Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 60
60 21. desember 2018 J ólin eru tími hefða, róleg- heita, fjölskyldunnar og auð- vitað gjafa (að margra mati) en jólin eru svo sem að vissu leyti eins og aðrir dagar því heimurinn heldur áfram að vera til og hlutir gerast um allan heim. Þá er það ekki svo að meirihluti mannkyns haldi jólin hátíðleg og hjá mörgum eru þau eins og hver annar dagur. Hér verða nefndir til sögunnar nokkrir atburðir sem hafa gerst um jól og ratað í sögu- bækurnar. Eflaust hefur fólk mis- jafnar skoðanir á hversu merki- legir þessir atburðir eru í sögulegu samhengi en þeir áttu engu að síð- ur sér stað. Á jóladag 1990 varð ákveðin bylting því þá var internetið prufu- keyrt í fyrsta sinn þegar kveikt var á fyrsta netþjóninum, inco.cern. ch. Þetta var auðvitað stór stund og líklegast hefur enginn séð fyrir hvaða afleiðingar þetta átti eftir að hafa í framtíðinni og eflaust höfum við ekki enn upplifað allt það sem internetið getur haft í för með sér. Það er kannski við hæfi að það hafi verið tækninördar hjá CERN (European Organization for Nuclear Research) í Sviss sem komu að þessari fyrstu prufu- keyrslu og þróun netsins að Tim Bernes-Lee ógleymdum en hann er talinn faðir veraldarvefjarins. Að kveldi jóladags 1776 fór George Washington, þá hershöfð- ingi og síðar fyrsti forseti Banda- ríkjanna, yfir Delaware á með herlið sitt. Hann vildi koma mála- liðum á vegum Breta á óvart í miðjum jólahátíðarhöldum þeirra og það tókst. Washington og hans menn gjörsigruðu málaliðana og náðu miklu af vopnum á sitt vald og tóku marga fanga. Þessi bardagi er eitthvað sem á sér fastan stað í bandarískum sögubókum. Einn undarlegasti atburður fyrri heimsstyrjaldarinnar átti sér stað á jóladag 1914. Breskar og þýskar hersveitir höfðu lengi barist á banaspjótum á vesturvíg- stöðvunum en í kringum jólin var samið um vopnahlé. Þá breytt- ist allt og hermenn, sem höfðu skömmu áður reynt hvað þeir gátu til að drepa þá sem voru hinum megin við víglínuna, færðu þeim gjafir, sungu jólasöngva með þeim og spiluðu jafnvel fótbolta. Það má því kannski segja að sannur jólaandi hafi verið yfir vígstöðv- unum. Á aðfangadag 1979 hófst innrás Sovétríkjanna í Afganistan. Þá var mikið af hermönnum og hertólum flutt til landsins. Tímasetningin var engin tilviljun því Sovétmenn og bandamenn þeirra vissu sem var að á Vesturlöndum var fólk upptekið af jólahaldi og því seink- aði það viðbrögðum Vesturlanda við innrásinni. Breski vísindamaðurinn Sir Isaac Newton fæddist á jóladag 1642. Hann var fyrstu manna til að skilja hvað þyngdaraflið er. Hann var einnig frumkvöðull í stærð- fræði og ýmsu öðru. Honum verð- ur seint fullþakkað framlag hans til vísindanna og því má kannski segja að hann hafi verið sannköll- uð jólagjöf. Á jóladag 1977 lést Charlie Chaplin, einn frægasti leikari sögunnar. Hann var 88 ára. Chaplin var frumkvöðull á kvik- myndasviðinu. Hann var fæddur grínisti sem öðlaðist heimsfrægð á upphafsárum kvikmyndanna. Apollo 8 komst á braut um tunglið á jóladagskvöld 1968. Geimfarið var fyrsta geimfarið sem komst af braut um jörðina og á braut um tunglið. Af þessu til- efni voru geimfararnir með sérs- taka útsendingu og sýndu myndir af jörðinni og tunglinu og lásu upp úr sköpunarsögunni. Á jóladag 1991 sagði Mikhail Gorbachev af sér sem leiðtogi Sovét ríkjanna. Hann var aðalhöf- undur Glasnost-stefnunnar sem opnaði Sovétríkin og Austurblokk- ina upp á gátt. Hann kemst eflaust á stall með merkustu áhrifavöld- um síðustu aldar. Á jóladag 1868 náðaði Andrew Johnson Bandaríkjaforseti alla hermenn Suðurríkjanna sem voru í haldi Norðurríkjamanna. Þræla- stríðið var þá afstaðið en enn voru miklar deilur um hvað ætti að gera við Suðurríkin og hermenn þess. Stríðið var blóðugt og mannskætt en mörg hundruð þúsund óbreytt- ir borgarar og hermenn létu lífið í því. Andrew Johnson tók við for- setaembættinu eftir að Abraham Lincoln var myrtur og ákvað hann að náða flesta þá hermenn Suður- ríkjanna sem sóttu um náðun. Á jóladag 1868 bætti hann um bet- ur og náðaði alla hermenn Suður- ríkjanna og er sú ákvörðun talin hafa verið mikilvægt skref til sátta hjá þessari stríðshrjáðu og marg- klofnu þjóð. Á jóladag árið 800 krýndi Leo III. páfi Karlamagnús keisara Rómaveldis við hátíðlega athöfn í St. Péturskirkjunni í Róm. Þar með varð Karlamagnús leiðtogi stórs hluta Evrópu. Hann hefur oft verið nefndur „Faðir Evrópu“. Hann var keisari í 13 ár og laga- og menntunarumbætur hans lögðu grunninn að menningarlegri vakningu og sameinaði stóra hluta Evrópu í fyrsta sinn síðan á tímum rómverska heimsveldisins. n TÍMAVÉLIN 3 SKREF BÓKHALDSÞJÓNUSTA LÖGFRÆÐIRÁÐGJÖF EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR • Skráningartöflur • Eignaskiptayfirlýsingar • Eftirfylgni EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR ÞARABAKKA 3 S. 578 6800 Nokkrir sögulegir atburðir sem gerðust um jól Örlagatímar í mannkynssögunni „Apollo 8 komst á braut um tunglið á jóladagskvöld 1968. George Washington Kom málaliðum á óvart á jólum. Vopnahlé Dátar á vest- urvígstöðvunum spiluðu knattspyrnu jólin 1914. Isaac Newton Einn fremsti vísinda- maður sögunn- ar fæddist á jóladag. Mikhail Gorbachev Sagði af sér á jólunum 1991. Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.