Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 29
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
Þorláksmessa
Verslunin Móðurást á sér merkilega for-sögu en eigandinn,
Guðrún Jónasdóttir, hóf
árið 1992 að kaupa brjósta-
dælur og leigja þær út. „Ég
eignaðist fyrirbura 1987 og
upp úr því stofnuðum við
nokkur stuðningshóp fyr-
ir fyrirburaforeldra og þá
áttaði ég mig á því að þetta
vantaði. Ég fór því að kaupa
mjaltavélar dýrum dóm-
um og leigja þær út,“ segir
Guðrún.
Hér var því um sannkall-
aða frumkvöðlastarfsemi
að ræða sem rekin var af
hugsjón. „Svona var enginn
að gera á Íslandi og ég gerði
mér fljótt grein fyrir því að
það vantaði mikið upp á
þjónustuna við mæður ný-
fæddra barna.“
Starfsemin tók smám
saman að vaxa og breikka
og Guðrún fór að selja
ýmsan skyldan varning.
Fyrst var hún bara með
þetta heima hjá sér en árið
2002 stofnaði hún verslun-
ina Móðurást sem í dag er
bæði verslun við Laugaveg
178 og vefverslun.
Í versluninni fást ýmsar
ungbarnavörur, sem henta
vel fyrir börn frá fæðingu
fram á annað ár, allt frá
snuðum, leikföngum og
fatnaði, til Silvercross-
-barnavagna og kerra,
svo eitthvað sé nefnt.
Þroskaleikföng frá Lamaze
og Chicco eru vinsæl til
jólagjafa. Dúkkan Lottie er
einnig vinsæl fyrir eldri börn,
hún er í réttum stærðarhlut-
föllum og einnig fæst fjöldi
fylgihluta fyrir hana.
Fyrir mæður með börn á
brjósti fæst mikið úrval af
undirfatnaði, auk þess sem
mjaltavélar og ungbarna-
vogir eru leigðar út.
„Ég veiti líka brjóstagjaf-
arráðgjöf fyrir konur sem
þurfa á slíku að halda en ég
er menntaður brjóstagjaf-
arráðgjafi. Sérhæfing mín
felst í þessu ásamt því að ég
sel allt sem snertir brjósta-
gjöf, allt sem gæti þurft við
mismunandi aðstæður við
brjóstagjöf,“ segir Guðrún,
sem segir starfið mjög gef-
andi og hún sé lánsöm að fá
að starfa við áhugamál sitt
og hugsjón, ekki séu allir svo
heppnir.
Móðurást er við Laugaveg
178, við hliðina á gamla út-
varpshúsinu, síminn er 564-
1451, heimasíðan: modurast.
is og netfangið modurast@
modurast.is
Opnunartími er mánu-
daga–föstudaga frá kl. 11 til
18 og laugardaga frá 12 til
16. Laugardaginn 22. des-
ember og sunnudaginn 23.
desember er opið kl. 12–18. n
VERSLUNIN MÓÐURÁST BÝÐUR UPP Á ALLT FYRIR UNGBARNIÐ:
Hentugar gjafir í jólapakkann