Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 49
FÓLK - VIÐTAL 4921. desember 2018 undir nafninu Bang Gang og auk þess eina safnplötu með bestu lögunum. Síðasta plata Bang Gang var The Wolves Are Whispering frá árinu 2015. Þar að auki hefur hann gefið út undir eigin nafni, með hljómsveitinni Lady & Bird og Starwalker. Í heildina eru þetta um tíu plötur. „Mér finnst þær allar standa upp úr á einhvern hátt. Ég er ánægðastur með hvernig nýjasta Bang Gang-platan hljómar, hljóð- lega séð, en mjög sáttur við hinar líka. Auðvitað vill maður alltaf laga eitthvað en það er partur af því að vera skapandi.“ Hvað hefur þú verið að gera síðan síðasta plata Bang Gang kom út? „Ég gerði eina Starwalker-plötu. Svo gerði ég tónlist fyrir leikhús, sjónvarp, stiklu fyrir tölvuleik- inn Shadow of War og hef unnið með öðrum listamönnum. Einnig sinni ég starfi markaðsstjóra hjá Íslandshótelum.“ Finnst þér alltaf jafn gaman að skapa tónlist? „Ég fæ aldrei nóg af því að skapa tónlist. En ég var kominn með smá þreytu á að vinna við tónlist alla daga. Nú er æðislegt að semja og taka upp, þegar það fer ekki all- ur tíminn í það. Fyrir mig er þetta bráðnauðsynlegur hluti af lífinu hvort sem það er í litlu eða miklu magni.“ Heppinn með samstarfsfólk Barði hefur gert töluvert af tón- list fyrir kvikmyndir og sjónvarps- þætti. Meðal þess sem honum finnst standa upp úr er tónlistin við tryllinn Would You Rather frá árinu 2012. Hana gerði Barði í samstarfi við Daniel Hunt úr hljómsveitinni Ladytron og hann segir að þeir hafi fengið mikið frelsi við sköpunina. „Einnig var gaman að gera tón- listina við myndina De Toutes Nos Forces sem fór á toppinn í Frakk- landi á sínum tíma. Hér á Íslandi er í mestu uppáhaldi að vinna með Óskari Jónassyni, Ragga Braga og Sævari Guðmunds. Svo var mjög hressandi að vinna að myndinni Strákarnir okkar með hljómsveitinni Mínus á sínum tíma. Það kom mjög vel út og ég á margar skemmtilegar minningar frá því tímabili.“ Samstarf Barða og Keren Ann hefur verið með miklum ágætum og Barði hefur unnið að mörgum sólóplötum hennar. Hann segir þau einnig vera mjög góða vini. Barði hefur einnig unnið að sóló- plötum söngkonunnar Helen Marnie úr Ladytron. Listinn með eftirminnilegu samstarfsfólki Barða er endalaus. Tvíhöfði, Bubbi Morthens, Bloodgroup og fleiri. „Nýjasta samstarfsverkefnið sem ég tók þátt í var eitt lag á plöt- unni Nótt eftir Nótt sem Kælan Mikla var að gefa út. Frábært band og þær eru ótrúlega hæfileika ríkar. Ég hef yfirhöfuð verið heppinn með samstarf.“ Stórir í Tyrklandi Barði segir töluverðan mun á því að semja tónlist fyrir kvikmynd og hefðbundna plötu. „Þegar ég sem fyrir plötu, þá ræður lagið sér sjálft og ég leyfi því að fara í þann heim sem það pass- ar í. Hjá mér framkallar lag mynd- ir eða myndskeið í höfðinu og það speglast oft til hlustandans líka. Þegar verið er að semja fyrir bíó þá er verið að búa til stemningu við myndefni eða ákveðna sögu sem kemur frá handriti eða leikstjóra. Hvort tveggja er mjög skemmtilegt ferli.“ Vinnur þú með konsept? „Ég hef unnið með konsept, en alltaf endað á að svíkja konseptið. Síðast ætlaði ég til dæmis að gera einfalda elektróníska plötu sem endaði sem góður bræðingur af raftónlist, klassík og draugapoppi. Ég leyfi lögunum að fara á flug. Konsept getur oft verið skapandi en líka hamlandi. Ég kannski vinn meira með ákveðna stemningu.“ Er von á nýju efni frá Bang Gang? „Það er von á afmælisútgáfu með remixum og skemmtilegheit- um snemma á næsta ári. Svo eru ný myndbönd væntanleg. Það er um að gera að fylgjast með hljóm- sveitinni á Spotify. Ég hugsa að ný Bang Gang-plata komi þó ekki fyrr en í lok næsta árs, í fyrsta lagi.“ Er eitthvað annað nýtt á leiðinni frá þér? „Þessa dagana er ég að vinna í plötu fyrir Heru Hjartar sem er al- veg að verða tilbúin, svo eru nokk- ur Starwalker-lög tilbúin auk þess sem ég er búinn að vera að sýsla í ambient sólóplötu í langan tíma.“ Nú eru vinsældir Bang Gang töluverðar hér heima. Hvað með erlendis? „Löndin sem hljómsveitin er að fá mesta spilun í eru Banda- ríkin, Frakkland, Kína og Tyrk- land. Þannig að þetta er áhuga- verð blanda.“ Starwalker er tveggja manna hljómsveit sem Barði er í með franska raftónlistarmanninum Jean-Benoit Dunckel, JB. JB er þekktastur fyrir verk sín með hljómsveitinni Air. Barði hafði nokkrum sinnum hitað upp fyrir Air. Sameiginleg vinkona þeirra stakk upp á að þeir tveir myndu hittast í kaffi og ræða mögulegt samstarf. „Í kjölfarið gerðum við eitt lag. Svo fleiri og fleiri. Þetta endaði í EP- og LP-plötum sem fengu frá- bærar viðtökur. Við erum tilbún- ir með tvö ný lög núna sem koma kannski út snemma á næsta ári.“ Áhrifavaldarnir David Lynch og amma Barði á að baki langan og fjöl- breyttan feril. Þegar hann lítur til baka sér hann heilmargt sem hann hefði getað gert öðruvísi. „Maður á samt aldrei að segja „hefði“,“ segir hann. „Ég hef alltaf haft gaman af því að framkvæma góðar hugmynd- ir þótt þær kannski hljómi óraun- hæfar fyrir aðra. Ég var einu sinni beðinn um að halda tónleika í Pompidou-safninu. Mér fannst betri hugmynd að sýna stuttmynd og spila yfir hana. Því fékk ég góð- an hóp vina í eina helgi og við gerðum hressandi mynd sem var sýnd við góðar viðtökur. Svo hef ég tvisvar verið viðriðinn tískustutt- myndahátíðina A Shaded View of Fashion. Í annað skiptið gerði ég stuttmynd ásamt Janeen Lund og hitt skiptið spilaði ég rafræna út- gáfu af HAXAN.“ Fylgist þú vel með því sem er í gangi í heimi listarinnar á líðandi stundu? „Ég fylgist vel með því sem er að koma út og tek stikkprufur. Ég er alltaf áhugasamur um hvað er í gangi og hvernig fólk er að vinna. Heima hjá mér hlusta ég á hvað sem er.“ Áttu þér einhverja áhrifavalda? „Þetta er breytilegt, nú myndi ég segja að heildrænt væru það amma og David Lynch.“ n Suðurlandsbraut 14 • 108 Reykjavík • Sími 588 0188 • slysabaetur@slysabaetur.is VIÐ SÆKJUM BÆTURNAR Ekki flækja málin. „Ég á keðju- sög sem má hafa gaman af að brúka er með mörg járn í eldinum n Bang Gang vandmeðfarið nafn á netöld n Starfar með heimsfrægum n Betra tekjumódel en áður fyrr Barði Jóhannsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.