Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 54
54 FÓLK 21. desember 2018 LOKAÐIR STURTUKLEFAR MEÐ TOPPI, SPORNA GEGN RAKA OG MYGLU Kíktu á sturta.is og skoðaðu úrvalið S. 856 5566 Jólahefðir, skötuát og nýársheit Að vakna ofan í blómapotti og kartöflumjölsbaðferðir það eftirminnilegasta Þ að hefur líklega ekki far- ið fram hjá neinum að jólin eru á næsta leiti. Marglit ljós í gluggum landsmanna lýsa upp skammdegið og jólaandinn er mættur í öllu sínu veldi. Jákvæðni, náungakærleikur og gleði virðist um- lykja allt ásamt stressuðum foreldr- um og spenntum börnum sem fara á fætur fyrir allar aldir. Búðirnar fyllast af fólki sem keppist við að kaupa gjaf- ir handa ástvinum sínum og margir eru nú þegar búnir að baka nokkrar sortir af smákökum. Það er bara eitt- hvað við jólin sem gerir það að verk- um að við teljum niður í þessa hátíð ár eftir ár. Bleikt hafði því sérstaklega gaman af því að heyra í Bigga löggu og Evu Ruza og spyrja þau út í þeirra jólahefðir. Biggi lögga og Eva Ruza sitja fyrir svörum Bigga löggu þarf vart að kynna en Biggi hefur verið áberandi í fjölmiðl- um í dágóðan tíma. Biggi starfar, eins og nafnið gefur til kynna, sem lög- reglumaður. Hann er ekki þekktur fyr- ir að liggja á skoðunum sínum og er fljótur að taka upp hanskann fyrir þá sem minna mega sín. Biggi hefur ver- ið löghlýðinn allt sitt líf og segir hann jólasveininn aldrei hafa haft tilefni til þess að gefa honum kartöflu í skóinn: Borðar þú skötu á Þorláksmessu? Já, ég borða skötu ef ég kemst í hana. Núna verð ég á vaktinni en vonandi næ ég að slafra í mig nokkrum vel kæstum stykkjum. Vonandi þó ekki þannig að ég flagni allur í kjaftinum eins og síðast. Hvað verður í matinn á aðfangadag? Ég ólst upp við purusteik en síðustu ár hef ég haft kalkúnabringur. Það verð- ur líka á borðum þessi jól. Hverju finnst þér að megi alls ekki sleppa á jólunum? Jólin snúast um hefðir og því er í raun frekar erfitt að svara þessari spurn- ingu. Ég hef samt líka komist að því að jólin koma alltaf, sama hverju maður sleppir. Til að velja eitthvað þá vel ég samt heimagerða ísinn og heitu súkkulaðisósuna. Það er svona punkturinn yfir jólin. Hver er uppáhaldsjólahefðin þín? Að fara upp í hreint rúmið á aðfanga- dagskvöld með glænýja bók. Það er eitthvað við það. Eftirminnilegustu jólin? Þar sem jólin snúast um hefðir þá eru eftirminnilegustu jólin sennilega þau sem brjóta upp þessar hefðir. Ég hef nokkrum sinnum verið erlendis um jól og það eru allt eftirminnileg jól. Ég var t.d. skiptinemi í Bandaríkjun- um eitt árið og þá ákvað fjölskylda mín þar á síðustu stundu að setj- ast bara niður á aðfangadagskvöld, opna pakkana og halda íslensk jól mér til heiðurs. Mér fannst það voða sætt af þeim. Önnur jól var ég í heim- sókn í Bandaríkjunum og var fárveik- ur allan tímann. Mér tókst þá meðal annars að láta líða yfir um miðja nótt á leiðinni á klósettið og vaknaði hálf- ur ofan í blómapotti morguninn eftir. Ofan á það þá fékk ég ofeldað nauta- kjöt með bragðlausri sósu í jólamat- inn. Það var hressandi. Hvert er uppáhaldsjólalagið þitt? Það er fullt af klassískum og mishall- ærislegum jólalögum sem ég held upp á. Svo bætist venjulega eitthvert nýtt lag við um hver jól. Þessi jól er það Noel með Lauren Daigle. Þið getið heyrt það í flutningi Ingu Maríu Björgvinsdóttur og kór Fíladelfíu á aðfangadagskvöld á stöð 2. Mæli með því. Hefur þú fengið kartöflu í skóinn? Ég var fáránlega þægur krakki þannig að jólasveinarnir spáðu aldrei í að gefa mér kartöflu. Lofa. Hvort finnst þér aðfangadagur eða gamlárskvöld skemmtilegri? Aðfangadagur. Ekki spurning. Það er hugsanlega ákveðið merki um að maður sé farinn að eldast. Ætlar þú að strengja áramótaheit? Ég hef aldrei strengt áramótaheit og mér finnst frekar ólíklegt að ég breyti út af þeim vana þetta árið. Maður reynir bara alltaf að læra af mistök- unum, gera betur, verða betri og njóta meira. Lífið er núna. Eva Ruza Miljevic er líklega ein hressasta kona landsins. Það eru að minnsta kosti ekki miklar líkur á því að þú náir að grípa Evu í vondu skapi enda virðist hún hafa endalausa orku og gleði til þess að leysa út. Eva starfar sem skemmti- kraftur, kynnir, veislustjóri, Hollywood-expert og áhrifa- valdur. Ekki virðist vera auð- velt að múta Evu með háum fjárhæðum þar sem hún segist ekki ætla að borða skötu þótt hún fengi greidda milljón: Borðar þú skötu á Þor- láksmessu? Ég get alveg sagt þér það að þótt ég fengi borgaða millj- ón þá færi skata ekki inn fyrir mínar varir. Mamma og pabbi hafa alltaf haft skötu fyrir jól, en þau hafa þurft að kaupa ýsu fyrir mig, litla barnið. Ég fæ líkamlega verki af skötu- lykt, ég get svarið fyrir það og mæti bara í skötuboð því fé- lagsskapurinn er svo asskoti skemmtilegur. En ég þori varla að viðurkenna næstu setningu … ég hef eiginlega aldrei smakkað skötu samt. Mamma hefur reynt að pína mig til að smakka en það er bara ekki séns. Ég er samt til- tölulega nýbyrjuð að borða sveppi, sem var mikill sigur fyrir minn heittelskaða eigin- mann, þannig að kannski næ ég andlegum þroska í skötuna áður en ég fer á elliheimili. Hverju finnst þér að megi alls ekki sleppa á jólunum? Jólin eru komin um leið og ég fer úr sparifötunum, skipti yfir í kósígallann strax eftir mat og heyri þá mömmu segja: „Eva Ruza í alvöru.“ Það er eigin- lega möst að heyra mömmu segja hver einustu jól við okk- ur systur, hvort við getum í alvörunni ekki verið ein jól í sparifötunum heilt kvöld. Við frussuhlæjum alltaf upphátt að þessari eilífu baráttu henn- ar við okkur og sparifötin. Mig grunar sterklega að hún haldi að hún vinni ein jólin. Ég rita það hér með á prenti: „Elsku mamma, það mun aldrei ger- ast.“ #alltaf5ára Hver er uppáhalds- jólahefðin þín? Á jóladagsmorgun breytist ég í Mörthu Stewart í eldhúsinu og hristi fram svo stórfeng- legan brunch að annað eins hefur hvergi sést á Íslandi. Ég tjalda öllu til á náttfötunum, kveiki á vini mínum Michael Bublé og dansa djassspor í sloppnum um leið og ég kasta skonsunni sem er á pönnunni upp í loftið. Eggin snarkla á hinni pönnunni, beikonið í ofninum og ferskir ávextir komnir á disk. Ef þið eruð að ímynda ykkur mig núna eins og ég sé í danssöngleikja- mynd, þá er þetta nákvæm- lega þannig. Það eru eflaust einhverjir sem þrá að komast í jóladagsbrunch hjá mér núna við lesturinn, sem ég skil vel. Þetta er mín uppáhaldshefð og ég hefði aldrei trúað því þegar ég hóf feril minn í eld- húsinu að ég gæti multitaskað svona svakalega mikið án þess að brenna allt til grunna. Eftirminnilegustu jólin? Ætli hlaupabólujólin miklu flokkist ekki undir slæmu jólin. En þegar tvíburarnir okkar Sigga voru þriggja ára helltist yfir þau svona svakaleg hlaupabóla að ég hef aldrei vitað annað eins. Þessi jól ein- kenndust af kartöflumjölsböð- um, hinum ýmsu aðferðum til að lina kláða, froðukremum og andvökunóttum. Hlaupa- bólan lagðist yfir litlu kropp- ana þeirra eins og sæng á Þor- láksmessu og hékk yfir þeim öll jólin, áramótin og þrítugs- afmælið mitt. Ég á „btw“ af- mæli 5. janúar ef einhver er áhugasamur um að senda mér kveðju. Fyrstu jólin okkar Sigga míns þegar ég var 17 ára og hann 20 ára eru jól sem ég verð hrikalega væmin við að hugsa um. Ég man að ég hugs- aði „baby, I’m home.“ Enda erum við að eiga jól nr. 19 saman í ár og ég myndi hvergi annars staðar vilja vera en þar sem hann er. Hefur þú fengið kartöflu í skóinn? Ójá, ég fékk einu sinni kartöflu í skóinn og henni mun ég aldrei gleyma. Mestu von- brigði lífs míns var þessi bölv- aða kartafla. Ég vaknaði eins og alla morgna rétt fyrir jól að tryllast úr spenning yfir hvað væri í skónum, löngu búin að gleyma frekjukastinu sem ég tók 9 ára gömul á mömmu og pabba daginn áður. Kartafla beið mín og ég man að þetta var hrikalegur skellur. Ég laumaðist inn á bað og henti henni í ruslið þar og fór svo inn í eldhús og sagði mömmu þegar hún spurði hvað ég hefði fengið, að ég hefði ekki fengið neitt. Mamma sagði ekki orð. Um kvöldið var svo fiskur og kartöflur í matinn og mamma spurði mig eftir mat hvort kartöflurnar hefðu ekki verið góðar. Ég jánkaði því. Þá sagði mamma að þetta hefði verið THE kartafla. Ég man að ég roðnaði ofan í maga og strunsaði inn í herbergið mitt. Mjög dramatískt kartöflumál. En ég hef ekki fengið kartöflu síðan, enda ofboðslega góð og prúð stúlka. Ætlar þú að strengja áramótaheit? Ég hef ekki verið mikið í því að strengja eitthvert sérstakt áramótaheit. Ég vakna bara alla 365 morgna ársins og tek ákvörðun um að vera glöð. Hefur heppnast í ca. 97% til- fella. Ég ætla að dansa inn í 2019 eins og diskókúla og halda áfram að glitra Evu Ruzu glimmerinu í allar áttir. Aníta Estíva Harðardóttir anita@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.