á lifur hef ég aldrei séð nema
í sambandi við bílslys, til dæmis
þar sem hjól hefur ekið yfir
mann.“
Fannst þeim líklegast að
annað hvort hefði verið hoppað
á konunni eða stokkið á hana úr
einhverri hæð. Innvortis áverkar
voru mun meiri en þeir útvortis
gáfu til kynna.
Íbúðin var einnig rannsökuð af
lögreglu. Þar var ekkert brotið eða
bramlað en blóðslettur á gólfi og
veggjum. Einnig hár sem slitnað
hafði af höfði Ásbjargar.
Afbrýðisemi talin til
refsilækkunar
Eins og áður segir neitaði Hubert
því ekki að hafa verið valdur að
dauða Ásbjargar, þótt hann myndi
illa eftir atburðum næturinnar
og morgunsins. Var hann færður
í gæsluvarðhald og látin gangast
undir geðrannsókn. Niðurstöður
geðrannsóknarinnar voru þær að
Hubert væri fyllilega sakhæfur.
Hubert var ákærður fyrir mann-
dráp þann 29. desember og rétt-
arhöldin hófust í byrjun árs 1962.
Miðvikudaginn 7. febrúar árið
1962 var kveðinn upp dómur í
Sakadómi Reykjavíkur. Var Hubert
fundinn sekur um að hafa banað
Ásbjörgu með því að berja hana
og misþyrma illa yfir langan tíma.
Ekki hafi hann þó ætlað sér að
myrða hana. Hlaut hann sjö ára
fangelsisvist fyrir.
Dómarinn í málinu, Logi
Einarsson, sagði blaðamönnum
að skammvinnt ójafnvægi á geðs-
munum hefði leitt til refsimildun-
ar og að hann hefði verið mjög af-
brýðisamur, og það þrátt fyrir að
Hubert hafi verið talinn fyllilega
sakhæfur. Einnig að hann hafi ver-
ið í ölæði, játað strax og ekki reynt
að tefja málið á nokkurn hátt.
Hubert áfrýjaði dómnum til
Hæstaréttar sem tók málið fyrir
um haustið 1962. Í lok nóvember
var kveðinn upp dómur og refs-
ingin lækkuð í sex ára fangelsis-
vist. Tveir dómarar skiluðu hins
vegar sératkvæði og vildu að úr-
skurður Sakadóms stæði óhreyfð-
ur.
Hubert giftist aftur árið 1963
og eignaðist tvö börn til viðbótar.
Hann lést árið 2010. n
TÍMAVÉLIN
BANAÐI KONU SINNI Í AFBRÝÐISEMISKASTI
n Læknarnir gáttaðir á krufningunni n Aðeins 6 ára dómur„Slíkar stór-
kostlegar
sprungur á lifur
hef ég aldrei séð
nema í sambandi
við bílslys
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Betri
Svefn