Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Side 29
KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is Þorláksmessa Verslunin Móðurást á sér merkilega for-sögu en eigandinn, Guðrún Jónasdóttir, hóf árið 1992 að kaupa brjósta- dælur og leigja þær út. „Ég eignaðist fyrirbura 1987 og upp úr því stofnuðum við nokkur stuðningshóp fyr- ir fyrirburaforeldra og þá áttaði ég mig á því að þetta vantaði. Ég fór því að kaupa mjaltavélar dýrum dóm- um og leigja þær út,“ segir Guðrún. Hér var því um sannkall- aða frumkvöðlastarfsemi að ræða sem rekin var af hugsjón. „Svona var enginn að gera á Íslandi og ég gerði mér fljótt grein fyrir því að það vantaði mikið upp á þjónustuna við mæður ný- fæddra barna.“ Starfsemin tók smám saman að vaxa og breikka og Guðrún fór að selja ýmsan skyldan varning. Fyrst var hún bara með þetta heima hjá sér en árið 2002 stofnaði hún verslun- ina Móðurást sem í dag er bæði verslun við Laugaveg 178 og vefverslun. Í versluninni fást ýmsar ungbarnavörur, sem henta vel fyrir börn frá fæðingu fram á annað ár, allt frá snuðum, leikföngum og fatnaði, til Silvercross- -barnavagna og kerra, svo eitthvað sé nefnt. Þroskaleikföng frá Lamaze og Chicco eru vinsæl til jólagjafa. Dúkkan Lottie er einnig vinsæl fyrir eldri börn, hún er í réttum stærðarhlut- föllum og einnig fæst fjöldi fylgihluta fyrir hana. Fyrir mæður með börn á brjósti fæst mikið úrval af undirfatnaði, auk þess sem mjaltavélar og ungbarna- vogir eru leigðar út. „Ég veiti líka brjóstagjaf- arráðgjöf fyrir konur sem þurfa á slíku að halda en ég er menntaður brjóstagjaf- arráðgjafi. Sérhæfing mín felst í þessu ásamt því að ég sel allt sem snertir brjósta- gjöf, allt sem gæti þurft við mismunandi aðstæður við brjóstagjöf,“ segir Guðrún, sem segir starfið mjög gef- andi og hún sé lánsöm að fá að starfa við áhugamál sitt og hugsjón, ekki séu allir svo heppnir. Móðurást er við Laugaveg 178, við hliðina á gamla út- varpshúsinu, síminn er 564- 1451, heimasíðan: modurast. is og netfangið modurast@ modurast.is Opnunartími er mánu- daga–föstudaga frá kl. 11 til 18 og laugardaga frá 12 til 16. Laugardaginn 22. des- ember og sunnudaginn 23. desember er opið kl. 12–18. n VERSLUNIN MÓÐURÁST BÝÐUR UPP Á ALLT FYRIR UNGBARNIÐ: Hentugar gjafir í jólapakkann

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.