Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 32
Þorláksmessa 21. desember 2018KYNNINGARBLAÐ
Íslendingar verða sífellt opnari og spenntari fyrir sælkeramatseld og frönsk matargerð er ein af
þeim áhugaverðari sem fyrirfinnst.
Það er óneitanlega tilvalið að skipta
út flatbökunni eða sósuðum ham-
borgara fyrir ristað súrdeigsbrauð
með ljúffengri hágæða lifrarkæfu eða
dásamlegu terrine. „Í sælkerabúð-
inni okkar bjóðum við upp á víðfeðmt
úrval af frönskum sælkerakrásum, á
mjög góðu verði, sem myndu sóma
sér á hvaða matarborði sem er við öll
tilefni,“ segir Arnaud-Pierre Fourtané,
sem eigandi HYALIN ásamt Didier
Fitan.
Jólakrásir
„Nú fyrir jólin höfum við valið að
leggja áherslu á hefðbundnar og
ljúffengar franskar sælkeravörur svo
sem foie gras, andaconfit og trufflu-
varning. Við bjóðum einnig upp á gott
úrval af súkkulaði, bæði í plötum og
súkkulaðitrufflur, saltaðar rjómak-
aramellur frá Bretaníuskaganum
og mjúkt núggat frá Provence-hér-
aðinu. Einnig erum við með ýmiss
konar sinnep og sósur sem passa
með hverjum rétti fyrir sig eins og
piparrótarsinnep, wasabi-majones,
bearnaise- og tartarsósur,“ segir
Arnaud.
Hverju mælirðu sérstaklega með
sem forrétt á aðfangadag?
„Margir kúnnar okkar hafa sýnt tölu-
verðan áhuga á Búrgúndí-sniglum og
að sjálfsögðu viljum við uppfylla óskir
viðskipavina okkar. Við höfum valið
að selja hjá okkur háklassa snigla
frá þriggja Michelin stjörnu kokknum
Georges Blanc og á vefsíðunni okkar
má finna frábæra uppskrift, hvern-
ig má matreiða þessa gæðavöru.
Uppskriftin er auðveld, ljúffeng og
kemur aldeilis á óvart. Fyrir þá sem
eru minna ævintýragjarnir mælum
við með gómsætu humarsúpunni
okkar (með koníakslettu að sjálf-
sögðu) eða einhverjum af ljúffengu
andapatéunum okkar til þess að byrja
hinn fullkomna hátíðarkvöldverð,“
segir Arnaud.
Gómsætar gjafir
Það er alltaf gaman að gefa og
þiggja gómsætar jólagjafir frá vinum
og vandamönnum. „Ég mæli sér-
staklega með bragðgóðu sultunum
okkar frá La Chambre aux Confiture í
smágjafir. Einnig erum við með fullt af
dásamlegu hunangi frá Hédène Paris
og hefðbundnar engiferkökur frá Mai-
son Toussaint. Engiferbrauðið er til
að mynda guðdómlegt með sneið af
andalifrarkæfu. Gómsætu ólífuolíu-
rnar okkar frá Kalios, Grikklandi, eru
tilvaldar í jólapakkann í staðinn fyrir
hefðbundna vínflösku og munu án
efa færa alla matseld þiggjanda upp
í hæstu hæðir,“ segir Arnaud.
HYALIN er staðsett að Hverfisgötu
35, 101 Reykjavík.
Nánari upplýsingar á https://www.
hyalin-reykjavik.com/home
Facebook: https://www.facebook.
com/hyalin.reykjavik/ n
HYALIN:
Ljúffengar jólakrásir