Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Síða 32
Þorláksmessa 21. desember 2018KYNNINGARBLAÐ Íslendingar verða sífellt opnari og spenntari fyrir sælkeramatseld og frönsk matargerð er ein af þeim áhugaverðari sem fyrirfinnst. Það er óneitanlega tilvalið að skipta út flatbökunni eða sósuðum ham- borgara fyrir ristað súrdeigsbrauð með ljúffengri hágæða lifrarkæfu eða dásamlegu terrine. „Í sælkerabúð- inni okkar bjóðum við upp á víðfeðmt úrval af frönskum sælkerakrásum, á mjög góðu verði, sem myndu sóma sér á hvaða matarborði sem er við öll tilefni,“ segir Arnaud-Pierre Fourtané, sem eigandi HYALIN ásamt Didier Fitan. Jólakrásir „Nú fyrir jólin höfum við valið að leggja áherslu á hefðbundnar og ljúffengar franskar sælkeravörur svo sem foie gras, andaconfit og trufflu- varning. Við bjóðum einnig upp á gott úrval af súkkulaði, bæði í plötum og súkkulaðitrufflur, saltaðar rjómak- aramellur frá Bretaníuskaganum og mjúkt núggat frá Provence-hér- aðinu. Einnig erum við með ýmiss konar sinnep og sósur sem passa með hverjum rétti fyrir sig eins og piparrótarsinnep, wasabi-majones, bearnaise- og tartarsósur,“ segir Arnaud. Hverju mælirðu sérstaklega með sem forrétt á aðfangadag? „Margir kúnnar okkar hafa sýnt tölu- verðan áhuga á Búrgúndí-sniglum og að sjálfsögðu viljum við uppfylla óskir viðskipavina okkar. Við höfum valið að selja hjá okkur háklassa snigla frá þriggja Michelin stjörnu kokknum Georges Blanc og á vefsíðunni okkar má finna frábæra uppskrift, hvern- ig má matreiða þessa gæðavöru. Uppskriftin er auðveld, ljúffeng og kemur aldeilis á óvart. Fyrir þá sem eru minna ævintýragjarnir mælum við með gómsætu humarsúpunni okkar (með koníakslettu að sjálf- sögðu) eða einhverjum af ljúffengu andapatéunum okkar til þess að byrja hinn fullkomna hátíðarkvöldverð,“ segir Arnaud. Gómsætar gjafir Það er alltaf gaman að gefa og þiggja gómsætar jólagjafir frá vinum og vandamönnum. „Ég mæli sér- staklega með bragðgóðu sultunum okkar frá La Chambre aux Confiture í smágjafir. Einnig erum við með fullt af dásamlegu hunangi frá Hédène Paris og hefðbundnar engiferkökur frá Mai- son Toussaint. Engiferbrauðið er til að mynda guðdómlegt með sneið af andalifrarkæfu. Gómsætu ólífuolíu- rnar okkar frá Kalios, Grikklandi, eru tilvaldar í jólapakkann í staðinn fyrir hefðbundna vínflösku og munu án efa færa alla matseld þiggjanda upp í hæstu hæðir,“ segir Arnaud. HYALIN er staðsett að Hverfisgötu 35, 101 Reykjavík. Nánari upplýsingar á https://www. hyalin-reykjavik.com/home Facebook: https://www.facebook. com/hyalin.reykjavik/ n HYALIN: Ljúffengar jólakrásir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.