Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 31
Þorláksmessa 21. desember 2018 KYNNINGARBLAÐ Frá því hjónakornin Andrés og Hrönn stofnuðu fjölskyldufyr-irtækið Tónastöðina árið 1987 hafa þau aðstoðað tónlistarmenn, jafnt unga sem aldna, við val á hljóð- færum og nótum, fyrst við Óðinstorg en seinustu 15 árin að Skipholti 50d þar sem verslunin er til húsa. „Þetta er ein elsta hljóðfæraverslun lands- ins og stundum grínast ég með að við eigum líklega elstu kennitöluna í bransanum,“ segir Andrés. Þekking og reynsla Á þeim árum sem Tónastöðin hefur verið starfrækt hefur skapast mikil reynsla og þekking hjá í fyrirtækinu. „Allir sem hér starfa eru með yfir- gripsmikla þekkingu og hafa annað- hvort kennt lengi eða starfað lengi í þessum bransa. Við aðstoðum alla sem hingað koma, jafnt áhugamenn sem atvinnumenn, í öllu sem viðvíkur tónlistariðkun,“ segir Andrés. Það besta verður ávallt ódýrast Í dag kostar furðulítinn pening að koma sér upp góðum búnaði til þess að að spila og taka upp tónlist og ættu flestir sem hafa áhuga á að geta gert það. „Við höfum líka alltaf lagt ríka áherslu á gæði ekki síður en gott verð. Kjörorð okkar eru enda þau að það besta verður ávallt ódýrast, því bestu kaupin eru í hlutum sem endast og reynast vel í langan tíma,“ segir Andrés og bendir á að hljóð- færi og upptökubúnaður séu gjafir sem endist og séu því margfaldlega peninganna virði: „Góðir íþróttaskór kosta tugi þúsunda og endast árið en góður gítar getur enst alla ævi.“ Andrés bendir á að hljóðfæri í Tónastöðinni séu almennt á góðu verði miðað við löndin í kring. „Kennarar hafa m.a. komið frá Noregi og Skotlandi til að kaupa nótnabæk- ur og segjast hvergi komast í betri nótnaverslanir í sínum heimalöndum. Einnig kaupa ferðamenn töluvert af hljóðfærum, þá sérstaklega dýrari hljóðfæri.“ Aldrei og seint eða of snemmt að byrja að læra Andrés bendir á það sé mikilvægt að offjárfesta ekki þegar tón- listamenn taka fyrstu skrefin, en jafnframt að gæðin verði að vera nógu mikil til að þeir verði ekki fyrir vonbrigðum. „Við leggjum áherslu á að þjónusta alla, börn, byrjendur og lengra komna á öllum aldri. Hér er til dæmis gott úrval af hljóðfærum sem eru sérsniðin fyrir börn þ.e. eru í rétt- um hlutföllum við stærð barnanna. Að sjálfsögðu ráðleggjum við foreldr- um hvað passar hverju barni hvað varðar gæði og stærð,“ segir Andrés. Tónastöðin er einnig með gott úrval af hljóðfærum fyrir örvhenta. „Viðskiptavinir Tónastöðvarinnar eru á öllum aldri, jafnt ungir sem aldnir. Þetta fólk er mjög mislangt komið í tónlistinni og okkur finnst sérstaklega gaman að fá eldra fólk hingað, sem hefur kannski aldrei snert hljóð- færi, og er að stíga sín fyrstu skref í tónlistinni,“ segir Andrés og bendir á að það sé aldrei of seint að byrja að læra. Gífurlegt úrval og góð þjónusta „Við erum stolt af því að eiga mesta úrval af nótnabókum á landinu. Hér fást margar þúsundir titla og ættu flestir geta fundið nótur að uppá- haldslögunum sínum. Hér fást líka all- ar tegundir hljóðfæra. Við erum með trommur, píanó, gítara, rafmagnsgít- ara, upptökutæki, magnara og svo margt fleira, úrvalið hefur aldrei verið meira.“ Hvað á svo að gefa í jólagjöf? Fyrir þá sem eru farnir að hugsa til hátíðanna þá eru gjafabréf í Tóna- stöðinni ávallt vinsæl enda svo margt til þar sem gleður tónlistarmenn og tónlistaráhugafólk. Gjafabréfin er hægt að fá með upphæð að eigin vali. Einnig er auðvelt að skipta út vörum ef það heppilegasta hefur ekki verið valið. Nánari upplýsingar má nálgast á www.tonastodin.is og á Facebook- -síðunni Tónastöðin Skipholti 50d, Reykjavík, Sími: 552-1185 Netfang: tonastodin@tonastodin. is n TÓNASTÖÐIN SKIPHOLTI: Rótgróin en síung
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.