Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 64
64 21. desember 2018 2. desember, 2007, var Douglas Mercereau, yfirmaður í slökkviliði New York-borgar, skotinn til bana þar sem hann svaf svefni „hinna réttlátu“ á heimili sínu á Staten Island. Á meðan dætur hans tvær, 5 og 6 ára, sváfu í næsta herbergi beindi eiginkona hans, Janet Redmond- -Mercereau, þjónustuvopni Douglas að höfði hans og skaut hann þrisvar sinnum í höfuðið. Að sögn hafði Janet lengi búið við harða gagnrýni eiginmanns síns vegna holdafars hennar og húsmóðureiginleika, sem honum þótti fátæklegir. Við yfirheyrslur sagði Janet að hún hefði verið sofandi í svefnherbergi dætra þeirra hjóna, þegar Douglas var skotinn til bana. Engu að síður beindust sjónir rannsóknarlög- reglunnar að henni því hún þótt vera helst til glöð og ham- ingjusöm í kjölfar morðsins og fékk fyrir vikið viðurnefnið Káta ekkjan. Janet fékk lífstíðardóm árið 2009. SAKAMÁL LÆKNIRINN SEM TALAÐI OF MIKIÐ n Læknirinn Buckanan var ekki allur þar sem hann var séður n Skildi við eiginkonu sína og kvæntist pútnahússstýru n Gróf nánast eigin gröf í vitnastúkunni R obert Buckanan (Buchan- an) fæddist í Nova Scotia í Kanada árið 1862. Ekki verður hér dvalið við bernsku hans en skotist 24 ár fram í tímann, til ársins 1886. Það ár, eftir að hafa numið læknisfræði við Edinborgar-há- skóla í Skotlandi, flutti Buckanan ásamt eiginkonu sinni, Helen, og ungri dóttur þeirra, til New York- borgar þar sem hann opnaði eigin læknastofu í New York-borg. Þrátt fyrir að hann verði nánast öllum sínum frítíma á krám og í vændis- húsum afrekaði hann að halda úti nokkuð farsælli læknastofu. Skilnaður og gifting Samkvæmt sumum heimildum skildi Buckanan við Helen á sum- armánuðum 1890. Samkvæmt öðrum heimildum, sem notað- ar verða hér, skildi hann við eig- inkonu sína 12. nóvember það ár. Sautján dögum síðar kvæntist hann Önnu Sutherland. Anna þessi var tuttugu árum eldri en Buckanan og var far- sæl framkvæmdastýra hóruhúss í Newark á New Jersey. Ætla má að kynni hafi tekist með þeim tveim- ur í einni fjölmargra heimsókna læknisins í slík hús. Anna hafði ekki útlitið með sér; hún var lágvaxin og feit með litað hár, appelsínugult, og stóra vörtu á nefbroddinum. Feluleikur læknisins Buckanan sá þó einn mikinn kost við kvonfangið; Anna var vell- auðug og á meðal auðæfa hennar voru 50.000 Bandaríkjadalir, sem læknirinn taldi hana á að ánafna honum í erfðaskrá hennar. Hjónakornin komu sér fyr- ir í íbúð við West 11.-stræti í New York, en Buckanan lagði sig í líma við að halda hjónabandinu leyndu og telja fólki trú um að Anna væri aðeins ráðskona hans. Anna gerðist síðar móttökustjóri á læknastofu eiginmanns síns. Með tíð og tíma spurðist út að Anna væri eiginkona læknis- ins og fyrrverandi pútnahússstýra í þokkabót og fólk fór að leita til annarra lækna. Fyrir vikið tók inn- koma Buckanan mikla dýfu. Óþolandi herfa Að sögn ríkti lítill friður á heimili hjónanna. Þau rifust eins og þeim væri borgað fyrir það og undir lok árs 1891 hótaði Anna að yfirgefa lækninn. Þann vetur var ljóst að Buckanan hugnaðist ekki hvaða stefnu hjónabandið hafði tekið og hafði hann á orði við vini sína að „gamla herfan“ væri óþolandi og hann yrði „losna við hana, hvað sem það kostaði“. Þann 21. apríl, 1892, tilkynnti Buckanan að hann hygðist sigla til Skotlands og yrði einn í för. Fjór- um dögum fyrir fyrirhugaða brott- för hætti hann við vegna veikinda eiginkonu sinnar. Kvænist fyrri eiginkonu sinni Buckanan kallaði til tvo lækna til að koma Önnu til heilsu, en allt kom fyrir ekki og heilablóðfall varð henni að bana. Þremur vikum síð- ar kvæntist Buckanan fyrri eigin- konu sinni, Helen, í Nova Scotia og var þá 50.000 Bandaríkjadölum ríkari enda eini erfingi Önnu. Saga þessi kynni að hafa end- að þegar þarna var komið sögu, en sú varð ekki raunin. Í maí, 1892, ákvað blaðamaður í New York að skoða dauðsfall Önnu eft- ir að hafa heyrt orðróm þess efn- is að ekki hefði allt verið þar með felldu. Vinir Önnu voru meðal annars sannfærðir um að henni hefði verið byrlað eitur. Blaðamaður fer á stúfana Blaðamaðurinn, Ike White, hóf að grafast fyrir um málið og á með- al þess sem hann hnaut um voru orð sem Buckanan hafði látið falla tveimur árum áður. Þá hafði ver- ið réttað yfir læknanema að nafni Carlyle Harris. Hann var ákærður fyrir að hafa banað unnustu sinni með eitri. Í fyrstu hafði verið talið að banamein hennar hefði verið slag, en depilblæðingar á sjáöldr- um hennar leiddu til frekari rann- sóknar og í ljós kom að henni hafði verið gefinn banvænn skammtur Umboðsaðilar: Húsgagnaval - Höfn / Bara snilld ehf. - Egilsstöðum Opið virka daga kl. 10:00 - 18:00 Laugardaga 12:00 - 16:00 Læknirinn Ágirntist 50.000 dali síðari eigin- konu sinnar. Sjáaldursjurt Einnig þekkt sem völvu- auga og kom við sögu í réttarhöldunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.